22.12.1978
Sameinað þing: 42. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2004 í B-deild Alþingistíðinda. (1733)

Þingfrestun

Forseti (Gils Guðmundsson):

Nú verður gert hlé á fundum Alþingis um sinn, og er þetta síðasti fundur áður en jólaleyfi hefst. Annasamt hefur verið á Alþ. síðustu daga og jafnvel nætur, ekki síður en stundum áður á þessum tíma árs. Nú þegar annríki þessu lýkur vil ég þakka hæstv, ríkisstj. og hv. alþm. fyrir ágætt samstarf það sem af er þessu þingi og umburðarlyndi í minn garð. Einnig þakka ég varaforsetum, skrifurum, skrifstofustjóra Alþingis og starfsfólki þess öllu fyrir góð störf. Ég óska hv. alþm. og starfsfólki þingsins gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ég vona að við megum öll hittast heil til starfa þegar þingfundir hefjast aftur á nýju ári.