21.12.1978
Neðri deild: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1876 í B-deild Alþingistíðinda. (1515)
23. mál, tímabundið vörugjald
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Áður en frv. um. tímabundið vörugjald er borið undir atkv, vil ég aðeins benda hv. þm. á það, að þó að prósentutala hækkunarinnar sé ekki há, aðeins 2%, eykur gjaldið í þeim vöruflokkum, sem greitt hafa 16% gjald, en hækkar í 18% frá 1. jan. 1979 verði þetta frv. að lögum, tekjur ríkissjóðs um 1115 millj. kr. Hv. þm. skulu gera sér grein fyrir því, hvaða aukagjald þeir eru hér að samþykkja, þótt prósentutalan sé ekki há.