20.12.1978
Neðri deild: 39. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1843 í B-deild Alþingistíðinda. (1465)
137. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég vil þakka þann stuðning sem komið hefur fram hér í hv. þd. og hjá hluta iðnn. við það frv. sem er til umr., en ég get vissulega ekki neitað því, að ég vildi gjarnan hafa séð þennan stuðning meiri á þessum skammdegisdögum. Bjartsýni mín hefur hins vegar aukist nokkuð um góðan framgang þessa frv. eftir þá ræðu, sem flutt var áðan af hv. þm. Vilmundi Gylfasyni, því að ég er ekki í vafa um að hann hefur snúið nokkrum hv. þm. til fylgis við það réttlætismál sem hér er til umr. Ég ætla ekki að verja tíma mínum eða tefja þennan fund í hv. d. með því að fara að svara einstökum atriðum úr máli hans. Ég býst hins vegar við að það þyki út af fyrir sig tíðindi, að ég sé orðinn einn af ötulustu stuðningsmönnum Kröflustefnunnar svokölluðu, en ég ætla ekki að fara að ræða það mál hér. Hins vegar minntist hv. þm. á að það væri ástæða til að hafa gæslumenn — ég held tvo — þar norður í landi, og ég hef þegar látið mér detta í hug umsækjendur um það verkefni.
Síðan rætt var um þetta mál síðast við 1. umr. í hv. d. hefur þm, borist erindi frá Rafmagnsveitum ríkisins, dags. 17. des., sem er eins konar svar við þeim upplýsingum sem dreift var í hv. d. í nafni Sambands ísl. rafveitna. Í þessu erindi eru rakin á skilmerkilegan hátt ýmis þau atriði, sem ranglega var um fjallað í erindi frá formanni Sambands ísl. rafveitna, og staðfest að um er að ræða villandi upplýsingar um ýmsa þætti sem þar komu fram og sumir hv. þm. hafa gleypt óþarflega gagnrýnilaust, e.t.v. til þess að friða samvisku sína í sambandi við andstöðu við þetta mál sem hér er til umr.
Hv. þm. Gunnar Thoroddsen gat þess í máli sínu, að stjórn Rafmagnsveitna ríkisins hefði ekki gert tillögu um þá hækkun á verðjöfnunargjaldi sem hér er lögð til, og það er út af fyrir sig rétt, að þegar stjórnin fjallaði um vanda sinn benti hún á aðra leið sem ákjósanlegri, þ.e.a.s. bein framlög úr ríkissjóði eða frá ríkinu til Rafmagnsveitnanna til þess að létta á rekstri þeirra. Það hefur verið upplýst að sú leið verði væntanlega farin að hluta og upptekin þar ný stefna sem hv. þm. Gunnar Thoroddsen tók undir. Ég treysti á stuðning hans og annarra góðra manna við þá stefnubreytingu, þó að hann hafi á sínum tíma ekki komið henni fram, á þeim árum sem hann var iðnrh.
Ég vil einnig minna á það, að stjórnarformaður Rafmagnsveitnanna, hv. þm. Pálmi Jónsson, hefur tekið undir það frv., sem hér liggur fyrir, og talið að það væri eðlileg leið til þess að bæta úr brýnni þörf og koma á lágmarksleiðréttingu. Sú viðbót á verðjöfnunargjaldi, sem hér er lögð til, er nauðsynleg til þess að koma við lágmarksleiðréttingu. Henni verður varið til þess að minnka það mikla bil sem er á almennum töxtum hjá raforkunotendum Rafmagnsveitnanna og Orkubús Vestfjarða og þeirra sem búa við hagstæðast verð. Það stendur til að fara yfir verðlagningu samkv. marktaxta og húshitunartaxta hjá Rafmagnsveitunum í ljósi þeirra breytinga á olíuverði sem orðið hafa að undanförnu, þannig að menn þurfa ekki að kvíða því sérstaklega, að það, sem inn kemur fyrir þetta verðjöfnunargjald hverfi inn í þá taxta. Það verður reynt að tryggja að þeirri viðmiðun við olíuverð, sem hefur verið stefnan í sambandi við marktaxta og húshitunartaxta, verði fylgt áfram og þannig komi það fjármagn, sem inn kemur með hækkun verðjöfnunargjalds, til góða í sambandi við verðlagningu á hinum almennu töxtum.
Væntanlegt beint framlag frá ríkinu mun ganga langt í þá átt að standa undir kostnaði við hinar svokölluðu félagslegu framkvæmdir, sem mér heyrist af máli hv. þm. að flestir séu sammála um að eðlilegt sé framvegis að fjármagna með beinum framlögum frá eiganda Rafmagnsveitnanna, þ.e.a.s. ríkinu.
Það hefur komið fram margháttaður misskilningur í sambandi við taxta og verðlagningu hjá Rafmagnsveitunum. Ég ætla ekki hér að elta frekar ólar við það, en kemst þó ekki hjá að nefna það, sem kom fram í fyrirvara hv. þm. Árna Gunnarssonar í sambandi við þessa taxta, þar sem hann er að tala um nauðsyn á sérstökum refsitaxta fyrir þá sem kaupa raforku eftir marktaxta. Það hefur farið fram athugun á því, hversu mikið sé um að menn fari fram yfir þann afltopp sem um er samið samkv. marktaxta, og hefur komið fram við þá athugun að það er afar óverulegt sem notendur marktaxta fara fram yfir í kwst. talið, að aðeins um 1% af viðskiptum þeirra sem kaupa orku eftir þeim taxta. Ekki sýnist því sérstök ástæða til aðgerða í því sambandi, þó að sjálfsagt sé að veita þar aðhald.
Inn í þessar umr. hefur verið blandað óskyldum efnum, eins og fjárveitingum til virkjanaframkvæmda, og mér dettur ekki í hug að fara að ræða þau efni. Ég vil aðeins benda á hversu fjarstæðukennt er að vera að blanda slíku inn í umr. um þetta mál og telja að fjárveitingar til tiltekinna virkjana skipti máli í sambandi við þá verðlagningu á raforku sem við erum að fjalla um fyrir næsta ár. Menn geta eytt tíma Alþingis í að karpa um hvað sé réttmætt í sambandi við ákvarðanir um virkjanir. Þar mun eflaust sýnast sitt hverjum, eins og oft hefur verið. Ég tel að ákvarðanir af því tagi þurfi að vera vel undirbúnar og aðeins teknar að vel athuguðu máli. Mér finnst það vera langsótt að fara að upphefja andróður gegn tiltekinni virkjun í sambandi við þetta mál. Það mætti eflaust með sömu röksemdafærslu gagnrýna fjárveitingar sem til þessara mála renna nú, til einstakra virkjana, t.d. stórvirkjana hér á Suðurlandi, ef menn vildu viðhafa slíkan málflutning og slíka röksemdafærslu. Ég treysti því, að hv. þm. almennt falli ekki í þá gryfju að fara að rugla þannig saman atriðum sem eru óskyld því sem hér er til umr.
Ég vil að lokum segja það, að ég trúi ekki öðru en að þm. sendi viðskiptavinum Rafmagnsveitna ríkisins betri kveðju en fram hefur komið í máli þeirra sem andæfa þessu frv., að menn sendi betri jólakveðju út í hinar dreifðu byggðir landsins en þá að ætla að stemma stigu við framgangi þessa frv. sem er lítið skref í réttlætisátt í sambandi við aðstöðu fólks í þessu landi. Ég tel vera þörf á því og það mikla þörf, að reynt verði að efla samstöðu meðal forustumanna þjóðarinnar um viss meginlífshagsmunamál landsmanna, og að þar geti menn horft út yfir þrengstu sjónarmið einstakra landshluta og kjördæma.