31.01.1979
Neðri deild: 47. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2234 í B-deild Alþingistíðinda. (1823)

159. mál, réttur verkafólks til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla

Guðmundur H. Garðarsson:

Herra forseti. Ég vil segja nokkur orð í sambandi við þetta mál.

Mér finnst út af fyrir sig gott að það fólk, sem vinnur úti á hinum svokallaða frjálsa vinnumarkaði, fái þá réttarbót sem þetta frv. gerir ráð fyrir. En það verður því aðeins réttarbót, að skilyrði séu fyrir hendi hjá þeim aðilum, sem eiga að fullnægja þessum lögum, að fyrirtækjunum sé skapaður sá grundvöllur, að þau beri arð og fái borinn uppi þann kostnað sem sérhvert fyrirtæki verður að fá að gera sem hefur ákveðnar skyldur við starfsmenn sína.

Ég vil vekja athygli á því einnig, og ég segi það fyrir mitt leyti því að ég get lagt efnislegan dóm á þetta frv., að ég tel eðlilegt í sjálfu sér að það verkafólk, sem hér um ræðir úti á frjálsa vinnumarkaðinum, fái þessa réttarbót. Það eru mjög stórir hópar í þessu þjóðfélagi sem hafa öðlast þennan rétt fyrir löngu, bæði hjá sveitarfélögum og ríki, þannig að það út af fyrir sig sýnir að þetta hefur verið framkvæmanlegt á liðnum áratugum gagnvart hluta launþega.

Þetta mál snýst að vissu leyti ekki aðeins um það hvort samráða hafi verið leitað við aðila vinnumarkaðarins eða ekki. Það snýst um það, sem Alþ. hefur oft staðið frammi fyrir, að verða að taka afstöðu til ákveðinna félagslegra atriða. Ég fyrir mitt leyti er ekki ánægður með þá aðferð sem hæstv. ríkisstj. hefur haft í þessum málum yfirleitt, það er allt annað mál. Ég tel að þegar ríkisstj. var að útbúa þennan „pakka“ sem hér um ræðir, þá hafi hún á sama tíma gert ráðstafanir sem verka í þveröfuga átt við tilgang þessara laga. Hún hefur verið að leggja á alls konar álögur í formi skatta og gjalda sem munu veikja þann grundvöll sem þau fyrirtæki standa á sem eiga að fullnægja framkvæmd þessara laga. Það finnst mér mjög ámælisvert. Um það, hvort höfð hafi verið nægileg samráð við verkalýðshreyfinguna og vinnuveitendur, er það að segja að samráð í þessum efnum geta aldrei að mínu mati verið ein út af fyrir sig fullnægjandi. Ég þekki það af eigin reynslu, að öll slík samráð og framkvæmd þeirra er og verður matsatriði. Það er staðreynd, að á þessum samráðsfundum er það oft þannig, að minnihlutasjónarmið, hvort sem það eru minnihlutasjónarmið af hálfu vinnuveitenda eða ákveðinna hópa launþega í samráðsnefnd eða nefndum, fá ekki að njóta sín og á þau er ekki hlustað.

Ég ítreka það og legg áherslu á að þetta frv., ef það verður að lögum, verður ekki réttarbót ef fyrirtækjunum er ekki sköpuð sú rekstraraðstaða sem er auðvitað frumskilyrði þess að þetta geti orðið framkvæmt.

Frv. út af fyrir sig er að mínu mati ekki eins hættulegt í framkvæmd og sumir vilja álíta. Það eru alls konar fyrirvara, t.d. að því er lýtur að sjávarútvegi og fiskiðnaði, þannig að komi upp kringumstæður sem gera óframkvæmanlegt fyrir fyrirtæki að veita fólki vinnu, þá eru ákveðnir fyrirvarar um hvernig farið skuli með það í sambandi við framkvæmd laganna og þær greiðslur sem þau gera ráð fyrir.

Um það atriði, að vinnuveitendur hafi ekki tekið þátt í mótun þessara laga, er það rétt sem kom hér fram, að það hefur greinilega mjög skort á að höfð væru samráð við þá um það mál sem hér um ræðir. En málið hlýtur nú að fara til n. og ég geri ráð fyrir að n. sú, sem fjallar um þetta mál á þingi, hljóti að vísa því til umsagnar hjá þeim aðilum, bæði vinnuveitendum og launafólki, sem um það eiga að fjalla. Þannig ætti að vera hægt að fullnægja því, að vinnuveitendur sem slíkir gætu komið sjónarmiðum sínum á framfæri.

Ég vil endurtaka, að ég tel að í þessu frv. felist ákveðin réttarbót sem er hægt að réttlæta að Alþ. fjalli um, því að það eru mörg fordæmi fyrir því, að Alþ. hafi skapað svipaðan rétt og þessi lög gera ráð fyrir. Hins vegar er ég ekki stuðningsmaður „pakkans“ út af fyrir sig eins og hæstv. ríkisstj. gekk frá honum fyrir áramót, því að ég tel að í tengslum við hann hafi verið samþykkt lög sem stórlega skaði þann aðila sem á að tryggja framkvæmd þessa frv.