21.12.1978
Neðri deild: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1883 í B-deild Alþingistíðinda. (1532)

146. mál, heimild til lántöku vegna lánsfjáráætlunar 1978

Frsm. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Ég get því miður ekki upplýst hv. 1. þm. Reykv. um hvernig þessu tiltekna verki líður, hvað búið er að moka miklu þarna og hvað mikið á eftir að moka. Það veit ég ekki um. Það er miklu nær að spyrja þá sem hafa séð um þetta fram að þessu. Ég get ekki svarað þessu.

Hitt get ég upplýst hann um, að það, sem hér er um að ræða, er að verið er að afla heimilda til lántöku umfram þær heimildir sem Alþ. hafði gefið í fyrri lánsfjáráætlun. Það var heimild til ákveðinnar lántöku til verksins, en það er þegar búið að gera samninga sem fara út fyrir þau heimildarmörk. Hvort tveggja er, að til kemur gengisbreyting á þessum tíma sem breytir þeim upphæðum sem gert var ráð fyrir í lánsfjáráætlun, og auk þess er þetta í sambandi við samninga varðandi verkið. Ég get því ekki heldur svarað því, hvort þessar heimildir eru nákvæmlega til þess að greiða það, sem búið er að vinna af verkinu, eða það, sem kann að vera eftir af verkinu, en þetta eru heimildir til þess að ganga frá lánum í sambandi við skuldbindingar sem búið er að gera um verkið — heimildir sem eru umfram fyrri heimild Alþ. á lánsfjáráætlun.