21.12.1978
Neðri deild: 43. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1901 í B-deild Alþingistíðinda. (1573)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Ingvar Gíslason):

Út af ummælum hv. 11. þm. Reykv., þá er það enn ákvörðun forseta að vísu að halda fundinn og setja hann sem fyrst. Þennan fund verður að halda, e.t.v. að loknum fundi í Sþ. í kvöld, því að við erum þannig sett að þetta mál á eftir að ganga til Ed. og þarf að ræða þar. Er því mjög nauðsynlegt að geta nú haldið fund um þetta mál. Ég mun freista þess að setja fund að nýju þótt honum verði að fresta.