30.01.1979
Sameinað þing: 45. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2210 í B-deild Alþingistíðinda. (1800)
Umræður utan dagskrár
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ég skal verða við því að vera stuttorður. Þetta eru orðnar æðilangar umr.
Hv. síðasti ræðumaður sagði að það, sem við deilum í dag, væri ekki um skattsvik, heldur um framtalsskyldu. Þetta er rétt. Við hefðum átt að deila um þetta, ef hefði átt að taka upp nokkrar deilur yfir höfuð um þetta efni. En hér hefur verið rætt um og deilt um skattsvik og misferli í skattamálum. Það er það sem hefur verið deilt um og talað um, og það hefur verið talað um grunsemdir í garð alþm. fyrir skattsvik. Ég stóð hér upp fyrst og fremst vegna þess sem hæstv. utanrrh. sagði þegar hann þakkaði forsetum Alþingis fyrir þá ákvörðun, sem hæstv. forseti Sþ. lýsti hér í upphafi, að hafa enga leynd á þessum málum. Þegar hæstv. utanrrh. þakkaði fyrir þetta, þá sagði hann um leið, að í þessu fælist viðurkenning forseta Alþingis á réttmæti grunsemdanna, eins og hann orðaði það. Ég vil mótmæla þessu. Ákvörðun forseta Alþingis í þessu efni byggist ekki á neinum grunsemdum í garð alþm. Höfum það í huga, að hver og einn alþm. hefur alltaf getað gert það upp við eigin samvisku, hvernig hann telur fram til skatts, og auðvitað getur hann það enn þá. En þar sem þetta mál er upp komið, þá þótti okkur forsetum augljóst að engin leynd ætti að hvíla yfir þessum málum, það væri engu að leyna. Og ég vil nú mega vænta þess, að þó að þessar umr. hafi verið leiðinlegar að ýmsu leyti og ósmekklegar að öðru leyti, þá geti þær þó gert það gagn, að við alþm. getum látið lokið deilum um þessi mál um leið og sú skipan verður tekin upp, sem hæstv. forseti gat um í upphafi þessara umr. Ef svo verður, þá vænti ég að þetta verði okkur öllum til góðs og samboðið virðingu Alþingis.