30.01.1979
Sameinað þing: 44. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2193 í B-deild Alþingistíðinda. (1780)

52. mál, eignarráð á flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli

Utanrrh. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Ég vænti þess, að hv. fyrirspyrjandi geri sér ljóst, að rn. hlýtur að láta það á vald réttra skattyfirvalda að úrskurða hvar og hvenær skattskylda er. Af þeim sökum treysti ég mér ekki til að láta í ljós ákveðið álit og það mundi ekki hafa neitt gildi umfram það að vera mitt persónulega álit.

Eins og kemur fram í seinni hluta svarsins sem ég las, er eignarréttur í víðtækari skilningi kannske umdeilanlegur, en án efa hefur íslenska ríkið fullkominn yfirráðarétt yfir þessum mannvirkjum um ótakmarkaðan tíma, þannig að ef af einhverjum ástæðum kæmi til þess að afhenda þann rétt til baka jafngildir það nokkurn veginn eignarrétti. Það er a.m.k. alger yfirráðaréttur og afnotaréttur af byggingunni. Í þeim skilningi er málið ekki eins flókið og það er í skattalegum skilningi. En þar verðum við að láta rétt yfirvöld skera úr.