21.12.1978
Neðri deild: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1876 í B-deild Alþingistíðinda. (1517)

39. mál, kjaramál

Frsm. meiri hl. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Það stendur eins á um þetta mál og það sem var á dagskránni á undan. Hér er um að ræða mál sem komið er frá Ed. og tók þar minni háttar breytingum, fyrst og fremst í sambandi við þá breytingu sem ég var að gera grein fyrir áðan, en aðrar breytingar eru minni háttar.

Fjh.- og viðskn. hefur lítið á frv. í þeim búningi sem það er nú, og meiri hl. n. fellst á þessa breytingu. En eftir sem áður stendur það, að minni hl. fjh.- og viðskn., fulltrúar Sjálfstfl., er andvígur þessu máli.