25.10.1978
Efri deild: 8. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í B-deild Alþingistíðinda. (161)
15. mál, happdrættislán vegna framkvæmda við orðurveg og Austurveg
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil taka undir það, sem hér hefur komið fram, að fagna þessari till. svo langt sem hún nær. Og ég vil taka undir með hv. frsm., að góðar samgöngur eru eitt stærsta byggðamál í okkar landi.
Eitt atriði, sem kom fram í framsögu, var í sambandi við Borgarfjarðarbrúna, þar sem hv. frsm. sagði eitthvað á þá leið, að þar hefði verið of fljótt í farið. Ég vil taka það fram og benda mönnum á að allt það brúarkerfi, sem Borgarfjarðarbrúin nýja á að leysa af hólmi, er að bresta.
Það þolir alls ekki það mikla álag sem er á umferðinni á þessu svæði, og þar af leiðandi er mjög brýnt að Borgarfjarðarbrúin komist sem fyrst í gagnið, því annars getur af því hlotist stórtjón og stórslys. Ég vil einnig benda á það, að bygging Borgarfjarðarbrúarinnar er í raun og veru ein mikilsverðasta framkvæmdin í sambandi við einmitt Norðurveginn. Ég tel hins vegar að það hafi verið skakkt að farið í sambandi við fjármögnun þessarar miklu framkvæmdar, að það skyldi ekki vera hafður á sami háttur og við hringveginn, fjármagnað sérstaklega án tengsla við fjármagn í almennum vegalögum. Ég get tekið undir það, að ég tel nauðsynlegt nú að Alþ. sé þess meðvitandi, að þessi framkvæmd er á því stigi í dag, að það er ekki hægt að fresta framkvæmdum. Það verður að leggjast á eitt um að finna möguleika til að ljúka þessari framkvæmd á tilsettum tíma.
En í sambandi við vegamálin almennt er ljóst, að þau eru nú í dag eitt það mál sem þjóðin hefur einna mestan áhuga á að fái þá framvindu hér á hv. Alþ., að hægt sé að sjá ákveðna stefnu sem leiði að því næstu ár, að við búum við vegakerfi sem þjónar því hlutverki sem nútímaþjóðfélag krefst. Ég álit að sem fyrst þurfi að liggja fyrir úttekt um raunverulegt ástand vegakerfisins í landinu í heild og ekki hvað síst eftir landshlutum. Ég vil segja frá því hér, að á Vesturlandi er starfandi sérstök samgöngunefnd, sem sveitarfélögin hafa komið sér saman um og hefur unnið að því undanfarið að flokka verkefnin bæði eftir stofnbrautum og þjóðbrautum og ná samkomulagi í héraði um forgangsröðun verkefna. Þetta tel ég mjög nauðsynlegt að liggi fyrir. Þó að við stefnum að því, sem kemur fram í till. til þál. sem liggur nú fyrir Sþ. um bundið slitlag, þá er nauðsynlegt að það sé fast mótað, hvernig verður staðið að því að byggja upp vegakerfið, ekki aðeins stofnbrautirnar, heldur einnig þjóðbrautirnar.
Ég vil endurtaka: Ég tel að það frv. til l., sem hér liggur fyrir, sé vissulega athyglisvert. Þá fjáröflunarleið, sem þar kemur fram, þarf að athuga, og það er vissulega einn liðurinn til að ná því marki, sem við erum vonandi allir sammála um, að byggja upp vegakerfi landsins á sem stystum tíma til þess að gegna því hlutverki sem gott vegasamband gerir hverri þjóð.