24.10.1978
Sameinað þing: 8. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í B-deild Alþingistíðinda. (156)

Umræður utan dagskrár

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. út af því, sem hv. 1. þm. Reykv, beindi til mín áðan, vil ég taka það fram, að á fundi þingflokks sjálfstæðismanna 12. okt. fór fram kosning þriggja manna í fjvn. Kosnir voru Pálmi Jónsson, Lárus Jónsson og Ellert B. Schram. Þar með var því máli lokið.

Hugmynd, sem síðar var sett fram um að breyta þessari tilnefningu, kom ekki til afgreiðslu í þingflokknum.