25.10.1978
Efri deild: 8. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (164)
29. mál, Lífeyrissjóður Íslands
Flm. (Guðmundur H. Garðarsson):
Herra forseti. Á 97. löggjafarþingi, í ársbyrjun 1976, lagði ég fram í Nd. frv. til l. um Lífeyrisjóð Íslands. Það frv. var efnislega svipað því sem hér er til umr., en það frv., sem nú er lagt fram, er þó mun ítarlegra. Fyrrnefnt frv. náði ekki fram að ganga og hafnaði í n. Það urðu nokkrar umr. um það í Nd. á sínum tíma og fékk frv. allgóðar undirtektir, en þrátt fyrir það náði það ekki fram að ganga. Að vissu leyti var það skiljanlegt á sínum tíma, vegna þess að hér var á ferðinni frv. til l. sem fól í sér algera umbyltingu í lífeyrismálum þjóðarinnar, hugmyndir sem brutu í bága við fyrri skoðanir og hefðbundnar venjur í þessum efnum. Það var því vart við því að búast, að jafnróttækar breytingar, þótt þær sköpuðu allt annan og betri lífeyrisgrundvöll fyrir meginþorra lífeyrisþega, fengju hljómgrunn hjá útvörðum gamla úrelta kerfisins eða þeim, sem annaðhvort geta ekki eða vilja ekki viðurkenna nauðsyn þeirra breytinga sem hér um ræðir.
Hvað sem því líður hafði frv. um Lífeyrissjóð Íslands, sem lagt var fram árið 1976, mjög mikil áhrif, bæði beint og óbeint:
Í fyrsta lagi færði það mönnum heim sanninn um það, að unnt væri að setja á laggirnar einfatt og réttlátt ellilífeyristryggingakerfi sem tryggði öllum landsmönnum aðgang að verðtryggðum ellilífeyri á grundvelli ævitekna án þess að útgjaldabyrði þjóðarinnar ykist.
Í öðru lagi vísaði frv. vegin um nýjungar í tryggingamálum sem hefðu haft geysilegan sparnað í för með sér í rekstri og útgjöldum vegna þessara mála.
Í þriðja lagi var uppbygging lífeyristryggingakerfisins á grundvelli frv. með þeim hætti, að staða konunnar sem sjálfstæðs aðila var virt að öllu leyti óháð starfi eða stöðu.
Í fjórða lagi hleypti frv. af stað jákvæðum og miklum umræðum um lífeyrismál, — umræðum sem m.a. leiddu til þess, að aðilar vinnumarkaðarins gerðu fyrir milligöngu fyrrv. ríkisstj. með sér samkomulag um auknar ellilífeyrisgreiðslur úr lífeyrissjóðunum. Um var að ræða ákveðna verðtryggingu, sem sagt áfanga að því marki sem frv. þetta gerði ráð fyrir.
Í fimmta lagi varð mönnum ljóst að brýnna aðgerða var þörf í þessum efnum og þá ekki hvað síst vegna þeirra þúsunda manna sem voru utan við þáverandi og núverandi lífeyriskerfi.
Nú er svo komið, að flestallir vilja breytingar til hins betra í þessum efnum og ýmsir gefa loforð um breytingar til hins betra, en fæstir hafa tekið rögg á sig og lagt fram beinar tillögur sem fela í sér framtíðarlausn þessara mála, ef undan er skilið það frv., sem lagt var fram 1976, og það frv., sem hér er nú til umr.
Örugglega koma ýmsar leiðir til greina og skoðanir geta verið skiptar um með hvaða hætti ber að þróa núverandi kerfi með tilliti til framtíðarinnar. Ýmsir vilja hægfara breytingar og lengri tíma aðlögun núverandi kerfis að nýju kerfi sem stefndi í svipaða átt og felst í því frv. sem hér er til umr. Flm. þessa frv., sem eru ásamt mér þeir hv. þm. Oddur Ólafsson, Eyjólfur K. Jónsson og Guðmundur Karlsson, við leggjum hins vegar til að gengið verði beint til verks. Við leggjum til að lífeyriskerfi þjóðarinnar verði án tafar breytt á þann veg, að allir landsmenn njóti verðtryggðs lífeyris á grundvelli ævitekna. Þetta er grundvallaratriði varðandi frv. Jafnframt því verði tryggt að tekjulaust fólk fái ákveðinn, viðunandi lágmarkslífeyri, sem verði einnig verðtryggður. Á sama tíma verði lífeyrissjóðunum, þ.e.a.s. gömlu höfuðstólunum, breytt í lánasjóði til að fullnægja þörf fólks fyrir fjármagn vegna húsnæðismáta og einnig til þess að fullnægja þörfum atvinnuveganna.
Ég mun nú víkja enn frekar að undirbúningi, aðdraganda og efni þessa frv., sem er, eins og fyrr er getið, um lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn. En áður en ég fer nánar í það vil ég vekja athygli hv. þm. á því, að það eru tvær villur í þskj., ekki í frv. sjálfu, heldur í grg. Það er á bls. 17, þar sem stendur fyrir ofan 5. lið, Fæðingarlaun: „Hámarksbarnalífeyrir er 13%“ Það á að vera: „Lágmarksbarnalífeyrir er 13%“ o.s.frv. Og á bls. 22, í 10. línu að ofan, þar sem segir: „Lífeyrissjóðir þessara stétta eru aðeins fimm ára gamlir“ — það á auðvitað að vera: „átta ára gamlir“, því þeir voru stofnaðir árið 1970.
Fyrsti flm. þessa frv. lagði, sem fyrr er getið, fram í ársbyrjun 1976 hliðstætt frv. til l. um Lífeyrissjóð Íslands. Það frv. náði eigi fram að ganga og býr þjóðin því enn við svipað kerfi í lífeyrismálum. Þótt nokkrar breytingar til batnaðar fyrir hluta lífeyrisþega hafi átt sér stað eftir að frv. 1. flm. var lagt fram á sínum tíma, býr meginhluti þjóðarinnar enn við ófullkomið, flókið og ranglátt kerfi. Þetta kerfi fær ekki staðist til lengdar og þúsundir manna eru afskiptar í þessum málum. Nauðsynlegt er að hlutur þessa fólks verði réttur og betra skipulagi komið á skipan þessara mála.
Nokkrar breytingar til bráðabirgða hafa verið gerðar til hins betra á grundvelli samninga aðila vinnumarkaðarins fyrir milligöngu fyrrv. ríkisstj., eins og ég gat um áðan, en án frumkvæðis Alþingis. Fyrsta samkomulag þessa efnis var gert í lok febrúar 1976, og núverandi fyrirkomulag hefur gilt frá júnísamkomulagi aðila vinnumarkaðarins á árinu 1977, og það gildir út árið 1979. Hvað þá tekur við veit enginn enn þá og er slíkt öryggisleysi óþolandi fyrir lífeyrisþegana. Í tengslum við þetta samkomulag voru settar á stofn nefndir sem skyldu gera tillögur um framtíðarskipan þessara mála. Nefndirnar hafa enn ekki skilað áliti, og er ekki að vita hvenær eða hvort sameiginleg niðurstaða fæst.
Með tilliti til þess, að allar meiri háttar breytingar í jafnyfirgripsmiklu máli og hér um ræðir hljóta að eiga sér langan aðdraganda og ekki virðist hilla undir raunhæfar tillögur í þessum málum, hvorki af hálfu fyrrgreindra nefnda né annarra sem gáfu yfirlýsingar um það fyrir síðustu kosningar að þeir mundu beita sér fyrir raunhæfri endurskipulagningu þessara mála, telja flm. þessa frv. nauðsynlegt að leggja fram frv. þetta um lífeyrissjóð sem nær til allra landsmanna. Flm. telja að í frv. felist eina raunhæfa lausnin í grundvallaratriðum á framtíðarskipan lífeyrismálanna. Menn getur greint á um einstök atriði, en við nánari athugun sést að sú leið í lífeyrismálum, sem flm. gera ráð fyrir, tekur ákveðið mið af því skipulagi, sem er á lífeyrismálum í dag, og er eðlilegasta samtenging þess við nýskipan þessara mála.
Þrátt fyrir það er með frv. þessu um Lífeyrissjóð Íslands lagt til að grundvallarbreyting verði gerð á lífeyristryggingakerfi þjóðarinnar. Markmið breytingarinnar er að allir hafi sama rétt til fullnægjandi ellilífeyristrygginga á grundvelli ævitekna, jafnframt því sem tryggt er að allir njóti ákveðins lágmarksellilífeyris sem sé í samræmi við framfærslukostnað og verðlagsþróun á hverjum tíma. Þá er það veigamikið atriði í þessu frv., að það tryggir öllum konum jafnan rétt til ellilífeyris á við karla, óháð því hvert er starf þeirra eða staða í þjóðfélaginu. Þar með er öllum húsmæðrum tryggður fullur réttur til ellilífeyris á við annað vinnandi fólk og lífsstarfi húsmæðra þar með gefið ákveðið verðmætisgildi.
Með frv. er einnig í fyrsta skipti gerð tillaga um að fæðingarlaun séu felld inn í lífeyristryggingakerfið með eðlilegum hætti og Atvinnuleysistryggingasjóður þar með leystur undan þeirri greiðslubyrði sem fæðingarlaunin eru á honum nú.
Við flm. gerum okkur fullkomlega grein fyrir að hér er um viðamikið mál að ræða er krefst nákvæmrar umræðu og samráðs við mikinn fjölda aðila. En með því frv. til l. um Lífeyrissjóð Íslands, sem hér er lagt fram, eru lögð drög að nýrri uppbyggingu þessara mikilvægu trygginga fyrir alla landsmenn. Hljóti frv. hljómgrunn og skilning á hv. Alþ. er þess að vænta, að það taki þeim breytingum í meðförum Alþingis sem nauðsynlegar kunna að teljast til þess að lögin geti komið til framkvæmda 1. jan. 1980, svo sem ráð er fyrir gert í frv.
Flm. telja mikilvægt að eigi sé lengur látið dragast að koma lífeyrissjóðsmálum Íslendinga í viðunandi horf, og vænta þess, að með þessu frv. verði samþ. lög á Alþ. er tryggi þjóðinni heilbrigðar og viðunandi ellilífeyris-, örorku- og barnalífeyristryggingar, auk fæðingarlauna.
Frv. felur í sér þá grundvallarbreytingu frá núverandi trygginga- og lífeyrissjóðakerfi, að í stað svonefnds uppsöfnunarkerfis, er felst í tugum smárra og stórra sjóða, er tekið upp einfalt, en árangursríkt gegnumstreymiskerfi er byggist á iðgjöldum sem ákveðin eru á hverjum tíma í samræmi við tryggingarnar og verðlag er greiðslur eiga sér stað.
Eins og nú háttar safnast upp milljarðar króna í um 100 smáum og stórum lífeyrissjóðum. Verðbólguþróun undangenginna ára og grundvallaratriði í reglugerðum sjóðanna varðandi lengri tíma sjóðmyndun útiloka að hinir svonefndu óverðtryggðu sjóðir geti innt af hendi fullnægjandi lífeyrisgreiðslur. Þrátt fyrir hugmyndir um verðtryggingu á útlánum sjóðanna er fyrirsjáanlegt að það eitt út af fyrir sig mun ekki nægja til að greiða viðunandi ellilífeyri hjá fjölda sjóða. Fé lífeyrissjóðanna brennur því stöðugt í báli verðbólgunnar, en aldrað fólk, komið á ellilífeyrisaldur, situr eftir með sárt enni. Er þetta gjörsamlega óviðunandi ástand.
Af umr., sem fram hafa farið á undanförnum árum, er sýnilegt, að ef Alþ. hefur ekki forustu um að beina þróun þessara mála inn á heilbrigðari og betri brautir, þá mun þjóðin innan tíðar sitja uppi með gjaldþrota lífeyrissjóði og mikinn fjölda lífeyrisþega sem munu búa við mjög kröpp kjör. Mun ég víkja að því síðar í ræðu minni.
Þá vil ég geta þess, áður en ég ræði aths. við lagafrv. og einstakar greinar, að ásamt flm. aðstoðaði dr. Pétur H. Blöndal tryggingafræðingur flm. við tæknileg atriði varðandi það.
Það er nauðsynlegt að hv. alþm. hafi góða mynd af því, hvernig núverandi lífeyristryggingar á Íslandi eru byggðar upp. Segja má að núverandi lífeyristryggingar hvíli einkum á tveimur meginstofnum. Annars vegar er um að ræða greiðslu ellilífeyris úr lífeyristryggingadeild Tryggingastofnunar ríkisins, en hins vegar greiðslur úr nær 100 lífeyrissjóðum sem eru í eigu ýmissa samtaka og félaga. Þá má geta þess, að Umsjónarnefnd eftirlauna, sem starfar eftir lögum 63/1971, gegnir orðið stöðugt meira hlutverki í lífeyristryggingum þjóðarinnar sem þriðji aðili.
Elli- og örorkulífeyrir Tryggingastofnunarinnar er almennur lífeyrir sem allir landsmenn eiga rétt á skv. gildandi lögum. Er um að ræða ákveðinn grunnlífeyri sem hefur verið frá 1. sept. s.l. 47 952 á mánuði. Að auki er sérhverjum elli- og örorkulífeyrisþega veitt ákveðin tekjutrygging til viðbótar við ellilífeyri, ef aðrar tekjur ellilífeyrisþega fara ekki fram úr 297 þús. kr. á ári. Frá 1. sept. í ár hefur óskert tekjutrygging verið 42 882 kr. á mánuði. Þá fá einstaklingar, sem halda eigið heimili, 16 022 kr. sem heimilisuppbót. Ellilífeyrir, óskert tekjutrygging og heimilisuppbót er því nú 106 856 kr. á mánuði fyrir einstakling og 163 500 kr. fyrir hjón. Barnalífeyrir er 24 537 kr. frá sama tíma og fyrrgreindar tryggingar.
Lífeyrisgreiðslur úr hinum einstöku lífeyrissjóðum eru mjög mismunandi og er sameiginlegt einkenni lífeyrissjóðanna það, að lífeyrisgreiðslur eru háðar tekjum lífeyrisþega fyrir töku lífeyris og starfsaldri. Með hvaða hætti lífeyrir er háður tekjum er afar mismunandi eftir sjóðum. Sumir lífeyrissjóðir greiða ákveðinn hundraðshluta af meðaltekjum síðasta starfsárs, aðrir af meðaltekjum síðustu fimm starfsára og enn aðrir taka tekjur yfir lengra tímabil inn í dæmið.
Skipta má lífeyrissjóðunum í tvo meginflokka eftir því, hvort lífeyrisgreiðslur eru varanlega verðtryggðar eða ekki. Meginþorri allra landsmanna er í óverðtryggðum sjóðum, en opinberir starfsmenn, bankamenn og nokkrir aðrir starfshópar í sambærilegri aðstöðu njóta verðtryggðs lífeyris. Gífurlegur aðstöðumunur er á milli lífeyrisþega, er njóta verðtryggðs lífeyris annars vegar, og þeirra, er taka greiðslur úr óverðtryggðum sjóðum hins vegar. Eftir því sem verðbólgan er meiri eykst þessi munur í lífeyrisgreiðslum, og er nú svo komið að í þessu fyrirkomulagi felst gífurlega mikið þjóðfélagslegt ranglæti gagnvart sjóðfélögum óverðtryggðu sjóðanna. Og satt að segja furðar mig á því, að hv. Alþ. skuli ekki hafa fjallað meira um þessi mál en verið hefur, þar sem hér segjumst við allir, svo ég noti þau orð, berjast fyrir réttlætinu til handa þjóðfélagsþegnunum. En því miður hefur áhugi ekki verið mikill á þessu sviði, alla vega ekki sem skyldi.
En um fjárhagslega uppbyggingu hinna einstöku lífeyrissjóða í núverandi kerfi er það að segja, að hún byggist á þeirri meginreglu, að sérhver sjóðfélagi inni af hendi iðgjaldagreiðslur sem í lengri tíma uppsöfnun og ávöxtun, venjulegast á 30 árum, þó eru til dæmi um 10 ára sjóði, nægi til að standa undir væntanlegum lífeyrisgreiðslum til viðkomandi lífeyrissjóðsfélaga. Er því, svo sem fyrr er frá greint, um að ræða söfnunarkerfi.
Í sambandi við ellilífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins á sér ekki stað nein uppsöfnun fjármagns. Árlegar tekjur í formi skatta eru látnar mæta áætluðum útgjöldum vegna þessara þarfa. Hér er því um að ræða gegnumstreymiskerfi, takmarkað, sem allir skattgreiðendur standa að baki á hverjum tíma.
Þá vil ég víkja máli mínu nokkuð að göllum núverandi lífeyrissjóðakerfis, en ég held að þeir séu ekki öllum nægilega vel ljósir.
Óhagstæð verðlagsþróun og mikil verðbólga síðustu ára hefur leitt mjög skýrt í ljós vangetu lífeyrissjóða í núverandi mynd til að standa við skuldbindingar sínar, auk þess sem óréttlæti vegna mismunandi réttar, sem þeir veita, kemur stöðugt skýrar fram. Iðgjöld til lífeyrissjóðanna eru yfirleitt um 10% af dagvinnutekjum félagsmanna. Iðgjaldatími er yfirleitt um 30 ár. Þegar til fullrar lífeyrisgreiðslu kemur við 67 ára aldur hafa sjóðfélagar almennt greitt sem svarar þremur árslaunum í iðgjöld til lífeyrissjóðs. Við 67 ára aldur nú er ólifuð meðalævi um 14 ár. Vegna ákvæða núverandi reglugerða lífeyrissjóðanna, sem gera ráð fyrir að sjóðfélagar fái ellilífeyrisgreiðslur á grundvelli launa síðasta starfsárs eða síðustu starfsára fyrir töku lífeyris, er dæmið mjög alvarlegt í reynd. Ávöxtunarmöguleikar sjóðanna eru bundnir við hæstu leyfilega vexti, sem undanfarin 30–40 ár hafa verið mun lægri en vöxtur verðbólgunnar. Um jákvæða ávöxtun á iðgjöldum hefur því ekki verið að ræða. Eftir því sem næst verður komist nægja iðgjöld lífeyrissjóðsfélaga, sem hefur töku lífeyris núna, varla til að greiða lífeyri hans í 30 mánuði þrátt fyrir hæstu leyfilega vexti.
Það er því augljóst, að lífeyrissjóðirnir í núverandi mynd geta ekki staðið við skuldbindingar sínar og þeir veita lífeyrissjóðsfélögunum ekki fullnægjandi lífeyri. Kemur þetta æ skýrar í ljós eftir því sem sjóðurinn er eldri og ellilífeyrisþegum fjölgar í viðkomandi lífeyrissjóði.
Sem dæmi má taka Lífeyrissjóð ljósmæðra, þar sem sjóðseignin minnkaði í krónutölum árið 1977 og sjóðþurrð blasir við innan örfárra ára. Og þó greiðir Lífeyrissjóður ljósmæðra sjálfur óverðtryggðan lífeyri. Verðtryggingu lífeyris þessa sjóðs greiðir hins vegar ríkissjóður. En það eru ekki allir sjóðir svo vel staddir. Spurningin er því þessi, sem hv. alþm. hljóta að verða að svara, og ég álít að þeir hljóti að verða að gera það á þessu þingi. Þessi mál geta ekki dregist lengur: Hver tekur að sér að greiða lífeyri áfram í þessum og fleiri sjóðum sem líkt er ástatt um þegar gjaldþrot er raunverulega orðin staðreynd?
Þá kem ég að því, að stór hluti landsmanna er enn ekki í lífeyrissjóði. Þrátt fyrir lögskipaða aðild allra launþega að lífeyrissjóði eru mjög margir einungis tryggðir að því er varðar dagvinnutekjur, sem þýðir alvarlega vantryggingu hjá mörgum. Þessi vantrygging landsmanna sést best á því, að heildartekjur árið 1977 skv. skattframtölum voru um 237 milljarðar, en iðgjald til lífeyrissjóða, yfirleitt 10% eins og ég gat um áðan, er áætlað 11 milljarðar, þ.e.a.s. til sjóðanna allra. Þannig hefur ekki verið greitt til lífeyrissjóða af 127 milljörðum eða 54% af brúttótekjum. Það er vegna þess að það er yfirleitt greitt af dagvinnutekjum. Þetta hins vegar vekur umhugsun um önnur atriði sem eru að vísu óskyld þessu efni, en væri mjög fróðlegt fyrir hv. þm. að ræða um.
Verðtryggðir sjóðir hins opinbera vernda hins vegar sjóðfélaga sína varanlega gegn verðbólgunni. Hið sama gildir ekki um sjóðfélaga hinna óverðtryggðu sjóða. Þeir búa við ákveðið bráðabirgðaástand, auk hins mikla misréttis sem það hefur í för með sér. Getur þetta tvöfalda kerfi misréttis í ellilífeyrisgreiðslum haft afar óæskileg áhrif á eðlilegt streymi fólks milli starfsgreina. Það mætti hugsa sér það, og ég held að það sé því miður staðreynd, að núverandi fyrirkomulag verki eins og hvati á fólk að leita eftir atvinnu hjá hinu opinbera, sem veitir það mikla afkomuöryggi í ellinni sem verðtryggður lífeyrir er.
Lífeyrisgreiðslur til sjóðsfélaga verðtryggðu lífeyrissjóðanna taka hlutfallslegum breytingum í samræmi við umsamdar launabreytingar í þeim launaflokki sem viðkomandi bjó við þegar taka ellilífeyris hófst. Segir það sína sögu þegar menn hverfa frá störfum í atvinnulífinu til hins opinbera þegar þeir eiga eftir örfá ár til þess að taka ellilífeyri.
Ég vil árétta það enn frekar, sem ég sagði í upphafi míns máls, að eftir að frv. svipaðs eðlis var lagt fram í ársbyrjun 1976 voru í kjarasamningum í febrúarlok 1976 og í júní 1977 gerðar leiðréttingar til bráðabirgða, sem leiðrétta stöðu þeirra sem eru í óverðtryggðum lífeyrissjóði, en aðeins út árið 1979. Hvað þá tekur við er mjög óljóst. Ýmsar hugmyndir eru uppi um stofnun samtryggingakerfis lífeyrissjóðanna sem þróist í einn lífeyrissjóð er stundir líða. Hætt er við að erfiðleikar við slíkt kerfi verði óyfirstíganlegir og reglur um lífeyrisgreiðslur verði það flóknar að lífeyrisþegarnir skilji ekki neitt í neinu, eins og reyndar er orðið nú þegar með samspil lífeyris frá lífeyrissjóði og vegna samstarfssamnings lífeyrissjóða, vegna þátttöku Umsjónarnefndar og svo Tryggingastofnunar. Þetta kerfi allt er mjög flókið og það er einn meginókosturinn, fyrir utan náttúrlega þau réttlætisatriði sem ég gat um áðan með núverandi kerfi. Auk þess fær þetta, að áliti sérfróðra manna og þeirra sem hafa reynt að kynna sér þessi mál vel, ekki staðist til lengdar af margvíslegum ástæðum, svo sem vegna neikvæðrar ávöxtunar á fé sjóðanna og einnig vegna misræmis milli iðgjalda og lífeyris.
Enn er það svo, að þrátt fyrir þá staðreynd, að allir launþegar greiða sem svarar 10% af launum sínum til lífeyrissjóðs, greiðir Tryggingastofnun ríkisins bróðurhlutann af öllu lífeyrisgreiðslum. Árið 1977 voru þessar greiðslur um það bil 12 milljarðar á móti rúmum 3 milljörðum sem komu frá lífeyrissjóðunum. En ég mun víkja nánar að því, hvað þetta kerfi allt er skakkt og ég vil segja vitlaust, því að ég mun flytja þm. hér tölur um eignir og tekjur og ráðstöfunarfé sjóðanna.
Tæpir 11 milljarðar af lífeyrisgreiðslum Tryggingastofnunar voru framlag ríkisins eða ríkissjóðs, þ.e.a.s. skattborgaranna. Til þess að mæta þessum greiðslum þarf árlega að skattleggja landsmenn sérstaklega. Við aukna verðbólgu og fjölgun ellilífeyrisþega verður slík skattlagning jafnt og þétt erfiðari, jafnframt því sem 10% af svo til öllum launagreiðslum í landinu fara í uppsöfnun fjármagns í lífeyrissjóðunum. Tiltölulega lítill hluti þessa fjármagns fer í ellilífeyrisgreiðslur, eins og ég gat um áðan, og það er skoðun mín og okkar flm., að íslenskar aðstæður þoli ekki þetta tvöfalda álag vegna tryggingarmála með það gífurlega ósamræmi sem þarna á sér stað í tilflutningi fjármagns. Og það er tímaspursmál hvenær það hrynur til grunna af peningalegum eða félagslegum ástæðum, og er það þegar farið að koma í ljós í sambandi við einstaka sjóði, eins og ég vék að áðan.
Félagslegar og stjórnunarlegar afleiðingar þessarar þróunar ættu að vera sérhverjum manni augljósar sem þekkir eitthvað til afkomu alþýðu manna, atvinnuvega eða peningakerfisins. Það er gersamlega óviðunandi að skylda fólk til mikils sparnaðar, lána því svo eigið fé með háum vöxtum og greiða að lokum ófullnægjandi ellilífeyri til lífeyrissjóðsfélaga sem eru búnir að greiða í 20–30 ár í viðkomandi sjóð. Slíkt kerfi stenst ekki og mundi einhvers staðar vera kallað svínarí. Þess vegna ber hið fyrsta að hverfa frá núverandi söfnunarkerfi og taka upp nýtt lífeyrisgreiðslukerfi sem mætir þörfum tryggingarþega miðað við hinar hröðu og óvissu breytingar sem hafa verið og eru í efnahags- og peningalífi þjóðarinnar. Jafnframt þurfa allir landsmenn að njóta sama réttar til ellilífeyris á grundvelli ævitekna og tekjuhlutfalls, óháð því hvar þeir starfa. Þá eiga allar konur að njóta fulls og sama réttar til ellilífeyrisgreiðslna án tillits til stöðu, eins og ég gat um í upphafi máls míns, en í fullu samræmi við ævitekjur, sem geta verið annað tveggja til orðnar vegna vinnu utan heimilis eða innan þess. Sú kerfisbreyting í lífeyrismálum, sem hér er gerð tillaga um, tryggir konum, er vinna heimilisstörf, ellilífeyri á grundvelli tekna heimilisins. Felur það í sér mikla og sjálfsagða réttarbót og því misrétti útrýmt sem ríkt hefur í þessum efnum. Vísa ég til þeirra útreikninga, sem fylgja með frv. um það, með hvaða hætti þetta getur gerst.
Það er svo sjálfsagt og eðlilegt mál, með tilliti til þess álagningargrundvallar, sem þetta kerfi gerir ráð fyrir, gegnumstreymiskerfis, en það byggist á tekjum manna á hverjum tíma, að ellilífeyrir miðist við ævitekjur. En frv. gerir ráð fyrir ákveðnu lágmarki og ákveðnu hámarki, enginn fer upp fyrir ákveðið þak og þakið er margfeldi lágmarksins. Gerir frv. ráð fyrir að það sé þrefalt, en ég kem að því nánar á eftir.
Í stuttu máli má segja að markmið frv. í meginatriðum séu þessi:
1) Að tryggja öllum, sem eru komnir á ellilífeyrisaldur, að lokinni starfsævi viðundandi og mannsæmandi lífsviðurværi.
2) Að veita örorkulífeyrisþegum öryggi og viðunandi tryggingarbætur.
3) Að auka barnalífeyri og bæta aðstöðu þeirra sem verr eru settir í þjóðfélaginu.
4) Að tryggja konum fæðingarlaun.
5) Að einfalda lífeyriskerfi þjóðarinnar og útrýma misrétti.
Við framkvæmd frv. sem þessa vakna að sjálfsögðu upp margar spurningar. Hvað telst vera starfsævi og hvenær er henni lokið? Hvað er viðundandi lífsviðurværi? Hvernig er unnt að meta vinnuframlag einstaklings og hvernig á að tengja lífeyri þessu framlagi o.s.frv.? Afbrigði hljóta að vera mörg, en meginreglan hlýtur að vera sú, að viðmiðanir byggist á því er lýtur að meðaleinstaklingi. Almennt hlýtur að mega líta svo á, að starfsævi einstaklinga hefjist við 16 ára aldur, hvort sem starfið er fólgið í námi eða annarri vinnu. Samkv. reglugerðum flestallra lífeyrissjóða hefjast iðgjaldagreiðslur við 16 ára aldur. Hvenær starfsævi lýkur hlýtur ávallt að vera mjög einstaklingsbundið. Sumir halda starfsþreki til sextugs — eða skemur ef veikindi eða slys ber að höndum, en aðrir allt til áttræðs. Hin almenna regla í reglugerðum lífeyrissjóðanna er nú að miða við það, að taka ellilífeyris hefjist við 67 ára aldur. Hins vegar er gert ráð fyrir, að taka ellilífeyris geti hafist síðar, til þess að koma til móts við óskir og þarfir einstaklinga er þannig kann að vera ástatt um, að þeir vilji gegna fullu starfi lengur og ávinna sér meiri ellilífeyrisréttindi.
Viðunandi lífsviðurværi getur verið mjög teygjanlegt hugtak og getur menn greint á um það. Ljóst er þó að þarfir einstaklings að lokinni starfsævi eru aðrar og minni en þess sem er á miðri ævi. Hann þarf ekki að standa straum af kostnaði vegna atvinnu, umsvif eru minni, framfærslu barna er lokið o.s.frv. Með tilliti til þessa hefur verið talið hæfilegt að áætla að einstaklingur þurfi um 60% af meðaltekjum sínum um ævina til viðunandi lífsviðurværis á núgildi þegar ellilífeyristaka hefst, lífeyririnn verði síðan verðtryggður samkv. þeim hugmyndum sem frv. segir til um og ég vík að hér á eftir.
Þá er rétt að víkja að því, að margir tæknilegir örðugleikar eru á því að meta vinnuframlag einstaklings til þjóðarbúsins og hvernig lífeyrir skuli vera háður því. Verðbólga og hagsveiflur útiloka að unnt sé að meta vinnuframlag beint út frá tekjum einstaklings á hverjum tíma. Þetta vandamál má leysa með því að tengja tekjur ákveðnum vísitölum, t.d. með því að finna hlutfall tekna einstaklingsins og meðaltekna allra landsmanna. En þá rísa aftur upp vandamál vegna tekjulausra stétta. Sérhver viðleitni til að meta vinnuframlag þessara hópa krefst þess vegna flókinna reglna, en flóknar reglur fela oft í sér hættu á misnotkun. Þess vegna er í þessu frv. stuðst við reglur um upphæð lífeyris, sem eru einfaldar í framkvæmd og gefa allgóða mynd af vinnuframlagi einstaklingsins til þ jóðfélagsins. Að auki hafa þessar reglur í sér fólgnar lágmarks- og hámarkslífeyrisgreiðslur. Með þessum hætti er leitast við að stuðla að sanngjarnri tekjudreifingu gagnvart ellilífeyrisþegum.
Ég vil þá víkja nokkuð að lífeyrisgreiðslum og lágmarksellilífeyri og útskýra nokkuð þann reikningslega grundvöll sem felst í því sem frv. gerir ráð fyrir í sambandi við þessar greiðslur.
Þá er þess fyrst að geta, að lífeyrisgreiðsla samkv. frv. er háð tveim atriðum. Í fyrsta lagi byggist greiðsla á tekjum einstaklings um ævina og er lífeyrisprósentan mælikvarði á vinnuframlag hans. í öðru lagi er greiðslan háð svokölluðum vísitekjum, þ.e. verðtryggingu. Lífeyrisprósentan er meðaltal tekjuhlutfalla einstaklings um starfsævina leiðréttra. Prósentan er því mælikvarði á það, hvað einstaklingurinn hefur haft að meðaltali í tekjur um ævina samanborðið við samtíðarmenn sína, og vísa ég til þess, sem segir um þetta í frv. frá og með bls. 14, þar sem hv. þm. sjá útreikningana.
Leiðrétting tekjuhlutfallanna, hækkun í 0.5 eða lækkun í 3.0, ef þau eru undir 0.5 eða yfir 3.0, er tilraun — ég endurtek: er tilraun til að meta vinnuframlag hinna tekjulitlu eða tekjulausu, og um leið stuðlar hún að tekjujöfnun, því að þeir, sem hafa mjög háar tekjur, greiða af lífeyri sínum til hinna sem eru mjög tekjulágir. Þetta á að tryggja að enginn fái lægri lífeyri en sem nemur 30% af vísitekjum eða helming meðallífeyris.
Samkv. þessu frv. og eins og útreikningar bera með sér skipta hjón með sér þeim lífeyrisréttindum sem þau afla í sambúðinni, enda er erfitt að meta sérstaklega vinnuframlag þess, er vinnur á heimilinu, og hins aðilans, sem aflar tekna utan heimilisins. Um það hljóta allir að vera sammála í nútímaþjóðfélagi. Þessi tilhögun stuðlar að frekara jafnrétti kynjanna, þar sem húsmóðirin hefur til þessa búið við skarðan hlut. Með hliðsjón af þessu er óþarft að hafa sérstök ákvæði um makalífeyri í frv.
Á grundvelli skattframtala er tekjuhlutfallið fundið út. Þetta fyrirkomulag hlýtur að stuðla að því, að skattframtöl verði nákvæmari.
Með vísitekjum er gerð tilraun til að meta meðaltekjur á hverjum tíma til þess að lífeyrir hækki í hlutfalli við aðrar tekjur. Lífeyrisþegar eiga með þessum hætti að vera tryggðir gegn áhrifum verðlagshækkana og verðbólgu.
Það, að lífeyrisprósentan í elli- og örorkulífeyri er ævitekjuhlutfallið margfaldað með 60%, þýðir að ellilífeyrisþeginn fær 60% af meðaltekjum sínum verðtryggð í lífeyri. Sá, sem aldrei hefur haft neinar tekjur, fær ævitekjuhlutfallið 0.5 og þar með lífeyri sem er 30% af meðaltekjum á hverjum tíma.
Ég held að ég fari nú ekki mjög mikið út í reikningsleg atriði í sambandi við þetta frv. Þó er nauðsynlegt að fjalla um þessi atriði nokkuð til þess að grundvallarhugsun þess komi fram, og einnig er nauðsynlegt að drepa hér örlítið á þau dæmi sem eru tekin til þess að gefa einhverja hugmynd um hvernig lífeyrisgreiðslur yrðu samkv. þessu frv. Forsendur þeirra útreikninga hafa fengist með þeim hætti sem hér segir:
Við útreikningana er stuðst við gróft mat á vísitekjum í okt. 1978, þannig að allar tölur, sem með þessu frv. eru, eru færðar upp til dagsins í dag. Samkv. upplýsingum Ólafs Davíðssonar hagfræðings hjá Þjóðhagsstofnun munu brúttótekjur hafa verið 237 milljarðar og 364 millj. kr. samkv. framtölum árið 1977. Tala framteljenda var 112 870. Þar af voru giftir 44 032. Ekki er kunnur fjöldi lífeyrisþega né tekjur þeirra. Þó má álykta út frá tölum ársins 1976, en þá var fjöldi lífeyrisþega (framteljenda)13 436 og höfðu þeir 9343 millj. kr. í tekjur. Sé gert ráð fyrir fjölgun þeirra um 2% og sömu hækkun á tekjum þeirra og almennt, má áætla að þeir hafi verið 13 700 árið 1977 og hafi haft um það bil 13 900 mill j. kr. í tekjur. Þannig má áætla að fjöldi framteljenda á aldrinum 16– 66 ára hafi verið 137 850 árið 1977 og hafi haft að meðaltali í tekjur árið 1977 1621 þús. kr. Vísitala framfærslukostnaðarhækkaði um 59% frá 1. júlí 1977 til 1. okt. 1978. Vísitekjur samkv. 17. gr. voru því nálægt 2 millj. 580 þús. kr. í okt. í ár, þ.e.a.s. núna, eða 215 þús. kr. á mánuði. Þetta eru hinar reikningslegu forsendur eða grundvöllur þeirra útreikninga sem dæmin eru byggð á sem hv. þm. sjá á bls. 14, 15, 16 og 17 í meðfylgjandi frv.
Svo að farið sé fljótt yfir sögu í þessum dæmum, en þau skýra sig vel sjálf, sést að launamaður, einhleypur, sem er með ævitekjuhlutfallið 1 fengi samkv. framangreindu 129 þús. kr. í ellilífeyri á mánuði. Launamaður með tekjuhlutfall á grundvelli fyrra dæmis, sem væri kvæntur, fengi ellilífeyri sem væri 104 þús., en eiginkonan 99 þús., en samtals fengju hjónin 203 þús. kr. á mánuði. Launamaður samkv. þriðja dæmi, þar sem bæði hjónin eru útivinnandi, en eiginkonan var við heimilisstörf fyrstu 5 árin eftir giftingu, — Samanlagður lífeyrir slíkra hjóna yrði um 249 þús. kr. á mánuði miðað við núgildi. Svona mætti áfram telja, en ég vísa til þeirra dæma sem koma fram í grg. með frv.
Hæsta greiðsla í sambandi við ellilífeyri á grundvelli þessara útreikninga, sem ég geri ráð fyrir að hv. þm. hljóti að vilja kynna sér vel, — hæsta lífeyrisgreiðsla til hjóna, þar sem um væri að ræða hjón sem hefðu unnið úti allan tímann og bæði verið í góðri stöðu, yrði 393 þús. kr. á mánuði. Geri ég ráð fyrir að það sé fyrir neðan það sem sumir hafa nú í dag sem taka ellilífeyri úr mörgum lífeyrissjóðum og það verðtryggðum. En ég ætla ekki að ræða um þann ósóma í sambandi við þetta frv. Mér finnst það vanhelga málið að þurfa að minnast á það, að hv. alþm. hafi ekki leiðrétt þau mál fyrir löngu, þar sem það lýtur því miður að allt of mörgum sem hafa gengið í gegnum þessa stofnun. En sem sagt, með þessu atriði er verið að reyna að þjóna réttlæti og tekjujöfnuði og koma í veg fyrir að menn taki ellilífeyri úr mörgum verðtryggðum sjóðum, þeir taki hann úr einum sjóði og enginn hafi meira en þrefeldi lágmarksins.
Um fæðingarlaun get ég verið stuttorður. Hér er fyrst og fremst um það að ræða að færa fæðingarlaunin frá Atvinnuleysistryggingasjóði yfir í tryggingakerfið, með að sjálfsögðu ákveðnum leiðréttingum sem eru til bóta og tryggja betur stöðu kvenna sem við slíkt ástand búa sem hér um ræðir. En á grundvelli núgildandi laga eru þessar tryggingar ekki fullnægjandi. Þær eru því miður allt of skertar.
Þá vil ég víkja örfáum orðum að iðgjaldagreiðslum. Grundvallaratriði þessa frv. varðandi tekjuöflun til þess að fullnægja þeim tryggingarskuldbindingum, sem í frv. felast, er að á hverjum tíma sé lagt á iðgjald sem mæti þeim tryggingargreiðslum sem lífeyrissjóðurinn á að inna af hendi. Tryggingafræðingum yrði falið það verkefni sérstaklega að reikna út iðgjaldið á grundvelli tölfræðilegra upplýsinga þar að lútandi.
Samkv. frv. er gert ráð fyrir að iðgjald til Lífeyrissjóðsins verði ákveðin prósenta af heildartekjum einstaklings. Þetta verður að teljast eðlilegt þar sem lífeyrir er einnig háður heildartekjum. Þá er sá háttar á hafður, að viðkomandi einstaklingur greiði allt iðgjaldið sjálfur, en ekki vinnuveitendur að hluta eins og nú tíðkast. Hins vegar er gert ráð fyrir því — og ég undirstrika það — að laun hækki sem nemur iðgjaldaprósentu vinnuveitandans í núverandi kerfi lífeyrissjóða, þannig að dæmið gengur upp. Í dag mun hin almenna regla um greiðslu iðgjalda í lífeyrissjóðina vera sú, að vinnuveitandi greiði 6% af launum viðkomandi starfsmanns, en starfsmaður sjálfur 4%, eða báðir samtals 10%. Þó eru dæmi þess, að iðgjaldagreiðslur séu hærri, svo sem hv. þm. vita. Þessi háttur á iðgjaldagreiðslu er eðlilegri en sá að hafa iðgjaldagreiðsluna tvískipta, auk þess sem hann gefur viðkomandi mönnum betra tækifæri til að fylgjast með þróun þessara mála og hugsanlegum breytingum. Þá mun iðgjaldið verða að fullu frádráttarbært til skatts hjá viðkomandi einstaklingi eins og nú er með hans eigin greiðslu.
Ég held að ég fari ekki út í að ræða um þá útreikninga sem lúta að iðgjaldaprósentu. Þeir eru augljósir. Ég vísa til þess sem stendur á bls. 18 í grg. með frv. varðandi útreikningana. En í stuttu máli er það að segja, að á grundvelli þeirra forsendna, sem þar eru gefnar, og þess, sem fyrr hefur verið sagt, má búast við að væntanlegt iðgjald vegna þeirra trygginga, sem þetta frv. nær til, þyrfti að vera 12.2% af heildartekjum allra einstaklinga í landinu.
Þá mun ég víkja að öðru atriði sem hefur geysimikla þýðingu í tengslum við þetta mál. Það er það atriði, að raunverulega væri hægt að létta af öllum skattgreiðendum tekjuskattinum, ef þetta frv. næði fram að ganga og sá háttur væri upp tekinn sem það gerir ráð fyrir.
Ég vek athygli á því aftur, að nú greiða vinnuveitendur 6% í hina ýmsu lífeyrissjóði vegna starfsmanna sinna og óbeint 1.5% til Tryggingastofnunarinnar. Launafólk greiðir sjálft beint í lífeyrissjóðinn 4% af dagvinnutekjum. Auk þess greiða þessir aðilar sameiginlega háar upphæðir í formi skatta til Tryggingastofnunar til að mæta ellilífeyris-, örorku- og barnalífeyrisgreiðslum.
Ef við lítum á reikninga Tryggingastofnunar ríkisins kemur í ljós eftirfarandi fyrir árið 1977 — þarna er greint frá tölum á árinu 1972, en ég tek árið 1977 sérstaklega: Bætur vegna elli, örorku og dauða voru 12 milljarðar 211 millj. kr. Tekjur sama tímabil voru: Iðgjöld atvinnurekenda 1 milljarður 829 þús. kr., framlag ríkissjóðs, þ.e.a.s. skattlagning, 10 milljarðar 790 millj. kr., samtals 12 milljarðar 619 millj. kr. Ef frv. þetta um Lífeyrissjóð Íslands verður að lögum fellur stór hluti framangreindra iðgjaldagreiðslna niður sem og framlög ríkissjóðs, en í þess stað mætir reiknuð iðgjaldaprósenta þeim tryggingargreiðslum sem hér um ræðir.
Þá vil ég fara örfáum orðum um núverandi lífeyrissjóði, iðgjöld og lífeyrisgreiðslur.
Á síðustu árum hafa eignir lífeyrissjóða vaxið hröðum skrefum. Meginástæða hinnar miklu aukningar var auðvitað stofnun almennu lífeyrissjóðanna sem hófu starfsemi sína 1. jan. 1970 á grundvelli samnings aðila vinnumarkaðarins frá 19. maí 1969. Við það bættust um 25 þús. manns við hóp starfandi sjóðfélaga. Fyrir voru sjóðfélagar í öðrum sjóðum sem hér segir: Í lögboðnum lífeyrissjóðum 11500, í sjóðum einstakra fyrirtækja og stéttarfélaga utan ASÍ 1500, í sjóðum einstakra fyrirtækja og stéttarfélaga innan ASÍ 7000, samtals 20000. — Ég vil leyfa mér að gera þá leiðréttingu við 9. lið, þar sem segir: „Á síðustu 5 árum“ — það á að vera: „Á síðustu 8 árum.“
Fjöldi lífeyrissjóðsfélaga í ársbyrjun 1970 mun því hafa verið um 45 þús. manns. Ekki liggja fyrir óyggjandi tölur um fjölda lífeyrissjóðsfélaga í öllum lífeyrissjóðum landsmanna í dag. En segja má að meginþorri þess fólks, sem er í stéttarfélögum innan ASÍ, séu aðilar að einhverjum lífeyrissjóði og sumir að mörgum. Þá er bankastarfsfólk og starfsmenn hins opinbera — ríkis, bæjar- og sveitarfélaga — aðilar að lífeyrissjóðum o.s.frv.
Enn sem komið er hefur ekki verið komið á fót stofnun sem safnar nákvæmum upplýsingum um þróun og starfsemi lífeyrissjóða. Af þeirri stæðu er erfitt um vik að birta nýjar og haldgóðar tölfræðilegar upplýsingar um sjóðina. Á síðustu árum hefur þó Seðlabanki Íslands reynt að safna saman upplýsingum um sjóðina. Hefur bankinn síðan birt þær reglulega í Hagtölum mánaðarins. Þá vinnur Samband almennra lífeyrissjóða, sem er samband flestra lífeyrissjóða aðildarfélaga ASÍ, að upplýsingasöfnun um þessa sjóði. Landssamband lífeyrissjóða, sem er myndað af flestum eldri sjóðum atvinnulífsins og sjóðum sveitarfélaga, innir af hendi hliðstætt starf fyrir aðildarsjóði sína.
Samkv. upplýsingum frá þessum aðilum munu eignir lífeyrissjóða landsmanna hafa verið í árslok 1977 um 42 milljarðar kr. Ráðstöfunarfé þessara sömu sjóða á sama ári mun hafa verið um 12 milljarðar 450 millj. Iðgjöld munu hafa verið um 11 milljarðar, lífeyrisgreiðslur um 3 milljarðar og 350 millj.
Ég vek athygli hv. þm. á því, ef litið er á töflur á bls. 20 og 21 yfir eignir, ráðstöfunarfé, iðgjöld og lífeyrisgreiðslur, hvað aukningin er geysilega mikil núna síðustu 2–3 árin. Og þessi aukning á eftir að verða enn meiri á næstu árum.
Ef við lítum á það, hvernig þetta fé er nýtt með tilliti til þeirra trygginga sem hér um ræðir, þá kemur í ljós að lífeyrisgreiðslur sem prósentuhluti af eignum sjóðanna var á árinu 1977 aðeins 7.98%. Sé aftur litið á þetta sem prósentuhluta af iðgjöldum sjóðanna er það um 30.45%, og sé litið á það sem hluta af ráðstöfunarfé, þá er það 26.91% árið 1977. Ef lítið er á tölurnar í heild sést að þessar hlutfallstölur taka yfirleitt ekki miklum breytingum.
Af þessu sést greinilega að um 1/4 hluta árlegra tekna sjóðanna er varið til lífeyrisgreiðslna, en aðeins 6–7% miðað við heildareignir þeirra. Legg ég áherslu á það vegna þess sem á eftir kemur í sambandi við þá hugmynd að breyta núverandi lífeyrissjóðum, í lánasjóði eftir að ákveðnar iðgjaldagreiðslur, sem væru nokkurs konar stofnframlag í nýja sjóðinn, hefðu verið dregnar frá. En þess vegna er það augljóst mál, að meginhluta fjármagns lífeyrissjóðanna í dag er varið til útlána og er stór hluti lánanna óverðtryggður. Þó varð nokkur breyting á þessu til batnaðar eftir að frv. um skuldbindingu lífeyrissjóða til að verðtryggja um 40% af ráðstöfunarfé sínu var samþykkt hér á hv. Alþ. í des. s.l.
Fyrrnefndar meðaltölur segja þó mjög takmarkaða sögu um raunverulegar lífeyrisgreiðslur einstakra sjóða. Eru þær afar mismunandi og stafar af því, að áunnin réttindi eru misjafnlega mikil með tilliti til aldurs sjóðanna og mögulegrar aðildar fólks að þeim. Vil ég vekja sérstaka athygli hv. þm. á þessu vegna þeirra umr. sem ég geri ráð fyrir að eigi eftir að verða á hv. þingi í vetur um þessi mál, bæði í tengslum við þetta frv. og væntanlega aðrar hugmyndir sem lagðar verða fram á þessu þingi. Vara ég alvarlega við því, að menn taki ekki tillit til sjóðanna í þeirri mynd, sem þeir eru í dag, og þess hugsanlega vilja fólksins, sem hefur myndað þessa sjóði, um frekari notkun þeirra í framtíðinni.
Sem dæmi má nefna — og ég vil undirstrika það — að sumir hafa farið fyrr í það að stofna lífeyrissjóð en aðrir. Það fólk, sem hóf gönguna á undan öðrum, á fullan rétt til þeirra eigna sem það hefur myndað í lífeyrissjóðunum. þannig að allar hugmyndir, sem síðar kynnu að koma fram um hægfara þróun í þessu máli sem fæli í sér óbeina þjóðnýtingu eða eyðingu þeirra eigna sem viðkomandi fólk á í þessum sjóðum, hljóta að vera forkastanlegar.
Ég vek athygli á því, að starfsmenn samvinnuhreyfingarinnar á Íslandi stofnuðu með sér lífeyrissjóð þegar á árinu 1939. Ég vek athygli á því, að verslunarfólk og fólk, sem vinnur við þjónustustörf, stofnaði sinn lífeyrissjóð árið 1956. Almennu sjóðirnir komu hins vegar ekki til skjalanna fyrr en 1970. Og þá er vert að vekja athygli á því, að aldursskipting milli einstakra stétta er mjög mismunandi. Í hinum svonefndu nýju stéttum, sem myndast hafa um og eftir 1940, þ.e.a.s. eftir að Ísland þróaðist í það að verða nútímaþjóðfélag í merkingu þess orðs — í þessum svonefndu nýju stéttum sem þróuðust upp úr þeirri byltingu sem varð í íslensku atvinnulífi og þjóðfélagi um 1940, er tiltölulega ungt fólk. Fjölgun í þeim hefur mest orðið á síðustu tveim áratugum. Hið sama má segja um ýmsa hópa menntamanna og sérfræðinga. Mikið fé safnast fyrir í þessum sjóðum og er greiðslubyrði þeirra vegna lífeyristrygginga lítil. Hins vegar er mikill fjöldi fólks úr eldri starfsstéttum, eins og t.d. verkamenn og verkakonur, nú þegar kominn á ellilífeyrisaldur, en þetta fólk er með tiltölulega nýja lífeyrissjóði. Þeir eru aðeins 8 ára. Þessir sjóðir greiða þess vegna sáralítinn lífeyri til þessa fólks. Þar við bætist að það fólk, sem myndar meginkjarnann í hinum almennu lífeyrissjóðum verkafólks og eldri starfsstétta, er tiltölulega fullorðið fólk. Greiðslubyrði þessara lífeyrissjóða getur því orðið mikil innan tíðar og óvíst hvort þeir geta staðið við skuldbindingar sínar í óbreyttu formi og enn síður ef þeir yrðu að greiða verðtryggðan ellilífeyri.
Með samkomulaginu frá því 1976 tóku aðrir sjóðir þátt í að greiða verðtryggingu þessara sjóða. Og það var ekki óeðlilegt með tilliti til þess, að forustumenn þeirra sterku sjóða, sem yngra fólkið myndar, leit á það sem algert bráðabrigðaástand, — sem mundi ekki vara lengur en til ársloka 1979, enda lá það fyrir til síðustu alþingiskosninga, að þáv. ríkisstj. var búin að láta vinna í nefnd hugmyndauppkast að lagafrv. sem hefði verið lagt fyrir þetta þing nú í upphafi ef þeirri stjórn hefði enst aldur. Þetta frv. gerði ráð fyrir því, að nýtt kerfi tæki við árið 1980 og byggðist m.a. á ákveðnu gegnumstreymi.
Til þess að skýra enn betur, hvað átt er við þegar talað er um gömlu sjóðina og nýju sjóðina og aldursskiptingu og aldursdreifingu, vil ég skýra frá því, að árið 1976 voru iðgjaldagreiðslur til Lífeyrissjóðs verslunarmanna 73% hærri en iðgjaldagreiðslur til Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar sem er samt mjög stór sjóður. Aftur á móti var uppbótin vegna samkomulags lífeyrissjóðanna 620% hærri fyrir lífeyrisþega Dagsbrúnar en til lífeyrisþega sem heyra undir Lífeyrissjóð verslunarmanna. Þannig skiptir aldursdreifing hinna einstöku sjóða verulega miklu máli í þessu sambandi. En það þýðir aftur á móti ekki að hægt sé að ganga algerlega á stofn þessara sjóða með slíkri eignatilfærslu eins og gert hefur verið að vissu leyti frá því 1976, því að sú tilfærsla á sér ákveðin takmörk.
Þá vil ég víkja sérstaklega að þeim kafla, sem heitir: „Breyting núverandi lífeyrissjóða í lánasjóði“, en sá kafli hefur tekið mestum breytingum frá því frv. sem ég lagði fram í ársbyrjun 1976. Tel ég þann kafla og þær greinar lagafrv. hvað mikilsverðastar í þessu nýja frv. auk þeirra atriða sem ég hef þegar fjallað um.
Núverandi lífeyrissjóðir eru myndaðir af iðgjöldum sjóðfélaga með sameiginlegum greiðslum vinnuveitenda 6% og starfsmanna 4% eða samtals 10% af launum. Hér er um lögverndaðan sparnað að ræða. Með stofnun Lífeyrissjóðs Íslands á gegnumstreymisgrundvelli, þar sem álögð iðgjöld mæta raunverulegri tryggingaþörf á hverjum tíma, þarf að taka afstöðu til þeirrar uppsöfnunar fjármagns sem átt hefur sér stað í núverandi lífeyrissjóði. Lífeyrissjóður Íslands samkv. þessu frv. mun í framtíðinni greiða öllum landsmönnum lífeyri, ef frv. þetta verður samþykkt og í flestum tilfellum mun hærri lífeyri en núverandi sjóðir gera. Því þykir ekki rétt að mati flm. að láta sjóðina renna inn í væntanlegan lífeyrissjóð, heldur verði þeim breytt í lánasjóði í vörslu og eigu þeirra aðila, sem hafa myndað sjóðina, og þá með þeim fyrirvara, að gert er ráð fyrir því í 18. gr. frv., að lífeyrissjóðirnir greiði stofnframlag sem svarar 5 mánaða iðgjaldatekjum.
Núverandi lífeyrissjóðir gegna veigamiklu hlutverki í peningakerfi þjóðarinnar — það er staðreynd — auk þess sem þeir hafa geysimikla þýðingu í húsnæðismálum. Það er stefna flm. þessa frv., að ekkert það sé gert sem skerði möguleika fólksins á sviði húsnæðismála. Með því að breyta lífeyrissjóðnum eða höfuðstólnum, sem eftir er þegar búið er að draga frá 5 mánaða iðgjöld, geta þessir sjóðir í nánustu framtíð fullnægt því hlutverki sem þeir hafa gegnt á undangengnum árum, höfuðstóllinn er orðinn það stór. Þá er einnig hugsanlegt að aðilar komi sér saman um ákveðnar greiðslur, t.d. 1% af dagvinnulaunum, sem skuli renna í þessa sjóði og útlánareglur þeirra verði víkkaðar þannig að lánað verði bæði til sjóðfélaga og þeirra fyrirtækja er standa á bak við sjóðina. Eðlilegt er að hinum nýju lánasjóðum verði af hinu opinbera settar ákveðnar reglur um starfsemi og lánveitingar, en þó ættu það aðeins að vera leiðbeiningar, en aðilum hins vegar frjálst að gera með sér samkomulag um það að öðru leyti. Verður það þá að sjálfsögðu gert þannig af hálfu hins opinbera, að haft verður fullt samráð við viðkomandi eignaraðila. En ég lít þannig á og við flm. — og meira en það, það er lagaleg staðreynd, að sjóðfélagar í hinum sjálfstæðu lífeyrissjóðum eru eignaraðilar að þeim ásamt þeim öðrum sem taka þátt í myndun sjóðanna. Gert er ráð fyrir að þátttaka í þessum lánasjóðum, sem frv. gerir ráð fyrir, verði frjáls.
Þá er það einnig nýmæli í þessu frv. frá fyrra frv., að þar var ekki gert ráð fyrir að aðrir lífeyrissjóðir væru starfræktir. Við gerum hins vegar ráð fyrir því, að ekki verði bannað að lífeyrissjóðir verði starfræktir áfram, þá annaðhvort í fyrra formi eða þá í nýrri og breyttri mynd, heldur séu settar strangar reglur um starfsemi þeirra, sem komi í veg fyrir að þeir geti orðið gjaldþrota. Af liðum a og b í 41. gr. leiðir að sjóðirnir verða að ávaxta fjármagn sitt verðtryggt. Þessar greinar segja auk þess, að lífeyrinn verður að lækka miðað við núverandi reglur eða iðgjald að hækka ef þörf krefur. Þá segir einnig í 41. gr., að hlutverk Lífeyrissjóðs sé að taka á sig áhættu af dauða, örorku og elli. Einnig er þar kveðið á um ákveðna lágmarksstærð lífeyrissjóða, og það er gert til þess að tryggja nægilega dreifingu áhættu, sem ég held að menn hafi yfirleitt ekki tekið nægilega vel til greina þegar þeir hafa verið að fjalla um lífeyrissjóðamál og hafa stofnað til lífeyrissjóða.
Herra forseti. Ég fer nú að stytta mál mitt, en vil þó að lokum drepa nokkuð á það sem við nefnum fjármálalegar afleiðingar frv., en það er veigamikið atriði í flutningi þessa máls, ekki hvað síst með tilliti til þess, hvar við erum á vegi staddir í sambandi við fjármál ríkisins og skattamál almennt.
Ljóst er að verði frv. þetta að lögum munu verða miklar breytingar á fjárhagsstreymi. T.d. hætta þær greiðslur sem ríkissjóður greiðir til Tryggingastofnunar ríkisins. Þá minnka væntanlega iðgjaldagreiðslur til þeirra lífeyrissjóða sem nú starfa. Þá hætta greiðslur ríkissjóðs á verðtryggingu lífeyris opinberu sjóðanna, þar sem tekjur koma í staðinn með þeim hætti sem frv. gerir ráð fyrir. Og smærri breytingar verða á greiðslum ríkissjóðs og Atvinnuleysistryggingasjóðs til Umsjónarnefndar eftirlauna og greiðslu þess síðarnefnda til fæðingarorlofs. Mesta breytingin er svo tekjur og gjöld Lífeyrissjóðs Íslands. Hér vil ég gera tilraun — og vek athygli á því sem segir á bls. 23 — til þess að meta hvernig fjárstreymi ársins 1977 hefði breyst, ef frv. svipaðs eðlis og þetta er hefði verið orðið að lögum og verið framkvæmt á þessu ári.
Ef við lítum fyrst á framlag ríkissjóð til lífeyristryggingadeildar Tryggingastofnunar ríkisins, kemur í ljós að það er á þessu ári 9.8 milljarðar. Verðtrygging ríkissjóðs til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og fleiri sjóða er 1.3 milljarður. Það væri umhugsunarefni fyrir hv. þm. að kynna sér nokkuð hvernig sá sjóður er upp byggður, með tilliti til í fyrsta lagi þeirrar verðtryggingar, sem ákveðin er og samþykkt er í fjárl. á hverjum tíma með tilliti til þess, hversu há prósenta iðgjöld viðkomandi sjóðfélaga eru borið saman við heildargreiðslur, og ekki hvað síst með tilliti til þess, hvernig árlega er færður upp falskur höfuðstóll í Lífeyrissjóði opinberra starfsmanna. — Í þriðja lagi er framlag ríkissjóðs til Umsjónarnefndar 0.1 milljarður, framlag atvinnuleysistrygginga til Umsjónarnefndar 0.2 milljarðar, greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs til fæðingarorlofs 0.3 miljarðar, framlag atvinnurekenda til Lífeyristrygginga Tryggingastofnunar ríkisins 1.8 milljarðar, framlag atvinnurekenda til lífeyrissjóða (6%) áætlað 6.6. milljarðar, iðgjöld launþega til lífeyrissjóða (4%) áætluð 4.4 milljarðar. Samtals eru þetta 24.5 milljarðar.
Samtals voru greiðslur 1977: Tryggingastofnun ríkisins 11.5 milljarðar, Lífeyrissjóður (áætlað) 3.4 milljarðar. Umsjónarnefnd eftirlauna 0.3 milljarðar, samtals 15.2 milljarðar. Fæðingarorlof var samtals 0.3 milljarðar. Brúttótekjur fólks á aldrinum 16–60 ára námu ca. 223.5 milljörðum árið 1977. Þegar reiknað er iðgjald vegna þessa frv., áætlað 12.2%, eru heildartekjur 27.3 milljarðar. Meðalvísitekjur samkv. fyrrgreindum útreikningum voru 1 millj. 422 þús. kr. en meðaltekjur voru aftur á móti 1 millj. 625 þús. kr. Mismunurinn stafar af hækkun launa umfram hækkun framfærslukostnaðar sem ákvarðar vísitekjur. Lífeyrir hefði því orðið til 19 þús. ellilífeyrisþega: Ellilífeyrir 60% af 1422 þús. sinnum 19 þús. = 16.2 milljarðar. Örorkulífeyrir, maka- og barnalífeyrir 8.1. milljarður. Fæðingarlaun 1 milljarður. Útgjöld samtals hefðu því orðið 25.3 milljarðar og tekjur umfram gjöld 1.9 milljarðar kr. Vísa ég til þess sem segir í aths. við þessa tölu, að þessi fjárhæð stafar af því, að vísitala framfærslukostnaðar, en lífeyrir fylgir henni, hækkaði minna laun. Það hefði verið nóg að hafa iðgjaldaprósentuna 11.33% í stað 12.15% árið 1977.
Samkv. þessu er augljóst mál, að frv. þess eðlis sem hér er, ef í gildi hefði verið, hefði getað létt af skattborgurunum upphæð sem er svipuð að stærð og tekjuskatturinn er eða um 11 100 millj. kr. samkv. fjárl 1977. Auk alls þess góða, sem fylgir því að breyta lífeyrissjóðakerfinu, sem við höfum í dag, yfir í það einfalda og réttláta form sem við flm. mælum hér með, er þessi möguleiki fyrir hendi. En til þess þarf auðvitað vilja og kjark, og ég held að hv. þm. og hv. Alþ. hljóti að verða að hafa forustu í þessum málum, og endurtek ég það sem ég sagði 1976, að það eru takmörk fyrir því, hvað hv. alþm. og þeir, sem bera ábyrgð á málefnum þjóðarinnar, geti leitað mikið út fyrir sínar raðir til að taka ákvarðanir í meiri háttar málum. Til þess eru nú hv. alþm. kjörnir, að þeir þori og hafi vilja til þess að stjórna þjóðinni og taka ákvarðanir. Hér er að mínu mati á ferðinni mál sem er þess eðlis, að það verður aldrei leyst nema hv. Alþ. höggvi á hnútinn og menn þori að taka afstöðu. Að vísu — og ég hef tekið það fram fyrr í minni framsögu — ber að hafa samráð við aðila sem hafa fjallað um þessi mál, og auðvitað ber að hafa samráð við þá sem eru eignaraðilar að þeim lífeyrissjóðum sem nú eru. Það er augljóst mál. En lokaákvörðun og lokastefnu verður að taka innan sala Alþ., vegna þess að ef hv. þm. vilja skoða þetta frv., þá felast í því margir þættir og hver þáttur og hver kafli er raunverulega þess eðlis, að þeir hljóta að framkalla margar skoðanir. Það er hér um bil útilokað að ná fram einni sameiginlegri skoðun þannig að allir verði ánægðir.
Ég held að ég láti þá útskýringum lokið varðandi frv. í heild. En ég vil aðeins endurtaka það og fara yfir það að lokum, að samkv. frv. er því skipt í ákveðna meginkafla, eins og hv. þm. sjá. I. kaflinn er um skipulag og stjórn. Þar kemur margt til álita í sambandi við það, hverjir skuli skipa tryggingarráð og hvernig stjórn skuli háttað. Hér hefur verið leitast við að setja það upp með þeim hætti að flestir þeir aðilar hefðu hér aðild að sem um þessi mál hafa fjallað á undangengnum árum og hafa vissulega eða sennilega haft frumkvæði í þessum efnum. II. kaflinn er um lífeyristryggingarnar, sem ég hef þegar útskýrt fyrir hv. þm. hvernig til eru orðnar, III. kaflinn um ellilífeyri, IV. um örorkulífeyri, V. um barnalífeyri, VI. um fæðingarlaun, VII. kafli um tekjur í VIII. kafla eru önnur ákvæði varðandi útreikninga og IX. kafli er síðan um hina almennu lífeyris- og lánasjóði, og er það breyting frá því frv. sem flutt var hér í ársbyrjun 1976.
Við flm. væntum þess að sjálfsögðu, að frv. fái góðar undirtektir hér í d. og á Alþ. og það nái fram að ganga og verði samþykkt sem lög. Við teljum að með því mundi mikill sigur vinnast í þessu mesta réttlætismáli ellilífeyris- og örorkuþega í landinu.
Ég leyfi mér svo, herra forseti, að óska þess, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.