22.12.1978
Efri deild: 50. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2001 í B-deild Alþingistíðinda. (1721)

Þingfrestun

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Þar sem þetta er síðasti fundur Ed. fyrir þingfrestun leyfi ég mér að þakka öllum hv. þdm. fyrir góða og ánægjulega samvinnu. Ég óska hv. þdm. gleðilegra jóla og góðs og farsæls komandi árs. Sömu óskir hef ég fram að færa skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsfólki þess. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og vænti þess, að við hittumst öll heil á næsta ári.