30.01.1979
Sameinað þing: 45. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2218 í B-deild Alþingistíðinda. (1809)
105. mál, verksmiðjuframleidd hús
Flm. (Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Hér á þessum fámenna en góðmenna þingfundi, sem nú er haldinn, er ekki rétt að halda langar framsöguræður. Ég vil hins vegar nota þetta tækifæri til að flytja framsögu fyrir þessari till. til þál. af þeirri ástæðu, að það er allknappur tími sem ég hef nú til þess að flytja framsögu, verð það lengi fjarverandi af þingi nú á næstunni, að það er rétt að grípa þetta tækifæri til að koma málinu í n., ef vera kynni að n. afgreiddi þetta mál þá fyrir vorið, á hvern hátt sem það svo yrði.
Hér er um að ræða till. til þál. á þskj. 116, sem hljóðar þannig:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta fara fram á árinu 1979 ítarlega könnun á hagkvæmni verksmiðjuframleiddra húsa. Hafin verði skipuleg áætlunargerð um verulegt átak í þessu efni í ljósi niðurstaðna könnunarinnar. Stuðst verði við reynslu annarra þjóða svo og þá reynslu og þekkingu sem hér er þegar fengin. Kannað skal sérstaklega hvernig framleiðsla og í hvaða formi hentar best til lækkunar byggingarkostnaðar, svo og skulu landshlutasjónarmið höfð rækilega til hliðsjónar við áætlunargerð og aðgerðir allar.“
Ekki þarf að rekja það hér, eins og segir í grg., hve húsnæðismálin snerta alla meira og minna og hve miklu varðar að þar sé haldið þannig á málum að sé til sem mestra hagsbóta fyrir almenning í landinu. Þar eru auðvitað lánamálin mjög veigamikil, hvernig á þeim er haldið, og í mínum huga er það auðvitað mjög ríkt, hversu félagslegt framtak er þar nýtt til hins ýtrasta til þess að ná fram hagstæðum byggingum fyrir það fólk sem þarf á húsnæði að halda, en á ekki mikið fjármagn. Það er enda sannast að í samningum launaþegasamtakanna við ríkisvaldið hafa húsnæðismál æ ofan í æ skipað veglegan sess. Þar hafa að vísu ekki alltaf farið saman loforð og efndir. Það er óþarft að rekja þá þætti sem má merkasta telja í löggjöf um húsnæðismál og eru beint runnir úr þessum kjarasamningum eða fyrir atbeina launþegasamtakanna. Þar er komið inn á hvort tveggja: ákveðna lánaflokka, sem eiga að njóta forgangs, og lánakjörin sjálf svo og ákveðin skipuleg átök í byggingum, eins og Breiðholtsframkvæmdirnar og leiguíbúðir sveitarfélaganna eru gleggst dæmi um, að ekki sé minnst á þá löggjöf sem hér hefur verið merkust, þ.e.a.s. löggjöfina um verkamannabústaði.
Það er tvímælalaus frumskylda þeirrar opinberu stofnunar, sem þessi mál heyra undir hér á Íslandi, að kanna allar tiltækar leiðir til lækkunar byggingarkostnaðar og auka hagkvæmni í byggingum sem allra mest. Samkv. lögum um Húsnæðismálastofnun ríkisins er hér um eina af frumskyldum hennar að ræða. Ég veit að ýmis átök hafa þar verið gerð og ýmsar athuganir í gangi, en engu að síður tel ég að miklu betur mætti gera. Ég hef flutt um þetta fyrirspurnir hér. Ég hef einnig vikið að þessu í frumvarpsgerð. En ég tel að t.d. varðandi þetta tiltekna atriði, sem er þó mjög þýðingarmikið og hefur reynst grönnum okkar á Norðurlöndum mjög mikilvægt í sambandi við lækkun byggingarkostnaðar, hafi ekki verið eins vel staðið að þessum skipulagsmálum og könnunum og vera hefði átt.
Það má segja í raun og veru, að verksmiðjuframleiðsla húsa, eins og hún er nú atgeng t.d. á Norðurlöndunum, sé vart til í þeirri merkingu hér á landi, þó að ýmsir hafi gert til þess tilraunir, bæði varðandi steinsteypt hús og eins varðandi timburhús. Sú tilraun, sem merkust er og lengst er komin, er hjá Húseiningum hf. á Siglufirði. Það er áreiðanlega ljóst öllum sem hafa fylgst þar með málum, að þar voru mörg ljón á veginum, miklir erfiðleikar, og það var hreinlega af miklum vanefnum sem í það var ráðist. Og enn þá gjalda þessir aðilar þess, hvernig að var staðið í upphafi og hve skilningsleysið var í raun og veru mikið á mikilvægi þessa verkefnis ef að því hefði verið staðið með fullri reisn.
Menn greinir auðvitað á um gildi þessa byggingaforms, og ég skil það vel, og vantrú hefur verið ríkjandi á því, að hér væri um eins góðar byggingar og varanlegar að ræða og við þurfum á að halda í okkar veðrasama landi. Ég held að reynslan hafi þó þegar afsannað það, miðað við þó þær ófullkomnu aðstæður sem þau fyrirtæki byggja á sem eru að fást við þessar tilraunir í dag, því varla er hægt að tala um annað en tilraunastarfsemi í þessum efnum. Við erum t.d. með eina trésmiðju austur á Fljótsdalshéraði sem hefur skilað verulegum árangri í því að lækka byggingarkostnaðinn þar. En þau hús hafa verið af nokkrum vanefnum og erfiðleikar í lánafyrirgreiðslum hafa valdið því, að ekki hefur verið hægt að standa eins vel að þeim málum og þeir, sem þar ráða húsum, hefðu viljað gera.
Ég veit að hjá stjórnvöldum er nú viss skilningur á þessu máli, en ég veit líka að það er viss andstaða ýmissa í þjóðfélaginu viss andstaða t.d. hagsmunaaðila í byggingariðnaði. Ég hef orðið hennar var. Ég varð hennar var í sambandi við tilraunir okkar austur á landi til þess að reyna að byggja nýtískuverksmiðju og verksmiðju sem væri raunveruleg verksmiðja sem framleiddi verksmiðjuframleidd hús eins og þau gerast best á Norðurlöndum, þá varð maður var við þessa andstöðu. En það, sem var enn þá verra í raun og veru, var algjört skilningsleysi þeirra aðila sem þurftu að koma til hjálpar varðandi lánsfjármagn. Þar var um algjört nei að ræða hjá öllum nema þá hjá Byggðasjóði, sem er auðvitað ekki annað en viðbótalánasjóður í þessu efni og sýndi þó vissa tilraun í þessu efni til þess að koma til móts við þá sem þar voru að baksa við að koma upp slíkri verksmiðju. Og einmitt þetta, að fá úr því skorið, hversu heppilegur byggingarmáti hér er á ferðinni, hversu mikil hagkvæmni getur verið því samfara að framleiða slík hús, einmitt þetta vil ég fá kannað og þar verði sérstaklega stuðst við þá góðu reynslu, sem nágrannar okkar hafa fengið, og reyndar líka þær fálmkenndu tilraunir sem hér hafa verið gerðar og hafa skilað ótrúlegum árangri miðað við allar aðstæður.
Ég held að það fari ekki á milli mála, að allir vilja lækkun byggingarkostnaðar, þó það sé hins vegar rétt, að við Íslendingar gerum miklar kröfur til húsnæðis, óvenjumiklar e.t.v., og við þurfum á því að halda að vissu leyti vegna veðurfars, vegna þess hvað við byggjum norðlægar slóðir og veðrasamar. En auðvitað er það rétt, að úr hófi keyrir oft öll sú viðhöfn, og allt það umstang, sem er í kringum okkar byggingar, og þau flottheit, sem þar ríkja víða, á ekki að verðlauna með lánum eins og allt of mikið hefur verið að gert. Hreinlega ætti að svipta menn lánsmöguleikum þegar þannig er að staðið, eins og við þekkjum allt of mörg dæmi um, þegar slíkt gengur út í algjörar öfgar. En langflestir eru fyrst og fremst að keppa að því að eignast þak yfir höfuðið, sómasamlegt húsnæði, og það er áreiðanlegt, að fyrir þá væri könnun af þessu tagi og tilraunir í þá átt að lækka hér byggingarkostnað vel þegnar.
Ég vitna í grg. til þess manns sem var frumkvöðull að Húseiningum hf. á Siglufirði og stjórnaði fyrirtækinu á því skeiði þess þegar það var erfiðast. Ég ætla ekki að fara að rekja þessa grg., en ég veit að þessi aðili, Hafsteinn Ólafsson byggingarmeistari, er reiðubúinn að gefa þeirri n., sem fær þetta mál til umsagnar, miklu nánari upplýsingar en eru í grg. um það, hvernig hann hugsar sér slíka verksmiðju, hvernig hann telur að hún verði best rekin og hvernig að málum eigi að standa svo að um verulega lækkun byggingarkostnaðar verði að ræða.
Ég hef verið með frv. nú tvö undanfarin ár um það, að niður verði felldur sá refsiskattur, sem ég kalla, sem er á þessari framleiðslu, þ.e.a.s. söluskattur sem leggst á þessa framleiðslu af því að hún er ekki framkvæmd á byggingarstað, en sams konar byggingar losna auðvitað við. Hér er um háar upphæðir að ræða núna á húsi sem er allvel búið, eitthvað milli 1 og 2 millj., og það munar um minna í sambandi við húsbyggingar en þá upphæð. Þetta hefur ekki fengist enn þá, m.a. vegna vissrar andstöðu í fjmrn. við að setja slíka undanþágu í söluskattslögin. En þessi undanþága er í raun og veru fyrir varðandi sams konar aðgerðir, bara ef þær eru framkvæmdar á byggingarstað. Þarna er verið að refsa þessu byggingarfyrirkomulagi með því að leggja þarna á fullan söluskatt. Við skulum vona að það lagist og þá um leið lagfærist á vissan hátt grundvöllurinn fyrir því, að hægt sé að framleiða hér verksmiðjuframleidd hús sem séu í öllu samkeppnisfær hvað gæði snertir og auk þess á miklu lægra verði.
Nú er það svo, að maður er örlítið feiminn að tala fyrir till. af þessu tagi þegar maður er nýbúinn að hlýða á það í sjónvarpi, að það sé atvinnuleysi fram undan í byggingariðnaði, því sannleikurinn er auðvitað sá, það hefur komið í ljós á Norðurlöndunum, að sá sparnaður, sem liggur í þessum verksmiðjuframleiddu húsum, er fyrst og fremst í sambandi við vinnulaun, fyrst og fremst í sambandi við vinnuna. Að vísu er aukin tækni og ýmislegt annað því um líkt sem kemur þar inn í, en samkv. því, sem ég hef séð hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, er talið að allt að helmingi fleiri manntímar, eins og þeir kalla það svo spaklega, — helmingi fleiri manntímar fari í venjulegt íbúðarhús hér á landi heldur en á Norðurlöndum og það sé fyrst og fremst vegna þess, að þeir noti þar miklu meiri tækni og meiri handvirkni sé hér. Þetta er þeirra álit. Ég hygg að þarna sé atriði sem beri að taka með nokkurri varúð, það sé alls ekki eingöngu vinnan sem þarna kemur inn í, heldur ýmis fleiri atriði sem við leggjum á þessar byggingar, sem ekki er gert á Norðurlöndunum. Engu að síður er þetta viss ábending hvað þetta snertir. Þá auðvitað ber að hafa í huga þær kröfur sem eru gerðar, — meiri kröfur að sumu leyti sem við gerum til okkar íbúðarhúsa heldur en þeir á Norðurlöndum gera þó.
Það var ákaflega áberandi þegar við á Reyðarfirði vorum að leitast við að koma upp verksmiðju af því tagi sem hér er lýst í grg. og átti að verða fullkomin verksmiðja með um 100 húsa framleiðslu á ári og með mjög verulega lækkuðum byggingarkostnaði á þessum húsum, — það var mjög einkennandi hvað menn vildu í raun og veru lítið athuga þessi mál. Það var hreinlega sagt nei á þeim stöðum þar sem við hefðum getað vænst einhvers skilnings. Þar á ég við bæði sjóði eins og Iðnlánasjóð og Iðnþróunarsjóð, sem báðir voru mjög neikvæðir í þessum efnum og vildu í raun og veru lítið kanna þetta. Nú kann það vel að vera, að þessar áætlanir hafi í einhverju verið rangar. Það getur líka vel verið, að þær tölur, sem þarna var á byggt, hafi ekki verið nógu nákvæmar, ekki nógu vel uppbyggðar. Engu að síður hefði þó verið lágmarkið að það hefði verið hægt að fá á þessu grandgæfilega skoðun. Það var að vísu gerð tilraun til þess af hálfu framkvæmdastjóra Framkvæmdastofnunar ríkisins að láta fara fram nokkra úttekt á þessu, en þar vantaði í raun og veru samráð við þann aðila sem stóð að þessum hugmyndum fyrst og fremst, samráð við Hafstein Ólafsson, að mínu viti, til þess að sú athugun hefði getað verið nægilega hlutlaus og nægilega áreiðanleg.
Ég þarf ekki að víkja mörgum orðum að því, sem segir síðast í grg. um það, hve afgerandi áhrif þetta gæti haft á atvinnulíf ákveðinna byggðarlaga þar sem slíkar verksmiðjur gætu risið. Ég held að reynslan frá Siglufirði sé ólygnust í þessum efnum og þar þurfi ekki frekar vitna við. Húseiningar á Siglufirði, það fyrirtæki, hefur orðið veruleg lyftistöng fyrir Siglufjörð, og þannig yrði það auðvitað þar sem þessar verksmiðjur risu, alveg sérstaklega á stöðum sem annars hefðu kannske ónógt atvinnulíf, eins og var t.d. hjá okkur á Reyðarfirði og er enn, þar sem við ætluðum að gera tilraun til þess að bæta það með þessum hætti.
Ég ætla ekki að hafa um þetta miklu fleiri orð hér. Ég treysti því, að sú n. sem fær þetta mál til umsagnar, leiti til þeirra aðila sem hér eiga fyrst og fremst um að fjalla. Það er að vísu rétt, þetta mál hefur verið rætt nokkuð hjá Húsnæðismálastjórn, hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins og hjá Iðnþróunarstofnuninni. Allir þessir aðilar hafa eitthvað fálmað í þessu. Ég segi: fálmað, því það er lítið meira sem gert hefur verið en fálmað, og ég vona að till. fái jákvæða afgreiðslu og menn sjái að nánari könnun á þessu í þá átt leiði til þess, að þarna geti orðið um verulegt átak að ræða til þess að lækka byggingarkostnað. Sú könnun hlýtur að borga sig og hún á fyllsta rétt á sér í öllu því húsnæðisleysi og þeim húsnæðisvandræðum sem víða er við að glíma.
Ég skal aðeins taka það fram í lokin, að ég hygg að hæstv. núv. félmrh. sé með þetta í athugun og hafi verið með það nokkuð lengi og vilji gjarnan að þetta mál nái fram að ganga, að á þessu verði gerð ítarleg könnun, og enginn skyldi fagna því meira en ég, ef það yrði gert áður en þessi till. yrði samþ. En ég vona sem sagt, að hún njóti skilnings, og um leið hlýt ég að vona að það ranglæti, sem viðgengst varðandi þennan byggingarmáta, þ.e.a.s. sá aukasöluskattur sem þessar byggingar verða að þola í dag, það ranglæti verði fyrst numið úr gildi.
Ég vil svo, herra forseti, óska þess, að að lokinni þessari umr. verði þessu máli vísað til hv. atvmn., ég held að það sé réttur vettvangur.