21.12.1978
Neðri deild: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1857 í B-deild Alþingistíðinda. (1490)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Það virðist sem hugir alþm. hafi farið svolítið úr jafnvægi þessa morgunstund. Það er óheppilegt, því að ég veit að við erum allir sammála um að Alþ. geti lokið fyrir jól eins og ætlast hefur verið til. Á hinn bóginn skil ég vel að hv. stjórnarandstæðingar séu ekki alls kostar ánægðir með þau vinnubrögð sem við hefur þurft að hafa á Alþ., og ég er fyrir mitt leyti reiðubúinn til þess að biðja þá afsökunar á því. En ég skírskota til þess, að þeir eru flestir þingvanir og vita að það verður oft að láta skynsemina ráða þegar um vinnubrögð er að tefla. Þess vegna vil ég nú vinsamlegast fara fram á það, að þeir fallist á að þau tekjuöflunarfrv., sem bíða atkvgr. hér í d., fái afgreiðslu, þannig að hv. Ed. gæti fengið þau til meðferðar og hún geti haft eðlilegan tíma til að fjalla um þau.
Það er auðvitað fjarri mér að vilja leggja nokkurt haft á málfrelsi þm. og stjórnarandstöðunnar, og mér sýnist, að ef þeir fallast á þessi vinsamlegu tilmæli mín, þá sé í lófa lagið að halda áfram þessum umr. utan dagskrár eftir að atkvgr. hefur farið fram. Ég veit að vísu að hæstv. forseti Nd. hefur þetta í hendi sér, en ég tel ekki rétt að hann neyti neins forsetavalds í þessum efnum, heldur er það, sem ég er að fara fram á, að með góðu samþykki megi hafa þennan hátt á afgreiðslu málanna, en síðan geti menn talað að vild sinni. Og eins og ég hef sagt áður, þá er mér ekkert að vanbúnaði að sitja hér milli jóla og nýárs. Þessi mál, sem um er að ræða, verða afgreidd hér, hvort sem menn tala lengur eða skemur. En ég vil nú vænta þess, að hv. leiðtogi stjórnarandstöðunnar, vegna fyrri kynna minna af sanngirni hans, geti fallist á þessi tilmæli mín.