22.12.1978
Sameinað þing: 41. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1983 í B-deild Alþingistíðinda. (1653)
2. mál, samningar við Norðmenn um réttindi landanna á Íslandshafi
Frsm. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Hér er til umr. 2. mál þessa þings, þáltill. um samninga við Norðmenn um réttindi landanna á Íslandshafi. Það er vitað að nokkur ágreiningur er um fiskveiðilögsöguna og hagnýtingu annarra auðæfa landgrunnsins milli Íslendinga og Norðmanna, einkum út af eyjunni Jan Mayen. Það hefur svo margoft verið upplýst hér að ég mun ekki sjá ástæðu til að rekja það. En við vitum að viðræður við norsk stjórnvöld eru hafnar og þeim verður haldið áfram, og ég held að mér sé óhætt að segja líka að viðurkennt sé að Norðmenn muni ekki grípa til einhliða aðgerða á næstunni.
Þess vegna leggur utanrmn. til að till. verði vísað til ríkisstj. í trausti þess, að samningaumleitunum verði haldið áfram.
Undir þetta nál. skrifar öll utanrmn. og er nál. hennar svofellt:
„Nefndin hefur fjallað um till. og er sammála um að leggja til að henni verði vísað til ríkisstj. til meðferðar.“