21.12.1978
Neðri deild: 41. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1887 í B-deild Alþingistíðinda. (1546)
146. mál, heimild til lántöku vegna lánsfjáráætlunar 1978
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Í framhaldi af þeirri umr., sem fram fór við 2. umr. þessa máls, og í framhaldi af þeim fyrirvara, sem hv. 1. þm. Reykv., Albert Guðmundsson, viðhafði þegar hann sagði nei, vil ég enn vekja athygli d. á því, um hvað brtt., sem á síðustu stundu var fram borin eða kynnt af fjh.- og viðskn., fjallar. Ég tek það fram, að ég er að tala um „prinsipið“ sem hér er um að ræða, en ekki um málið sjálft. Ágreiningur um það er af allt öðru tagi en það sem ég er hér að lýsa. Það, sem gerst hefur, er einfaldlega þetta:
Það hefur verið framkvæmt meira en lagaleg heimild stóð til. Þegar búið er að framkvæma meira en lagaleg heimild stóð til er komið til Alþ. og það beðið um að staðfesta lánsheimild eftir á. Það, sem hér er auðvitað um að ræða, er það, að þetta er aldeilis afleitt fordæmi vegna þess að þetta er ákvörðun sem Alþ. á að taka fyrst og síðan á að framkvæma. Alþ. á ekki að vera afgreiðslustofnun sem afgreiðir eftir á hluti sem gerst hafa. Þetta kom ákaflega skýrt fram í máli hv. 1. þm. Reykv., og á þetta vil ég enn leggja þunga áherslu. Það er afleitt fordæmi og gersamlega óþolandi, að Alþ. sé afgreiðslustofnun embættismanna af því tagi sem ljóst er að er í þessu máli a.m.k.
Þetta mál bar að vísu mjög skjótt að, en eftir að hafa leitað mér upplýsinga um hvernig þetta mál stóð, þá vil ég leggja þunga áherslu á að svona á ekki að vinna að málum. g er sannfærður um að 3/4 hlutar d., sem greiddu þessu atkv. áðan, höfðu ekki hugmynd um hvað þeir voru að samþykkja. Svona á ekki að standa að málum, og því vek ég enn athygli á þessu við 3. umr. til þess að reyna að koma í veg fyrir að svona verði að málum staðið í framtíðinni. Það er Alþ. sem á að taka leiðandi ákvarðanir af þessu tagi, en ekki embættismenn sem síðan fleygja málunum inn til staðfestingar á Alþ. Það er Alþ. sem á að vera leiðandi að því er svona mál varðar, en ekki embættismannakerfið í landinu. Ég hygg að þau 4, sem greiddu atkv. á móti þessu í dag, hafi gert það af þessum ástæðum. Alla vega kom það mjög skýrt fram í þeim fyrirvara, sem hv. þm. Albert Guðmundsson flutti þegar hann talaði fyrir atkvæði sínu.
Þó að það sé fyrst að renna núna upp fyrir einhverjum hv. dm. hvað þeir voru að samþykkja, þá geri ég varla ráð fyrir því, að menn skipti um skoðun á þessu milli 2. og 3. umr., en hinu er skylt að vekja rækilega athygli á, hvers konar vinnubrögð hér er verið að viðhafa. Svona á ekki að fara að. Það er Alþ. sem á að leiða ákvarðanir af þessu tagi, og það er verk embættismanna að vinna í framhaldi af því sem Alþ. hefur samþykkt, en ekki öfugt. Ég ítreka enn mótmæli mín við þeim vinnubrögðum sem hér hafa verið höfð í frammi.