19.12.1978
Neðri deild: 38. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1814 í B-deild Alþingistíðinda. (1427)

136. mál, Iðntæknistofnun Íslands

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. 5. landsk. þm. fyrir þessa fsp. Satt að segja kom mér svar hæstv. ráðh. ekkert á óvart. Fyrirspyrjandi spurði hvort ríkisstj. hefði einhverja stefnu í iðnaðarmálum. Hann hefði náttúrlega ekki þurft að spyrja, vegna þess að hæstv. ríkisstj. sýnist vera stefnulaus, ekki aðeins í þessum málum, heldur yfirleitt í öllum málum, ein ringulreið ríkir á því heimili. En ég fagna svari hæstv. ráðh., því að hann sagði að málið væri til meðferðar í ríkisstj., og mér finnst það vera framfaramerki. Ég vona að það séu fleiri slík stefnumarkandi mál til athugunar í ríkisstj. og ekki líði langt þangað til myndist einhver stefna í iðnaðarmálum.