22.12.1978
Sameinað þing: 41. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1996 í B-deild Alþingistíðinda. (1700)

54. mál, fjárlög 1979

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Þessi liður í fjárlagafrv. er eini liðurinn til rekstrar í íslenskum sjávarútvegi, og reisn meiri hl. fjvn. er sú að skera þennan lið niður um helming í stað þess að láta hann fylgja breyttu verðlagi. Því er ég mótfallinn og segi nei.