21.12.1978
Sameinað þing: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1921 í B-deild Alþingistíðinda. (1618)

152. mál, frestun á fundum Alþingis

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Ég þarf eiginlega engin orð að hafa um þessa þáltill., hún skýrir sig sjálf. Hún er að öllu leyti í samræmi við hliðstæðar þáltill. á fyrri þingum. Það er ekki venja og hefur ekki verið venja að vísa till. sem þessari til nefndar.