20.12.1978
Efri deild: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1824 í B-deild Alþingistíðinda. (1441)

153. mál, lögtak og fjárnám

Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Á þskj. 249 flyt ég stjfrv. til l. um breyt. á l. nr. 2916. des. 1885, sbr. lög nr. 32 29. apríl 1967, um lögtak og fjárnám án undanfarins dóms eða sáttar.

Frv. þetta er, eins og frv. til l. um breyt. á lögum um skipti á dánarbúum og félagsbúum o.fl., flutt í samræmi við þau fyrirheit sem ríkisstj. gaf launþegasamtökunum um umbætur í félags- og réttindamálum launþega samfara setningu laga um viðnám gegn verðbólgu í lok nóvember s.l.

Frv. gerir ráð fyrir þeirri breyt. á lögum um lögtak o.fl., að lögtaksréttur taki ekki aðeins til umsamdra greiðslna atvinnurekanda í sjúkra- og styrktarsjóði verkalýðsfélaga, heldur nái þessi réttur einnig til umsamdra greiðslna í orlofssjóði svo og til greiðslna iðngjalda í lífeyrissjóði.

Eindregnar óskir hafa komið fram um það frá fulltrúum launþega, að þessi breyting verði gerð. Þykir rétt að verða við þeim vegna hins sérstaka eðlis þessara framlaga, sem telja verður að séu í raun og veru hluti af hinum eiginlegu launum starfsmannsins.

Nái frv. þetta fram að ganga þarf ekki að staðfesta fyrrnefndar greiðslur í dómstóll áður en aðfarar er beiðst í eignum atvinnurekanda, heldur er hægt að ganga beint að eignunum.

Herra forseti. Að lokinni þessari umr. legg ég til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.