30.01.1979
Sameinað þing: 44. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2181 í B-deild Alþingistíðinda. (1768)
164. mál, hækkanir opinberra stofnana, framfærsluvísitölu og kaupgjaldsvísitölu
Fyrirspyrjandi (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Að undanförnu hafa fulltrúar þeirra flokka, sem standa að hæstv. ríkisstj., staðið í því að leggja fram tillögur í efnahagsmálum, sem allar fela það í sér að berjast gegn óðaverðbólgunni sem geisar hér í þessu landi, og hafa talsmenn allra þessara flokka komið fram í ríkisfjölmiðlum að undanförnu til þess að lýsa þessum tillögum sínum. Hins vegar hefur lítið sem ekkert verið rætt um það efni sem þessar fsp. mínar fjalla um. Þess vegna finnst mér nauðsynlegt að fá upplýsingar um það fyrir 1. febr., hvaða hækkanabeiðnir frá opinberum stofnunum, bæði ríkis og sveitarfélaga, liggja fyrir hjá ríkisstj. óafgreiddar, en eiga að hljóta afgreiðslu fyrir 1. febr. n.k. samkv. samkomulagi við launþegasamtökin, og hvað liði afgreiðslu þeirra mála.
Í öðru lagi: Hvaða aðrar hækkanabeiðnir liggja fyrir hjá verðlagsnefnd og verða þær afgreiddar fyrir 1. febr. n.k.? Ef svo er ekki, hvenær má ætla að afgreiðsla þeirra fari fram?
Í þriðja og síðasta lagi spyr ég um, hvað ríkisstj. áætlar að framfærsluvísitalan og kaupgjaldsvísitalan verði 1. mars n.k. En eins og hv. þm. muna, lýsti þáv. ríkisstj. því yfir, þegar hinir svonefndu sólstöðusamningar voru gerðir, að verðhækkanir opinberrar þjónustu kæmu ekki til framkvæmda nema síðustu 10 daga fyrir útreikning verðbótavísitölu, þannig að launafólk þyrfti ekki að bera hækkanir lengi bótalaust. Samtök launafólks töldu þessa yfirlýsingu mikla réttarbót og hafa lagt áherslu á að við hana sé staðið. Hefur síðar verið um það rætt og ég veit ekki betur en að það séu áform hæstv. núv. ríkisstj. að halda þessari reglu.
Þó ég spyrji ekki um annað en hækkanabeiðnir, sem liggja fyrir hjá ríkisstj., og hækkanabeiðnir, sem liggja fyrir hjá verðlagsnefnd, þá vil ég, áður en forsrh. svarar þessari fsp., einnig spyrja um það, sem hlýtur að liggja ljóst fyrir og þarf ekki undirbúning til að svara, hvort hæstv. ríkisstj. hafi ekki í hyggju að hækka gjaldskrá fyrir sjúkrakostnað. Eins og fram kemur í aths. með fjárlagafrv. varðandi sjúkratryggingagjald, er áætlun sjúkratrygginganna miðuð við að þátttaka sjúklinga í lyfjakostnaði og kostnaði vegna sérfræðiþjónustu aukist sem nemur 940 millj. kr. á þessu ári. Mér er ekki kunnugt um að gefin hafi verið út reglugerð sem kveði á um hækkun í þessum efnum, og því leyfi ég mér að spyrja hæstv. forsrh. að því, hvort sú reglugerð verði gefin út fyrir 1. febr. eða hvort ríkisstj. hafi fallið frá því að hækka þessi gjöld og þá með hvaða hætti eigi að ná þeirri áætlunarupphæð sem þessi gjöld áttu að gefa, um 940 millj. kr.
Enn fremur er í sambandi við efnahagsmál almennt mjög mikils virði að Alþ. — og þá auðvitað um leið þjóðin öll — viti um það, hver eru áform ríkisstj. varðandi niðurgreiðslur á vöruverði, en við afgreiðslu fjárl. var gert ráð fyrir að niðurgreiðslur á vöruverði lækki á þessu ári um 2800 millj. kr. Ég spyr því einnig að því, hvort þessi ákvörðun hafi verið tekin og þá með hvaða hætti.
Eins og hæstv. forseti gat um, gafst mér ekki tækifæri til þess að koma þessari fsp. fram fyrr en á fimmtudagsfundi, en hæstv. forsrh. fékk fsp. í hendur þá og varð að samkomulagi á milli hans og mín og hæstv. forseta að flýta afgreiðslu á þessari fsp. Þakka ég hæstv. forseta fyrir lipurð í þeim efnum og sömuleiðis hæstv. forsrh.