21.12.1978
Neðri deild: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1887 í B-deild Alþingistíðinda. (1541)

146. mál, heimild til lántöku vegna lánsfjáráætlunar 1978

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Hér er eins og fram hefur komið, um að ræða staðfestingu á ákvörðun sem þegar hefur verið tekin af fyrrv. hæstv. ríkisstj. Ég tel að sú ákvörðun hafi á sínum tíma orkað tvímælis, ekki með tilliti til þarfarinnar á þeirri framkvæmd, sem hér var ráðist í, heldur með tilliti til efnahagsviðhorfa með þjóðinni. Um það er hins vegar ekki að ræða nú á þessu stigi málsins að greiða atkv. gegn því að við þessa ákvörðun verði staðið og þá samninga sem gerðir hafa verið, en ég hef hins vegar ekki afskipti af þessu máli og greiði ekki atkv.