21.12.1978
Sameinað þing: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1954 í B-deild Alþingistíðinda. (1636)
54. mál, fjárlög 1979
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Það líður senn að lokum þessarar fjárlagaafgreiðslu. Tvennt hefur einkum sett svip sinn á hana. Í fyrsta lagi áköf leit ríkisstj. að nýjum sköttum til þess að leggja á þjóðina. Sú leit hefur endað með því, að nú hefur yfir þjóðina dunið skattahækkun um 14–15 milljarða. Hitt atriðið, sem hefur einkennt þessa fjárlagaafgreiðslu, er óþekkt. Alþfl.
Þáttur Alþfl. í þessari fjárlagaafgreiðslu er kapítuli út af fyrir sig og ákaflega forvitnilegur fyrir alla þá sem vilja kynnast neðanjarðarstarfsemi í stjórnmálum. Við höfum orðið vitni að alls kyns hótunum, yfirlýsingum og fyrirvörum frá þm. Alþfl. undanfarna daga og reyndar undanfarnar vikur. Til stóð að stöðva 2. umr. fjárlagafrv., en henni var þá allra náðarsamlegast hleypt í gegn vegna þess að hún var túlkuð sem tæknileg umr. Til stóð að stöðva 3 umr. fjárl. og þar með fjárlögin sjálf, en Alþfl. rann á rassinn með þær fyrirætlanir, þegar hann, þ.e.a.s. þingflokkur Alþfl., fékk skilaboð frá flokksstjórninni um að hann mætti standa að fjárlagaafgreiðslunni. Það var gert með þeim hætti, að formaður Alþfl. kvaddi sér hljóðs utan dagskrár fyrr í dag og flutti þingheimi þennan boðskap. Héldu menn þá að þessum sérkennilega þætti Alþfl. í fjárlagaafgreiðslunni væri að mestu lokið. En annað hefur komið á daginn.
Það, sem hefur vakið mesta athygli í kvöld, hygg ég vera þá staðreynd, að fram er borin brtt. af 9 þm. Alþfl. sem felur í sér ýmsar breytingar á frv., bæði til hækkunar og lækkunar, en rúsínan í pylsuendanum er að leggja til að miðað sé við skattvísitöluna 151 stig. Þetta gengur að sjálfsögðu algerlega í berhögg við fyrirætlanir ríkisstj. og sennilega við það samkomulag sem gert hafði verið af ríkisstjórnarflokkunum um skattvísitöluna. Allir vita að skattvísitalan hefur auðvitað umtalsverð áhrif á fjárlagadæmið og lengi stóð til, eins og fram kom í frv. upphaflega, að skattvísitalan skyldi vera 143 stig. Það stig er langt fyrir neðan þær hækkanir, sem verið hafa á almennum launum, og hefði gefið raunverulega rétta mynd af skattpíningu þessarar ríkisstj., enda stóð til upphaflega, eins og frv. ber með sér, að hafa skattana miklu hærri og íþyngjandi umfram það sem launahækkanir sögðu til um. Frá þessu var horfið og ákveðið að miða vísitöluna við 150 stig. En nú skyndilega og að mér skilst flestum að óvörum leggja 9 þm. Alþfl, fram till. um að skattvísitalan skuli vera 151 stig.
Nú skal ég ekkert um það segja, hvort þessi till. verður borin undir atkv. Ef að líkum lætur og miðað við fyrri vinnubrögð þessara ágætu manna má búast við því, að þeir renni á rassinn með þessa till. eins og flest annað sem þeir hafa haft uppi hér síðustu daga og vikur. En við sjáum til með það. Það, sem þetta segir okkur hins vegar, er hvernig Alþfl. og þessir þm. starfa hér, bæði innan hins háa Alþingis og í því stjórnarsamstarfi sem þeir að nafninu til eru í. Það er að sjálfsögðu lærdómsríkt, bæði fyrir þá, sem starfa með þeim núna, og aðra þá, sem eiga sæti á Alþ. Þetta hefur orðið til þess að hæstv. forsrh. hefur séð sig knúinn til þess að standa upp í Sþ. og biðjast afsökunar, biðjast velvirðingar á þessum vinnubrögðum fyrir hönd allrar ríkisstj. Það er alveg ljóst að hæstv. forsrh. skammast sín sjálfs sín vegna og ríkisstj. fyrir þessi vinnubrögð. Hann biðst afsökunar á þeim. Það kemur engum á óvart.
Hæstv. forsrh. flutti hér ávarp, ef svo má segja, tilkynningu um ákvarðanir sem teknar hefðu verið af honum og ríkisstj. Þessi tilkynning sagði í rauninni ekkert nýtt. Hún kvað á um það, að ríkisstj. hefði ákveðið að setjast niður núna eftir áramótin og gera tillögur um lausn á verðbólguvandanum. Þetta er nákvæmlega það sama og sagt var þegar þessi ríkisstj. var mynduð. Hún var sett saman til þess að takast á við verðbólguna, það kemur skýrt fram í stjórnarsáttmála þessarar ríkisstj. að þetta er aðalviðfangsefni hennar, þannig að það eru engin nýmæli fyrir þjóðina að heyra að ríkisstj. ætli nú að setjast niður og leysa vanda verðbólgunnar. Annað mál er það og það kemur auðvitað síðar í ljós, hvernig henni tekst til um þessa lausn, en ekki blæs byrlega miðað við það sem á undan hefur gengið, miðað jafnvel við þær bráðabirgðaráðstafanir sem gripið hefur verið til á undanförnum mánuðum.
Annað það, sem hæstv. forsrh. kom inn á, var að nú næstu daga — eða strax eftir áramótin að mér skildist hyggst ríkisstj. taka á þeim vanda sem blasir við iðnaðinum í landinu. Þetta er ekki heldur neitt nýtt í eyrum okkar þm. Í stjórnarsáttmálanum er tekið fram, að fresta skuli tollalækkunum, að sjálfsögðu vegna vandamála iðnaðarins, og í grg. með fjárlagafrv. er enn fremur tekið fram að fresta skuli tollalækkunum. Ríkisstj. hefur ekki staðið við þessi fyrirheit og allir, sem til þekkja og með hafa fylgst, vita að þetta mál hefur dregist og hefur ekki fengist lausn á því vegna innbyrðis ágreinings í ríkisstj. Þar fléttast inn í margt, sem snertir þetta fjárlagafrv., m.a. jöfnunargjaldið og tollarnir, sem ég minntist á áðan, og þegar og ef til einhverrar lausnar kemur á þessu vandamáli er ljóst að það verður leyst með því að grípa til enn nýrra skatta.
Ég vek athygli á því, að þetta frv., sem hér er til umr., er verðbólgufrv. og það er skattpíningarfrv. Það er verðbólgufrv. vegna þess að á því verður greiðsluhalli, vegna þess að það er staðið óábyrgt að þessari fjárlagaafgreiðslu með því að taka ekki inn í þetta fjárlagadæmi ýmsa stóra liði sem hafa auðvitað umtalsverð áhrif á ríkisfjármálin. Og það er skattpíningarfrv. vegna þess að það einkennist fyrst og fremst af því að lagðar hafa verið nýjar álögur á þjóðina.
Það er að sjálfsögðu af mýmörgu að taka í þessu frv., og ég mun ekki fara að tíunda hvert einstakt atriði sem hægt væri að fara orðum um hér. Sá listi yrði allt of langur og til þess vinnst ekki tími, jafnvel þó að ég talaði í alla nótt. Ég vil þó aðeins gera að umtalsefni það sem snertir niðurskurð í þessu frv.
Margsinnis hafa verið gefnar yfirlýsingar um að skorið yrði af ríkisútgjöldum. Í ræðu hæstv. fjmrh. við 1. umr., í frv. og í umr., bæði 2. umr. og svo þessari, hefur verið talað um að gæta þyrfti aðhalds og sparnaðar og skera þyrfti niður ríkisútgjöld. Annað hefur komið á daginn. Það hefur komið á daginn að rekstrargjöld og launagjöld eru hækkuð, nánast án nokkurrar hömlu. Stöðugildi eru núna samkv. þessu frv. 100 fleiri en á fjárl. síðásta árs. Gefin var að mér skilst einhvers konar yfirlýsing um það af hálfu ríkisstj., að milli 2. og 3. umr. yrði skorið niður á fjárl. um 1800 millj., og ekki var annað að sjá á yfirlýsingu frá flokksstjórnarfundi Alþfl. en sú yfirlýsing hefði ráðið úrslitum um það, að Alþfl. hefði ákveðið að styðja þetta frv. En nú hefur komið fram það sem ég upplýsti hér í umr. utan dagskrár í gær eða í morgun réttara sagt, að í stað þessa 1800 millj. kr. niðurskurðar á milli 2. og 3. umr. er um verulegar hækkanir að ræða, eða um 300 millj. kr. hækkun samkv. till. sem meiri hl. fjvn. leggur fram. Að vísu kemur fram, að gert er ráð fyrir að niður verði skorið sem nemur 1 milljarði. Það er heimildarákvæði um að skera skuli niður um 1 milljarð einhvern tíma á næsta ári. Þetta er auðvitað eitt af þeim fyrirheitum sem gefin eru og ljóst er að varla verður staðið við. Þessi yfirlýsing og þessi heimild nær ákaflega skammt og verður að taka takmarkað mark á henni.
Þær niðurskurðartillögur, sem hafa verið lagðar fram, eru ekki meiri en svo, að þær hafa ekki náð upp í þær hækkanir sem jafnframt eru lagðar fram og gera gott betur. Þá er gert ráð fyrir að hin ýmsu rn. skeri niður hjá sér um 100 millj. kr. — fimm eða sex rn. Þessar niðurskurðartill. rn. eru allar mjög sérkennilegar. Ég ætla ekki að fara að tíunda þær allar hér, en nefni t.d. það sem hv. þm. Kjartan Ólafsson gerði að umtalsefni, að gert er ráð fyrir að uppbætur.vegna línufisks séu skornar niður um rúmar 40 millj. Hv. þm. Kjartan Ólafsson vakti athygli á því, að þetta væri óraunhæfur niðurskurður, og kvaðst ekki styðja hann. Ég held að hann hafi nokkuð til síns máls, að þessi niðurskurðartillaga standist ekki.
Einnig er gert ráð fyrir því t.d., að niður sé skorið um 60 millj. hjá menntmrn. á launum til kennara. Samningsbundin ákvæði kveða á um það, að þessar greiðslur skuli inna af hendi. og ekki er í fljótu bragði hægt að sjá hvernig rn. hyggst standa við þetta. Hugsanlegt er að þessum 60 millj, eigi að velta út til skólanna sjálfra, en þá gefur auga leið að það fé verður greitt þar engu að síður og hækka þá útgjöld skólanna þar á móti. Rafmagnseftirlit ríkisins á að skera niður um 10 millj.
Þetta er algjörlega óraunhæf niðurskurðartillaga vegna þess að tekjur og gjöld þessarar stofnunar verða að standast á. Ef skera á niður 10 millj. í rekstri, þá þýðir það auðvitað 10 millj. kr. tekjutap. Orkusjóð á að skera niður um 20 millj., og þar er sérstaklega getið um að það eigi að skera af hitaveituframkvæmdum. Nú hafa farið fram margvíslegar athyglisverðar athuganir víða um land á hugsanlegum hitaveituframkvæmdum, en ef þessi niðurskurður kemur til framkvæmda, þá er augljóst að ekki verður fylgt eftir þeim athugunum sem nú þegar er búið að gera. Slíkt hefur auðvitað takmarkaðan tilgang, vegna þess að öllum er ljóst að með auknum hitaveituframkvæmdum fæst margfaldur sparnaður.
Vátryggingasjóður fiskiskipa skal skorinn niður um 68 millj. Þar er líka um samningsbundnar greiðslur að ræða og er ekkert annað en fresta þeim greiðslum og ýta þeim yfir á næsta ár. Þessi niðurskurður stenst ekki heldur.
Þá er gert ráð fyrir því að fjárveiting til Iðntæknistofnunar sé skorin niður um 15 millj. Hv. þm. Lárus Jónsson gat þess fyrr í umr., hversu fáránleg þessi niðurskurðartillaga væri, vegna þess að við 2. umr. var gerð hækkunartillaga til Iðntæknistofnunar. Nú er aftur lagt til að Iðntæknistofnun sé skorin niður.
Ég hef hér í höndunum bréf, sem dags. er 8. nóv., frá Iðntæknistofnun Íslands. Þar er farið nokkrum orðum um þessa nýju stofnun og fjárþörf hennar. Það er óþarfi að rifja það upp, að Iðntæknistofnunin er ný stofnun, þar sem sameinaðar eru tvær stofnanir, þ.e.a.s. Iðnþróunarstofnunin og Rannsóknastofnun iðnaðarins. Þetta mál var áhugamál flestra, ef ekki allra þingflokkana á síðasta þingi. Þetta er liður í því að efla iðnað og iðntækni. Að því leyti fellur það fel að þeim sjónarmiðum sem fram kom m.a. í brtt. Alþfl. um að efla iðnað í landinu. En hvernig á að fara með þessa nýju stofnun sem nú er verið að hleypa af stokkunum?
Ég ætla að leyfa mér, herra forseti, að lesa lítinn kafla úr bréfi Iðntæknistofnunar Íslands sem varpar ljósi á stöðu stofnunarinnar og fjárhagsvanda hennar. Í töflu, sem í þessu bréfi er, kemur í ljós að samkv. fjárlagafrv. fyrir árið 1979 eru tekjur Iðntæknistofnunar áætlaðar 323 millj. 371 þús. kr., þar af er jöfnunargjald 91 millj. Þessi tafla sýnir hvernig fjárlaga- og hagsýslustofnunin hefur nálgast niðurstöðu þess dæmis sem lýtur að Iðntæknistofnun Íslands, fjárveitingar til Rannsóknastofnunar iðnaðarins og Iðnþróunarstofnunar Íslands í ár. Nú les ég upp úr bréfi Iðntæknistofnunar, með leyfi forseta:
„Fjárveitingar þessar eru lagðar saman og dýrtíðarálagi bætt ofan á. Niðurstaðan verður hækkun fjárveitinga til Iðntæknistofnunar og er hækkunin talin stafa eingöngu af eðlilegum launa- og verðlagshækkunum, sbr. orðalag í fjárlagafrv. Í þessu felst að starfslið skuli verða óbreytt að fjölda. M.ö.o., nýjar stöður eru alfarið strikaðar út. Með starfs- og fjárhagsáætlun stofnunarinnar fyrir 1979 fylgdi stjórn- og verkefnaskipulag sem hlotið hefur staðfestingu iðnrn. Er það stefna stofnunarinnar að starfa eftir þessu skipulagi út næsta ár. Í raun er það þegar komið til framkvæmda að öðru leyti en því, að A-deild, sem á m.a. að annast fræðslu og almenna tækni- og rekstrarráðgjöf, er enn óvirk að verulegu leyti vegna óvissu um fjárhagslegt bolmagn á næsta ári og þar með talið svigrúm til ráðningar þriggja lykilmanna deildarinnar. Þetta kemur sér einkar bagalega þar sem stofnunin hefur ekki í starfsliði sínu fólk sem hefur nauðsynlega sérhæfingu í þessi störf, en þarna er einmitt um að ræða lykilverkefni í starfsemi Iðntæknistofnunar.
Því er ekki að leyna, að ofangreind málsmeðferð veldur stjórn Iðntæknistofnunar verulegum vonbrigðum og áhyggjum. Svigrúm til að þróa skipulag og starfsemi Iðntæknistofnunar í átt til markvissrar iðntækniþjónustu, eins og þekkist erlendis, virðist algjörlega út úr myndinni. Jöfnunargjaldstekjustofninn virðist engu breyta. Einstakt tækifæri, sem þessi tekjustofn hefði átt að gefa til að efla tækniþjónustu við iðnaðinn, er látið ónotað.“
Þetta er lítill kafli úr bréfi þessarar stofnunar, sem ég grip niður í meira af tilviljun til þess að sýna fram á hversu óraunhæfur niðurskurður það er sem hin ýmsu rn. leggja til, svo ekki sé talað um þær kúnstir sem viðhafðar hafa verið með jöfnunargjaldið sjálft. Þar blasir við mikill vandi og er ljóst að jöfnunargjaldið, sem sett var á til þess að efla iðnþróun í landinu, hefur verið notað nánast eingöngu til þess að standa undir rekstri ýmissa stofnana í iðnaðinum, eins og hann hefur verið hingað til, og nær því þó hvergi.
Bent hefur verið á það, að lánsfjáráætlun hefur ekki verið lögð fram nú við afgreiðslu fjárlaga. Því var skilmerkilega lofað við 1. umr. fjárlaga og í grg. frv. segir, að þessi lánsfjáráætlun yrði væntanlega lögð fram í nóv. Þetta verður ekki gert og liggur fyrir að lánsfjáráætlun mun ekki verða lögð fram fyrr en eftir áramót. Þetta virðist vera gert að kröfu Alþfl., sbr. yfirlýsingu flokksstjórnarfundar hans sem lesin var í morgun. Þetta eru auðvitað óviðunandi vinnubrögð, alls ekki til fyrirmyndar, vegna þess að það á að vera svo, eins og sem betur fer hefur verið gert undanfarin ár, að lánsfjáráætlun skal lögð fram og samþ. jafnhliða fjárlagafrv. Annað getur ekki talist ábyrg fjárlagaafgreiðsla.
Bent hefur verið á þann tvískinnung sem komið hefur fram hjá hv. stjórnarliði varðandi sjúkratryggingagjaldið og varðandi lyfjakostnað. Á sama tíma sem sjúkratryggingagjald er lækkað um 1300 millj. er gert ráð fyrir að lyfjakostnaður og sérfræðiaðstoð sé greitt af sjúklingunum sjálfum sem nemur um 1 milljarði. Þessi fyrirætlun fyrri ríkisstj, var mjög harðlega gagnrýnd af ýmsum núverandi stjórnarsinnum, enda fór svo, að ekki var horfið til þess ráðs að láta sjúklingana greiða þetta gjald. En nú hefur þessi hæstv. ríkisstj. með köldu blóði tekið upp þetta fyrirkomulag og byggir fjárlagadæmið á því, að þarna náist inn 1 milljarður.
Þá eru nokkur orð út af Lánasjóði ísl. námsmanna. Ég ætla ekki að fara ítarlega út í það mál, svo mjög sem það hefur verið rætt við þessa umr. Ég vil aðeins leyfa mér að draga þær ályktanir af þeim umr. og þeim yfirlýsingum, sem hér hafa verið gefnar, að miðað við að staðið sé við þá áætlun, sem Lánasjóður ísl. námsmanna hefur gert um fé til þess að mæta 85% umframfjárþörf námsmanna, vantar enn verulega upphæð, jafnvel þó að hæstv. menntmrh. hafi lýst yfir að hann muni beita sér fyrir því að 700 millj. verði teknar inn á lánsfjáráætlun. Samkv. upplýsingum stjórnar Lánasjóðs ísl. námsmanna vantar auk þeirra 2200 millj. kr., sem eru inni í fjárlagafrv., og 400 millj. kr., sem er ætlað að taka að láni samkv. frv., enn 600 millj. til að standa undir 85% umframfjárþörfinni. Þar að auki vantar í sjóðinn 200 millj. til að standa undir þeirri skyldu sjóðsins að greiða vegna fjölskyldu og vegna barna námsmanna. M.ö.o., ef þessar tölur eru lagðar saman og tekið síðan tillit til þeirra upplýsinga, sem hæstv. menntmrh. hefur gefið, þá vantar enn rúmlega 100 millj.
Nú hafa hæstv. ráðh. og talsmenn stjórnarinnar afsakað sig með því, að enn stæðu málaferli varðandi fjölskyldur námsmanna og ekki væri hægt að reikna með útgjöldum vegna þeirra að svo stöddu. Það breytir hins vegar ekki því, að í mörg undanfarin ár hefur sú regla verið viðhöfð að taka til greina þá áætlun, sem stjórn lánasjóðsins gerir varðandi næsta fjárlagaár, og áætla fyrir því í fjárlagadæminu. Þær viðbætur, sem komið hafa, m.a. sem afgreiddar voru með endurskoðaðri lánsfjáráætlun 1978 í dag, upp á 230 millj. til lánasjóðsins, stafa eingöngu af gengisfellingu sem þessi hæstv. ríkisstj. stóð fyrir í sept., þannig að það er ekki hægt að afsaka sig með því og klóra í bakkann með því að segja að þetta sé viðbótarfjárveiting vegna vanáætlunar frá fyrra ári. Ég get ekki betur séð en að þessi ríkisstj. og hæstv. menntmrh. ætli að heykjast á því að standa svo að málum sem gert hefur verið undanfarin ár, að mæta fjárþörf lánasjóðsins, 85% umframfjárþörf, í fjárlagadæminu.
Herra forseti. Að síðustu vil ég aðeins vekja athygli á því, að þrátt fyrir margar brtt. af hálfu meiri hl. fjvn. til ýmissa félagsmálaliða svokallaðra, þá er langt frá því að því fyrirheiti hafi verið fullnægt sem gefið var með 1. des. ráðstöfunum ríkisstj. um félagslegar umbætur til handa launþegahreyfingunni. Launþegahreyfingin gaf þar eftir sem nam þrem verðbótastigum í kaupi vegna félagslegra umbóta. Miðað við venjulega útreikninga hefði þetta kostað ríkissjóð 5 milljarða. Um það var talað í fjvn. lengst af, að þessu yrði mætt með því að hækka fjárframlög til félagslegra umbóta, til félagslegra aðgerða um 1 milljarð. Nú er komið á daginn að þessi tala nemur ca. 230 millj. og er þó ýmislegt þar með talið sem vafi leikur á að teljist til félagslegra umbóta. M.ö.o.: þetta fyrirheit, sem gefið var verkalýðshreyfingunni 1. des., hefur algjörlega verið vanefnt. Þannig er staðið að þessari fjárlagaafgreiðslu, þannig stendur ríkisstj. við loforð sín. Hún fær verkalýðshreyfinguna til þess að gefa eftir í launum út á loforð sem síðan eru svikin. Hún afgreiðir þetta fjárlagafrv. með bókhaldskúnstum og með ýmsum slíkum vanefndum til þess að sýna á pappírnum einhvern hugsanlegan tekjuafgang, sem reynist þó engan veginn nægur, og stefnir í tekjuhalla, hvað þá greiðsluhalla.
Ég held að það megi segja um þessa ríkisstj. og þetta fjárlagafrv., að hér er upp skorið eins og til var sáð.