21.12.1978
Sameinað þing: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1945 í B-deild Alþingistíðinda. (1630)

54. mál, fjárlög 1979

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Ásamt þm. Einari Ágústssyni, Ágúst Einarssyni og Albert Guðmundssyni flyt ég á þskj. 305 till. varðandi ferðamannastöð við Gullfoss.

Eitt frægasta og fegursta náttúrufyrirbrigði Íslands er Gullfoss og auðvitað ljóst að umhverfi fossins þarf að njóta nauðsynlegrar verndar og þarf að skapa sem best skilyrði til að taka á móti þeim mikla fjölda ferðamanna, innlendra og erlendra, sem þangað koma. Eru víst allir sammála um að það er rétt sem segir í grg. Ferðamálaráðs um þetta mál, sem send hefur verið ýmsum aðilum, að ástandið við Gullfoss hafi verið þjóðinni til vansæmdar í fjöldamörg ár. Er talið að aðsókn að Gullfossi sé upp undir 100 þús. manns yfir sumarmánuðina og Gullfoss þannig einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins.

Ferðamálaráð hefur lagt á það mikla áherslu undanfarin ár, að hér séu gerðar umbætur svo að sómasamlegt megi teljast. Umhverfismálanefnd Ferðamálaráðs hefur kannað þetta mál rækilega, ráðið til þess arkitekt að gera tillögur að húsi þar, og er gert ráð fyrir í þessum tillögum, að við Gullfoss sé reist um 250 fermetra hús, þar verði snyrtiaðstaða af stærð sem miðast við hina árlegu aðsókn, þar verði íbúð gæslumanns lands og mannvirkja, sem nauðsynlegt er að hafa þar um hásumartímann, þar verði afdrep fyrir gesti, sem þýðingarmikið er að hafa á þessum misviðrasama stað, lítil minjagripasala og geymsla. Við hönnun hússins hefur verið lögð áhersla á að form og byggingarefni falli eðlilega að umhverfi sínu. Í þessari n. eiga sæti þeir Árni Reynisson framkvæmdastjóri Náttúruverndarráðs, Heimir Hannesson formaður Ferðamálaráðs og Magnús E. Guðjónsson framkvæmdastjóri Sambands ísl. sveitarfélaga. Gerðar hafa verið áætlanir sem Ferðamálaráð hefur lagt fram með kostnaðaráætlun, grunnmynd húss, frumteikningu að útliti, afstöðumynd og ljósmynd af vinnulíkani. Því miður hefur þetta mál ekki fengið þær undirtektir eða stuðning sem sjálfsagður hefur verið hjá stjórnvöldum til þessa, enda er það mála sannast, að það virðist svo í okkar stjórnkerfi að þetta heyri undir allmarga aðila og virðist erfitt að fá þar niðurstöður og ákvörðun. Ég ætla að það sé nauðsynlegt að Alþ. taki af skarið og láti í ljós vilja sinn í þessu efni, því að við svo búið eins og verið hefur að undanförnu má ekki lengur standa.

Nú er það svo, að Ferðamálaráð hefur samþykkt að úr Ferðamálasjóði verði lagðar fram 10 millj. á ári í 3 ár, 1978, 1979 og 1980, eða 30 millj. samtals í þessu skyni. Enn fremur hefur Framkvæmdasjóður fallist á að lána Ferðamálasjóði til framkvæmda við Gullfoss 10 millj. kr. til þess að flýta þar framkvæmdum.

Það, sem í till. á þskj. 305 felst, er ekki að veita beint fé til þessara framkvæmda úr ríkissjóði, heldur að inn á heimildagrein, 6. gr. fjárl., komi nýr liður í þá átt, að ríkisstj. sé heimilt að láta hefja framkvæmdir við þjónustustöð fyrir ferðamenn við Gullfoss í samræmi við frumhönnun, sem Ferðamálaráð Íslands hefur látið gera, og taka til þess lán allt að 25 millj. kr.

Ég tel ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál, en vænti þess, að hv. alþm. taki vel undir þessa nauðsynlegu umbót, að eftir það ástand, sem verið hefur í fjölda ára og fjölmargir ferðamenn að sjálfsögðu hneykslast á með réttu á undanförnum árum, ákveði Alþ. nú að láta í ljós þann vilja sinn, að svo búið megi ekki lengur standa.