21.12.1978
Neðri deild: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1859 í B-deild Alþingistíðinda. (1496)
Umræður utan dagskrár
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég vil hefja mál mitt með því að lýsa furðu minni fyrst og fremst á yfirlýsingu hæstv. utanrrh. og síðan ekki síst furðu minni á ósk hæstv. forsrh. eftir að yfirlýsing hæstv. utanrrh. var tekin til umr. Fyrst og fremst er það vegna þess, að það var ekki nokkur þörf fyrir stjórnarflokkana eða hæstv. forseta að hleypa hæstv. utanrrh. í ræðustól með yfirlýsingu frá flokksfundi Alþfl. sem gerði ekkert annað en lítillækka hæstv. ríkisstj. með því að staðfesta að það þarf að sækja ákvörðun út í bæ til þess að störf Alþingis geti haldið áfram á eðlilegan hátt við afgreiðslu fjármála. Þetta eru alveg furðuleg vinnubrögð og við þessi vinnubrögð höfum við þurft að búa undanfarna daga og þar með störf Alþ. verið heft. En ég skil vel afsökunarbeiðni hæstv. forsrh. á þeim vinnubrögðum sem hafa verið viðhöfð. Hana skil ég vel. Og ég skil hana þannig, að hann hafi um leið verið að hirta samstarfsflokk sinn. Það var full ástæða fyrir oddvita ríkisstj. til að biðja afsökunar á þeim vinnubrögðum sem við hafa verið höfð af þeim hluta ríkisstj. sem þarf að sækja ákvarðanir út í bæ til þess að Alþingi Íslendinga geti starfað áfram á eðlilegan hátt frá degi til dags.
En ég vil undirstrika það, að það er ekkert sem komið hefur fram frá stjórnarandstöðunni sem hefur tafið þingstörf. Það var hæstv. utanrrh. sem hóf þennan málflutning, og ég verð að taka undir það sem hér hefur verið sagt, að það er óeðlilegt ef þessum umr. verður slitið án þess að menn fái að tala út.
Ég vil fyrst koma að ummælum 1. þm. Austurl., þar sem hann talaði um að Alþb. vildi tryggja fulla atvinnu í lengstu lög, og benda hv. þm. á þá staðreynd, að þeir stjórnarflokkar, sem mynda þessa hæstv. ríkisstj., og þeir stjórnarflokkar, sem mynda meiri hl. í borgarstjórn Reykjavíkur, hafa lagt á atvinnureksturinn í Reykjavík hvorki meira né minna í fasteignasköttum og aðstöðugjöldum en um 1400 millj. kr. til viðbótar við það sem ráðgert var í upphafi, og ríkisvaldið hefur boðað um 6000 millj. kr. aukningu skatta á atvinnuvegina, bæði með hækkun tekju- og eignarskatts og álagningu nýrra skatta. Ekki er þó langt liðið síðan stjórnvöld álitu að atvinnuvegirnir væru ófærir um að greiða umsamið kaup. Svo er talað um að tryggja vinnumarkaðinn, tryggja fulla atvinnu. Hvað langt haldið þið að sé hægt að ganga í blekkingum?
Það er ekkert því til fyrirstöðu að staðið verði við samningana frá því í haust, eins og hv. 1. þm. Austurl. gat um að væri á stefnuskrá Alþb. Það er meira að segja samþykkt í borgarstjórn Reykjavíkur, að staðið skuli við 14.13% launagreiðslu til starfsmanna borgarinnar, og ber skylda til að gera það. En þeir svíkja það og brjóta þar með samþykktir borgarstjórnar Reykjavíkur á eigin ábyrgð.
Hv. þm. Lúðvík Jósepsson telur að það megi nú liggja í léttu rúmi þó að hrollur fari um stjórnarandstöðuna. Það fer enginn hrollur um stjórnarandstöðuna við að sjá framan í þá hv. herra sem hér taka ákvarðanir. Það fer hrollur um alla menn, sem eitthvað hugsa um framtíð þessarar þjóðar, þegar þeir sjá vinnubrögðin og árangurinn af störfum þeirra, bæði hér og annars staðar. Og það er full ástæða til þess, að það fari hrollur um fólk. Ég ítreka það, að komandi ár verður líklega eitt þyngsta skattár sem þjóðin hefur lifað.
Hæstv. utanrrh. gaf yfirlýsingu sem að mínu mati kom Alþingi Íslendinga ekki nokkurn skapaðan hlut við. Alþfl.-þm. eiga að vera færir um að taka ákvörðun sína án þess að sækja hana frá degi til dags út í bæ. En þessi yfirlýsing Alþfl. er einhver sú mesta sjálfsblekking sem nokkurn tíma hefur verið viðhöfð, ef Alþfl.-menn halda það eitt augnablik að þjóðin sjái ekki jafnvel í gegnum vinnubrögð eins og við aðrir hv. alþm. gerum. Þetta er yfirklór formanns flokksins, kattarþvottur til að bakka út úr úrslitakostum sem Alþfl. var búinn að setja þessari ríkisstj. Og þjóðin hlær að þessum vinnubrögðum. Það er ekki hægt að gera neitt annað. Þetta eru hreinlega hlægileg vinnubrögð. En ég ætla að leyfa mér að vona það, að úr því að loksins er komin yfirlýsing um að Alþfl. megi halda áfram sínum eðlilegu störfum, þátttöku í störfum Alþingis frá degi til dags, að ekki þurfi að boða til nýs flokksstjórnarfundar í Alþfl, til þess að ljúka þingstörfum fyrir jól. Við erum búnir að bíða eftir tveimur eða þremur flokksstjórnarfundum undanfarið.
Ég óska ríkisstj. til hamingju með að hún hefur fundið nýjan samstarfsgrundvöll sem loksins hefur skapast á milli þeirra stjórnmálaflokka sem standa að þessari ríkisstj. Við höfum vitað að ráðh. hafa verið nokkuð sammála, en þetta er í fyrsta skipti sem við vitum að stuðningsflokkarnir fylgja ráðh. sínum, og ég vona að það haldist fram yfir jól. En ég vil lýsa því yfir, að ég er reiðubúinn ekkert síður en forsrh. til að vinna hér áfram og taka ekkert jólafrí. Hann er ekki einn um það. En mér skilst að það sé kappsmál a.m.k. ráðh. Alþfl., að hann hlaupi ekki til Bessastaða alveg strax, þó að leiðin sé ekki löng. — Þetta eru furðuleg vinnubrögð.
Þessi samstarfsgrundvöllur er eins og ýmislegt annað, sem hefur komið fram frá Alþfl.-mönnum, ekkert loforð um neitt varanlegt samstarf. Þeir ætla að hafa stjórn og þing eins og í teygjubandi. Þeir lofa að vera góðir strákar fram til 1. febr. — 1. febr. á leikurinn að byrja aftur og þjóðin á að fá að hlæja meira. Hvar á þetta að enda? En það verður ágætt jólafrí fyrir ríkisstj. fram að 1. febr. — Þetta eru furðuleg vinnubrögð.
Annars vil ég segja það um stefnu Alþfl., þessa sem á að bjarga þjóðinni út úr öllum hennar vandamálum, eins og hún birtist í Alþýðublaðinu, að ég gafst upp á að lesa skýringarnar við hana. Mér fannst stefnan ekki vera það góð að þjóðin fagnaði henni að einu eða neinu leyti og kannske öllum fyrir bestu að forsrh. og meðráðh. taka ekkert mark á Alþfl. í stefnumótun. Það er alveg augljóst af þeim ummælum, sem ég hef lesið eftir hæstv. forsrh. í blöðunum, að hann hefur verið alveg rólegur þrátt fyrir þetta brölt Alþfl. til og frá, enda kemur í ljóst að það breytti engu, ekki nokkrum sköpuðum hlut, og stjórnin heldur áfram alveg eins og forsrh. var ljóst allan tímann.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri að sinni, en vona að þessi vinnubrögð upphefjist nú ekki aftur 1. febr., þannig að þjóðin fái að hlæja að einhverju öðru en Alþfl. hér eftir.