29.01.1979
Neðri deild: 46. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2164 í B-deild Alþingistíðinda. (1757)

151. mál, framhaldsskólar

Menntmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Í lögum um skólakerfi er um það rætt, að íslenskir skólar skiptist í þrjú stig; skyldunámsstig, framhaldsskólastig og háskólastig. Á sama hátt mætti kannske tala um fimm stig í menntakerfi þjóðarinnar með það í huga, að fyrst má telja forskólann, síðan koma þessi þrjú lögbundnu skólastig, þ.e.a.s. grunnskóli, framhaldsskóli og háskóli, en þar á eftir komi svo endurmenntunin eða fullorðinsfræðslan. Áður en ég vík að efni þess frv. um framhaldsskóla sem hér liggur fyrir, tel ég rétt að renna augunum yfir þessi fimm stig menntakerfisins til þess að betra sé að átta sig á viðfangsefni frv. í ljósi annarra verkefna í menntamálum.

Ég held, áður en vikið er að öðrum viðfangsefnum, að það leyni sér ekki, að brýnasta verkefnið eins og á stendur er að marka heildarstefnu hvað framhaldsskólann snertir. Þetta verkefni hefur verið aðalviðfangsefnið nú á síðari hluta þessa áratugs og má nú ekki lengur dragast að því séu gerð full skil hér á Alþ. Þessi þróun hefur verið í fullum gangi nú um alllangt skeið, en heildarskipulag hefur vantað.

Á fyrri hluta áratugsins var hins vegar unnið að öðru stórverkefni, sem var setning laga um grunnskóla, og það var ekki fyrr en 1974 sem niðurstaða fékkst og grunnskólafrv. var samþ. hér á Alþ. Ég vil þó minna á að það mál var ekki endanlega útkljáð við afgreiðslu Alþ. á grunnskólafrv. vorið 1974. Enn eru nokkrir þættir málsins óútkljáðir, þ. á m. um lengingu skólaskyldunnar.

Hér á Alþ. voru menn ekki á eitt sáttir um það, hvort skynsamlegt væri að lengja skólaskyldu um eitt ár, og voru margir sem töldu að nægilegt væri að sett væri á fræðsluskylda, skylda sveitarfélaga til þess að sjá nemendum fyrir fræðslu á þessu níunda skólaári, en ekki væri skynsamlegt að þvinga nemendur með lagaboði, úr því að þeir hefðu náð þessum aldri, til að sækja skóla, enda mætti víst heita að um 90% nemenda mundu sækja skóla hvort sem þeir væru skyldaðir til þess eða ekki. Spurningin væri þá um það eitt, hvort Alþ. ætti með lagasetningu að sjá til þess, að þau 5–6%, sem eftir væru og ekki kæmu í 9. bekk grunnskólans af sjálfsdáðum, skiluðu sér, því að vissulega er það svo, að alltaf verður einhver hluti nemenda sem ekki getur sótt 9. bekk grunnskólans af ýmsum ástæðum, aðallega heilsufarsástæðum, og því ekki að vænta að um geti orðið að ræða 100% skólasókn af hálfu þessa aldursflokks frekar en annarra.

Ég minni á þetta hér vegna þess, að ég tel að endurskoðun grunnskólalaga sé óhjákvæmilegt viðfangsefni nú á næstu mánuðum, og samfara þeirri endurskoðun þarf Alþ. að taka endanlega ákvörðun um það, hvort skólaskylda verði aukin um eitt ár eða ekki. Ég tel að Alþ. hafi í raun aldrei afgreitt þetta mál, heldur áskildi sér rétt til þess að taka endanlega afstöðu áður en grunnskólalögin kæmu endanlega til framkvæmda, og við erum enn ekki komin að því tímamarki.

Á s.l. vori gaf menntmrn. út ítarlega skýrslu um framkvæmd grunnskólalaganna og um þessa skýrslu urðu nokkrar umr. hér á Alþ., en stefnumótunin hvað þetta atriði snertir er enn eftir.

Varðandi háskólastigið má segja það, að það þarfnast vafalaust endurskoðunar eins og flest annað í okkar menntakerfi og m.a. þarf að hyggja að tengslum Kennaraháskóla Íslands og Tækniskólans við Háskólann. Þar eru óútkljáð ýmis stefnumarkandi atriði sem Alþ. verður fyrr eða síðar að taka endanlega afstöðu til. Nægir að minna á að Kennaraháskólafrv. hefur verið hér á ferðinni innan veggja Alþ. nú um nokkurt skeið, en hefur ekki verið afgreitt vegna mikils ágreinings um ákveðin atriði þess.

En um leið og þessi endurskipulagning hlýtur að eiga sér stað á þremur stigum skólakerfisins þarf ekki síður að huga að þeirri menntun sem þar fyrir utan stendur. Þá vil ég í fyrsta lagi nefna samræmdan forskóla í kjölfar kraftmikillar uppbyggingar leikskóla og annarra dagvistarstofnana sem þarf að eiga sér stað á næstu árum, og í öðru lagi að koma þarf á nýju skipulagi hvað snertir endurmenntun og fullorðinsfræðslu, en þau mál eru nú mjög brotakennd og tilviljunarkennd, eins og flestum mun kunnugt.

Nýtt skipulag þessara mála er brýn nauðsyn, og ég vil leggja á það áherslu, að nýtt skipulag þarf alls ekki að vera neitt bákn sem togar til sín milljarða kr. eins og sumir hafa óttast. Hér er um það að ræða, að við höfum verið með öldungadeildir starfandi og aðra fullorðinsfræðslu í framhaldsskólum. Við höfum fræðslustarf verkalýðshreyfingarinnar, námsflokka með kvöldnámskeiðum, málaskóla, bréfaskóla, og hugsanlegt er að bæta þar við stórauknu fræðslustarfi í útvarpi og sjónvarpi. Allt þetta þarf að fella í samræmda heild, og ég tel að unnt sé að gera það án þess að leggja stórauknar byrðar á herðar skattgreiðenda og tel að þetta sé eitt allra brýnasta viðfangsefnið í menntamálum eftir að við höfum komið málum framhaldsskólans í betra horf en nú er. Ég held að það verði þegar að fara að stiga fyrstu sporin hér á Alþ. til að endurskipuleggja þetta nám.

Svo vikið sé að því frv. sem fyrir liggur, þá verður fyrst fyrir að spyrja, hver séu meginrökin fyrir þessu frv. Ég held að svarið sé einfaldlega það, að núverandi framhaldsskólakerfi svari ekki tímans kalli. Námsframboð er oft einhæft, námsbrautir einangraðar og lokaðar og nemendur, sem taka ranga ákvörðun í öndverðu, eru lokaðir inni í blindgötum og verða að byrja allt framhaldsskólanám frá byrjun ef þeir ætla sér að skipta um nám. Auk þess má á það benda, að hin skörpu skil milli bóknáms og verknáms gera síðarnefnda námið annars flokks, M.ö.o.: verknámið er vanrækt, sniðgengið bæði af nemendum og fjárveitingavaldi. Nemendur leita sér ekki menntunar í eðlilegu samhengi við hæfileika sína og löngun og námið verður ekki eins markvisst og vera ber. Ýmislegt hefur verið gert til þess að lagfæra verstu ágallana, en þessi viðleitni hefur nær eingöngu beinst að afmörkuðum brautum framhaldsskólastigsins, og þess hefur ekki verið gætt, að þetta menntunarstig myndar í raun eina samvirka heild sem verður að vera í eðlilegum tengslum við aðliggjandi skólastig. Úrbætur, sem hafa verið gerðar, hafa því ekki reynst til frambúðar.

Aðdragandi þessa frv. er orðinn mjög langur. Lög og reglugerðir um einstaka skóla hafa verið tekin til endurskoðunar nú á þessum áratug oftar en einu sinni og ný löggjöf verið sett, m.a. um viðskiptamenntun. Nefndir hafa verið skipaðar til þess að fjalla um veigamikla þætti framhaldsskólans, og má þar nefna verk- og tæknimenntunarnefnd, sem skilaði í júlí 1971 ítarlegri grg. um verk- og tæknimenntun á Íslandi, iðnfræðslulaganefnd, sem skilaði till. um þróun tæknimenntunar í des. 1975, og nefnd, sem endurskoðaði lög um hjúkrunarnám og skilaði till. í júlí 1976. Auk þess má nefna ýmsa aðra starfshópa sem hafa undirbúið stofnun fjölbrautaskóla.

Hinn 25. nóv. 1974 skipaði menntmrh. nefnd til þess að gera till. um breytta skipan náms á framhaldsskólastigi. Í þessari nefnd áttu sæti eftirfarandi deildarstjórar í menntmrn.: Hörður Lárusson, sem var formaður n., Árni Gunnarsson, Indriði H. Þorláksson og Stefán Ólafur Jónsson. N. skilaði frumtillögum til menntmrh. 21. júlí 1976 og gerði honum grein fyrir meginhugmyndum sínum. Þá hafði þessi n. kynnt ýmsa þætti till. á fleiri en einum fundi með kennurum og skólastjórum við grunnskóla og framhaldsskóla, en síðan var boðað til sérstakrar ráðstefnu á Hótel Esju í okt. 1976 með þátttöku manna bæði frá skólum og atvinnulífi.

Í framhaldi af þessum miklu samráðum fól menntmrh. fyrrnefndri nefnd deildarstjóra í menntmrn. að endurskoða till. með hliðsjón af því sem fram hafði komið. Endurskoðað frv. var síðan lagt fram á Alþ. vorið 1977, en ekki afgreitt. Frv. var enn tekið til endurskoðunar og lagt fram að nýju vorið 1978. Nú birtist þetta frv. í þriðja sinn og enn í nokkuð endurskoðaðri mynd.

Ég mun fyrst gera grein fyrir þeim meginbreytingum frá ríkjandi menntakerfi sem í frv. felast, en síðan fjalla um þær breytingar sem gerðar hafa verið á frv. síðan það var seinast lagt fram. Ég tel að kjarni þessa frv. sé eftirfarandi:

Rammalöggjöf er sett um samræmdan framhaldsskóla, sem skiptist í ákveðin meginnámssvið. Með meginnámssviðum er t.d. átt við almennt bóknámssvið, búfræðisvið, heilbrigðissvið, hússtjórnarsvið, listasvið, tæknisvið, uppeldissvið, viðskiptasvið. Hér eru þessi svið nefnd sem dæmi, vegna þess að frv. sjálft tiltekur ekki hversu mörg þessi svið eigi að vera og hver þau eigi að vera, heldur er gert ráð fyrir að teknar séu ákvarðanir um þetta atriði á síðasta stigi. Hvert meginnámssvið skiptist síðan í námsbrautir, og svo að dæmi sé aftur tekið, þá hefur verið talað um að tæknisvið skiptist hugsanlega í iðjubrautir, tæknabraut, iðnaðarbraut, fiskvinnslubraut, vélstjórabraut og skipstjórnarbraut. Og svo annað dæmi sé nefnt af uppeldissviði, þá mundi uppeldissvið hugsanlega skiptast í íþrótta- og félagsmálabraut, almenna uppeldisbraut og í þriðja lagi fóstur- og þroskaþjálfabraut.

Gert er ráð fyrir því, að nám á hverri námsbraut miði að almennri menntun og undirbúningi til framhaldsnáms eða sérhæfingu til starfs, eftir því hvernig námsáföngum er raðað saman. Námslok geta orðið í námi eftir 1, 2, 3 eða 4 ár, eftir því að hvaða marki er stefnt. Þó gert sé ráð fyrir skilgreindum námslokum eftir eitt ár eða fleiri, þá getur hver einstaklingur, sem hættir námi, haldið áfram síðar á sömu námsbraut eða annarri braut og fengið að fullu viðurkenndar þær einingar sem hann hefur aflað sér áður. Það er sem sagt gert ráð fyrir því, að markaðar séu leiðir til framhaldsnáms af öllum brautunum, engin þeirra endi í blindgötu.

Í öðru lagi má sérstaklega geta þess, að gert er ráð fyrir því, að nám í framhaldsskóla sé skipulagt í námsáföngum og hver áfangi sé metinn til eininga sem miðast við eina kennslustund á viku í eitt skólaár eða tvær á einni önn, en tvær annir eru á vetri. Með námseiningu er átt við það magn námsefnis, sem telst hæfilegt fyrir meðalnemanda á fyrrgreindum tíma, þá er einnig talin með nauðsynleg heimavinna, og gildir þetta bæði um verklegt og bóklegt nám. Sömu námseiningu má kenna á mislöngum tíma, allt eftir getu og hæfileikum þeirra nemenda sem hlut eiga að máli. Hver námsáfangi skal hafa fullt gildi þótt nemandi flytjist milli námsbrauta, ef námsáfanginn heyrir til þeirri námsbraut sem skipt er yfir á.

Ég tel að einmitt þetta atriði hvað áfangakerfi snertir sé grundvallaratriði í þessu samhengi og það mun mjög auðvelda að ná markmiðum þessa frv. Ég vil samt taka það fram til þess að afstýra misskilningi, að áfangakerfi af þessu tagi þarf ekki óhjákvæmilega að leiða til þess, að bekkjakerfi sé lagt niður, enda þótt það hafi verið algengast og þyki eðlilegast, þegar áfangakerfi er tekið upp, að þá sé venjulegt sígilt bekkjakerfi lagt niður. Um það hefur verið rætt og ég tel það fullkomlega raunhæfa möguleika, að í þeim skólum, þar sem stjórnendur telja heppilegt að viðhalda áfram bekkjakerfi, sé samt hægt að byggja á áfangakerfi þannig að þetta hvort tveggja sé samræmt. Þetta vildi ég taka hér fram, vegna þess að sumir hafa skilið það svo, að með þessum nýja framhaldsskóla og með því áfangakerfi, sem hann byggist á, sé endanlega verið að útrýma bekkjakerfi t.d. í bóknámsdeildum framhaldsskólans, en svo er ekki.

Í frv., eins og það lá fyrir í fyrra og hittiðfyrra, var gert ráð fyrir hvað fjármálahlið málsins snertir, að ríkissjóður greiði kennslu- og stjórnunarkostnað, en annar rekstrarkostnaður og viðhald greiðist að hálfu af sveitarfélögum. Hins vegar greiðist stofnkostnaður í öllum framhaldsskólum að 70% úr ríkissjóði.

Í núverandi frv. hefur nokkuð önnur stefna verið tekin upp hvað snertir kostnaðarskiptingu, — fyrirkomulag sem ég tel að óneitanlega hafi ýmsa kosti. Þetta fyrirkomulag miðar að því að tvö fyrstu ár framhaldsskólans verði kostuð sameiginlega af ríki og sveitarfélögum eftir hliðstæðum meginreglum og gilda um grunnskóla, en kostnaður af námi umfram tvö fyrstu árin greiðist úr ríkissjóði. Lagt er til að tekið verði upp námsvistargjald, sem lögheimilissveitarfélag greiði vegna þeirra nemenda sem tvö fyrstu skólaárin sækja skóla, sem reknir eru af öðrum sveitarfélögum, eða skóla fyrir mjög sérhæft nám, sem reknir eru af ríkinu. Hér er um verulega breytingu að ræða, en ég tel að þessi breyting eigi ekki að vera óhagstæðari sveitarfélögum en sú regla sem fyrir var í frv. eins og það áður lá fyrir. Þó hefur þetta ekki verið kannað nægilega enn, og ég tel að óhjákvæmilegt sé að frekari viðræður eigi sér stað um þetta mál við stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga. Ég tel að kostir þess fyrirkomulags, sem nú er gerð till. um, séu ótvíræðir, því að ljóst er að á líklega um eða yfir 20 stöðum á landinu mun framhaldsnám eingöngu ná til tveggja fyrstu áranna og þetta nám mun að verulegu leyti fara fram í húsakynnum sem byggð hafa verið eða byggð verða fyrir grunnskólastarf. Það virðist því hafa ótvíræða kosti að láta sömu reglu gilda hvað snertir rekstrarkostnað og stofnkostnað varðandi þessi tvö fyrstu ár framhaldsskólans. Hins vegar mundi þá ríkið algerlega yfirtaka allan kostnað sem snertir tvö síðari árin. Í þessu sambandi vil ég sérstaklega geta þess, að einn megintilgangur frv. er að efla verknám og iðnað, og þetta kemur m.a. ljóslega fram í ákvæði til bráðabirgða, 38. gr., þar sem segir:

„Í fyrstu 5 ára áætlun menntmrn. um skipan námsbrauta á framhaldsskólastigi og framkvæmdir til að koma þeirri skipan á, sbr. 12. og 19. gr. laganna, skal lögð sérstök áhersla á uppbyggingu og eflingu verknámsbrauta. Skal miðað við að þær framkvæmdir verði sem lengst komnar þegar lögin í heild koma til framkvæmda, sbr. 37. gr.“

Eftir að tekin var sú stefna að haga fjármálahlið frv. með þeim hætti sem ég hef nú lýst, komu fram áhyggjur manna um að kostnaður af byggingu verknámsaðstöðu yrði ýmsum sveitarfélögum ofviða, en það væri einmitt mjög brýnt að hraða byggingu verknámsaðstöðu og sérbyggðra skólaverkstæða a.m.k. á einum stað í hverju kjördæmi þannig að unnt væri að koma á raunverulegu iðnnámi til samræmis við það, sem gert hefur verið hér á höfuðborgarsvæðinu. Með hliðsjón af þessu var ákveðið að gera sérákvæði um byggingu verknámsaðstöðu, svo hljóðandi, í e-lið 30. gr.:

„Heimilt er að ákveða, að framlag ríkissjóðs verði allt að 75%k byggingarkostnaði og meiri háttar búnaði sérbyggðrar verknámsaðstöðu (skólaverkstæða) sem ætluð er fyrir heil fræðsluumdæmi, eða hluta þeirra ef nemendafjöldi krefst þess, og þannig að eðlilegri og hagkvæmri skólaskipan sé komið á að mati menntmrn.“

Hér hlýtur að vera um að ræða prentvillu. Það hlýtur að vanta örfá orð inn í þessa setningu. (Gripið fram í.) Já, það gæti verið þannig: og stuðla þannig að eðlilegri og hagkvæmri skólaskipan að mati menntmrn. — Ég tel að með þessu sérákvæði um byggingu verknámsaðstöðu eigi að vera nokkuð tryggt að ekki halli á sveitarfélögin hvað snertir þessa hlið málsins þrátt fyrir þá breytingu sem hér er gerð till. um. Ég vil hins vegar vekja á því athygli, að ekki dugir það eitt, að ákvæði af þessu tagi séu tekin í lög, heldur ber brýna nauðsyn til að Alþ. fáist til að ráðstafa til verknámsskóla miklu hærri fjárhæðum en fengist hafa á fjárl. undanfarin ár. Ég vil þó geta þess í þessu samhengi, að fjárveitingar til verknámsskóla voru tvöfaldaðar við afgreiðslu fjárl. í des. s.l. og sú aukning er vissulega spor í rétta átt.

Aðrar helstu breytingar á frv., frá því að það var lagt fram í fyrra, eru þessar:

Tekinn er upp sérstakur kafli í frv. um fullorðinsfræðslu innan framhaldsskólakerfisins. Ég vil vekja sérstaka athygli á þessum kafla, V. kafla frv., en þar segir í 15. gr., með leyfi forseta:

„Stefnt skal að því, að framhaldsskólum verði gert kleift að sinna menntun fullorðinna á þeim námsbrautum sem reglulegt starf skólanna tekur til. Í þessu skyni má heimila skóla að: a) veita þeim sem orðnir eru 19 ára aðgang að einstökum námsáföngum ásamt reglulegum nemendum skólans..., og b) stofna til sérstakra námskeiða, þ. á m. kvöldskóla, til að fullnægja óskum og þörfum þeirra sem komnir eru af venjulegum skólaaldri og hentar ekki að sækja reglulega kennslu skólans. Setja skal í reglugerð nánari ákvæði um nám þetta, þ. á m. um lágmarksfjölda þátttakenda í námshópum og um námstíma er geti verið lengri eða skemmri en í reglulegu námi.“

Og í 16. gr. segir:

„Stefnt skal að því að kennsluaðstaða framhaldsskóla nýtist einnig fyrir almenna fræðslustarfsemi, aðra en þá sem um getur í 15. gr., þ. á m. endurmenntun í ýmsum starfsgreinum. Getur rn. í samráði við skólanefnd heimilað framhaldsskóla að eiga hlut að skipulagningu og framkvæmd slíkrar starfsemi, sem kynni“ — hér er önnur prentvilla, þær kunna að vera margar í þessu frv. — „sem kynni að verða óskað eftir.“

Ég vil ítreka það sem ég sagði áðan, að þörf er á því að endurskipuleggja fullorðinsfræðslu í landinu og frv. um það efni hefur verið lagt nokkrum sinnum fram á Alþ., en ekki hlotið náð fyrir augum þm. Ég tel ekki að með þessu ákvæði sé verið að lauma ákvæðum frv., sem ekki hefur náð hér afgreiðslu undanfarin ár, inn bakdyramegin, því að hér er fyrst og fremst um heimildarákvæði að ræða sem á ýmsan hátt gengur miklu, miklu skemmra en þær heimildir sem fólust í frv., sem ekki var afgreitt, um fullorðinsfræðslu. Ég tel hins vegar, að hér sé stigið mjög mikilvægt og þýðingarmikið skref til að efla fullorðinsfræðslu í landinu á grundvelli starfsemi þeirra öldungadeilda, sem þegar eru fyrir hendi.

Ég vil sérstaklega vekja athygli á 34. gr. frv., sem líka fjallar um þetta mál, þ.e.a.s. kostnaðarhliðina: „Kostnaður vegna sérstakra námskeiða, sem stofnað er til samkv. 15. gr., greiðist sem hér segir: Almennur rekstrarkostnaður, svo sem ljós, hiti, ræsting og viðhald, greiðist eftir þeim reglum sem gilda um sömu kostnaðarliði í reglulegu starfi skólans“ — þ.e.a.s. skiptast milli ríkis og sveitarfélaga. „Annar kostnaður við námskeiðin, þ. á m. kennslu- og stjórnunarlaun, skal að þriðjungi greiddur úr ríkissjóði, þriðjungi af sveitarfélögum og þriðjungur skal innheimtur með námskeiðsgjöldum af nemendum. Þeir greiða einnig efniskostnað vegna námsins.“

Ég vek á því athygli, að hér er gert ráð fyrir að fullorðinsfræðslan verði ekki ókeypis, heldur greiði nemendur hluta af þessum kostnaði. Um þetta má vissulega deila og getur sýnt sitt hverjum, en ég held að með þessu séu ekki lagðar neinar óhæfilegar byrðar á þá sem hyggjast afla sér viðbótarmenntunar. Ég vek á því athygli, að við starfrækslu öldungadeilda í framhaldsskólum hefur verið innheimt nokkurt gjald af nemendum og engum fundist það tiltökumál. Með þessu ákvæði er að vísu um nokkra hækkun að ræða á þessu gjaldi. En þeir, sem um þetta hafa fjallað, hafa verið sammála um að hér væri ekki um svo mikla gjaldtöku að ræða að ástæða væri til að ætla að hún yrði til að hamla mönnum skólasókn. Hins vegar hafa margir bent á að nokkurt framlag af hálfu nemenda, sem sækja fullorðinsfræðslu eða afla sér endurmenntunar, hafi reynst verka á þann veg, að námið hefur orðið samfelldara og menn hafa sótt námið af meiri alvöru en í þeim tilvikum þar sem ekkert endurgjald hefur komið fyrir námið.

Þriðja aðalbreytingin, sem felst í ákvæðum þessa frv., snýr að gildistöku laganna, útgáfu reglugerða og undirbúningi að framkvæmd laganna. Eins og kunnugt er hefur verið gengið út frá því í undangengnum frv., sem lögð hafa verið fyrir Alþ., að menntmrn. setti nánari ákvæði í reglugerðir um framkvæmd laganna. Mörgum hefur þótt fullmikið vald lagt í hendur rn. með þessum hætti, og við endurskoðun frv. hefur verið lagt allt kapp á að setja inn í frv. ýmis ákvæði sem tryggja ítarlegri samráð við ýmsa aðila. Ég vil hér sérstaklega nefna 2. mgr. 36. gr. svo hljóðandi:

„Við samningu reglugerða skal m.a. kveðja til fulltrúa frá framhaldsskólum, atvinnulífi og samtökum sveitarfélaga. Menntmrn. til aðstoðar við samræmingu reglugerðanna skal vera starfshópur er í eigi sæti auk fulltrúa rn. einn fulltrúi frá hverjum eftirtalinna aðila: Samtökum kennara á framhaldsskólastigi, samtökum nemenda á framhaldsskólastigi, Alþýðusambandi Íslands, Vinnuveitendasambandi Íslands og Sambandi ísl. sveitarfélaga. Að jafnaði skal leita álits framhaldsskólaráðs áður en reglugerðir eru gefnar út.“

Hér er vikið að ráði einu miklu, sem ákvæði hafa verið um í fyrri frv., framhaldsskólaráði, sem er mjög fjölmennt ráð og á að vera rn. til aðstoðar við mótun og samræmingu meginstefnu í málefnum framhaldsskóla. Ég hef orðið var við að frv. hefur löngum verið gagnrýnt ekki hvað síst fyrir það, að gert sé ráð fyrir svo þunglamalegri stofnun sem framhaldsskólaráði samkv. frv. Ég tel að sú gagnrýni eigi fyllsta rétt á sér, og er ekki í hópi þeirra, sem hafa verið hrifnastir af þessu ráði. Ég tel hins vegar að ákvæði frv. um þetta ráð séu ekkert stórmál í sjálfu sér. Ef ýmsum þykir kostur, að þetta ráð sé til, og telja, að í því verði fólgið eitthvert aðhald að störfum rn., en svo virðist, að margir telja, að þetta ráð sé algerlega óhjákvæmilegt í þessu samhengi, þá er ég persónulega eindregið þeirrar skoðunar að samþykkja eigi ákvæði um þetta framhaldsskólaráð. Ég hef því ekki haft neitt frumkvæði að því að strika ákvæði um það út úr frv. Ég held að kjarni þessa ákvæðis um framhaldsskólaráð sé nánast sá, að haldin sé árleg ráðstefna um þróun framhaldsskólans, og ég get nú ekki séð að neinn skaði sé skeður þótt slíkt sé gert. Kostnaðurinn ætti a.m.k. að vera smámál í þessu sambandi.

Ég vil í öðru lagi vekja athygli á því, að í 21. gr. er gert ráð fyrir auk framhaldsskólaráðsins, að starfandi séu fjöldamargar nefndir rn. til ráðuneytis í þessum málum: námssviðsnefndir fyrir hvert námssvið og námsbrautanefndir fyrir hverja námsbraut.

Í fyrri frv. hafa verið bein ákvæði um það, að lög féllu úr gildi við samþykkt þessa frv., og þar hefur ekki verið um að ræða einn eða tvo lagabálka, heldur fjölmörg lög sem snerta einstaka skóla. Þessum ákvæðum hefur verið breytt á þann veg, að í 37. gr. segir einungis að úr gildi falli „lagaákvæði er fara í bága við lög þessi. Eftirtalin lög um skóla á framhaldsskólastigi skulu gilda til bráðabirgða þar til settar hafa verið reglugerðir um tilsvarandi námsbrautir, skólagerðir eða skólastofnanir með þeim hætti sem mælt er fyrir um í 36. gr., sbr. og lokamgr. þessarar gr.“ Síðan er langur listi þar sem taldir eru upp þeir skólar sem þessi lög fjalla um.

Í 37. gr. er einnig gert ráð fyrir því, að menntmrh. flytji Alþ. árlega skýrslu um undirbúningsstarfið og kynni þinginu drög að reglugerðum sem á döfinni eru hverju sinni. Ég held að þær breytingar, sem gerðar hafa verið í þá átt að hafa sem víðtækust samráð við ýmsa aðila utan menntakerfisins og þá einkum aðila vinnumarkaðarins, auk þeirra fjöldamörgu aðila sem þarna koma við sögu, eins og kennarasamtök, og ákvæði um skýrslugjöf til Alþingis sem gefur þinginu aukin tækifæri til þess að taka einstök framkvæmdaatriði til umr. og jafnvel álykta um þau ef mönnum sýnist svo, — ég held að þessi ákvæði séu tvímælalaust til hagsbóta.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um efni þessa frv. Ég vil minna á það, að jafnvel þótt frv. þetta verði að lögum er aðeins eitt skref stigið á langri leið að því marki, að framhaldsskólinn verði endurskipulagður. Eftir að lög þessi hafa verið sett verður þörf á miklu starfi við gerð námsskrár um hinar ýmsu námsbrautir og námssvið. Einnig þarf að hefja samninga við einstaka skóla og við fræðsluráð í hinum ýmsu fræðsluumdæmum um skólaskipun á hverju landssvæði og semja reglugerðir á grundvelli þeirra niðurstaðna sem fást. Þegar þessu verki er lokið, en allt hlýtur þetta að taka nokkurn tíma, þá fyrst er hægt að samræma skólastarfið á framhaldsskólastiginu í eina heild. En ég held að allir séu sammála um það, að frumforsenda þess, að unnt sé að hefja þetta mikla starf, sé að frv. þetta verði að lögum, að Alþ. móti heildarstefnuna.

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að leggja til að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. menntmn.