21.12.1978
Neðri deild: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1882 í B-deild Alþingistíðinda. (1530)

146. mál, heimild til lántöku vegna lánsfjáráætlunar 1978

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Hv. þm., sem var að ljúka máli sínu áðan, er leiðtogi Alþfl. á þingi. Það er eins og hann hafi ekkert skilið og ekkert lært frekar en flokkurinn, því að hann er jafnvilluráfandi í öllum málum og þegar þing byrjaði í haust. Það er auðvitað ekki að búast við góðu frá flokki sem nýtur andlegrar forustu manns eins og þessa þm. Hverju leyfði ég mér að biðja menn að vera á móti? Það, sem ég spurði um, var: Hvar eru áform Alþfl.? Vill Alþfl. taka frekari erlend lán? Hann hefur marglýst yfir að ekkert mundi breyta þeirri afstöðu sinni. — En ég er ekkert hræddur um þetta mál, hvar það lendir, þó að þessi hv. þm. greiði atkv. á móti því. Hann má það fyrir mér. Og ég ætla ekki heldur að spyrja hann hvort ég fari burt af þingi. Ég ætla að rækja þingskyldur mínar hvað sem þessi ruglukollur segir.