01.02.1979
Sameinað þing: 46. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2245 í B-deild Alþingistíðinda. (1832)
165. mál, fiskveiðiheimildir Íslendinga og Færeyinga
Utanrrh. (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Till. sú til þál., sem hér liggur fyrir, er til staðfestingar á niðurstöðu viðræðna milli fulltrúa ríkisstjórnar Íslands og landsstjórnar Færeyja, sem fram fóru dagana 9. og 10. jan. s.l. í Reykjavík, um heimildir annars vegar Íslendinga til kolmunnaveiða innan fiskveiðimarka Færeyinga og hins vegar heimildir Færeyinga til kolmunna- og loðnuveiða við Ísland. Niðurstaðan gerir ráð fyrir að Íslendingar hafi heimild til að veiða allt að 35 þús. smálestum af kolmunna og Færeyingar hafi heimild til þess að veiða allt að 17500 smál. af loðnu og 17500 smál. af kolmunna. Þau fiskiskip, sem umræddar veiðar stunda, skulu eins og áður hlíta sömu reglum og innlend skip við sams konar veiðar, þ. á m. um lágmarksstærð, friðunarsvæði og lokun svæða yfirleitt. Einnig telja aðilar æskilegt að efla samvinnu um rannsóknir á loðnu og kolmunna og samstarf sín á milli við önnur hlutaðeigandi lönd um skynsamlega hagnýtingu loðnu og kolmunna.
10. jan. s.l. var einnig undirrituð bókun varðandi aðstöðu Færeyinga til fiskveiða við Íslands, sem þeir hafa notið samkv. samkomulagi frá 20. mars 1976. Þar er kveðið á um að af heildarafla Færeyinga á Íslandsmiðum skuli þorskafli enn minnka um 1000 lestir, þ.e. úr 7000 smál. í 6000. Í bókuninni eru einnig ákvæði um að hert verði mjög eftirlit með veiðum og afla færeyskra skipa og þau þ. á m. skylduð til þess að koma til hafnar til skoðunar ef æskilegt þykir, halda afladagbók, skila sundurliðuðum aflaskýrslum, og um margháttaða tilkynningarskyldu og ákvæði um eftirlitsmann íslenskra stjórnvalda er fylgist með löndun í Færeyjum, ef þess þykir þörf. Loks var undirrituð yfirlýsing um að efnt skuli að 6 mánuðum liðnum til viðræðna um endurskoðun fiskveiðiheimilda Færeyinga hér við land.
Samkv. ákvæðum stjórnarskrár þarf Alþingi að fjalla um og staðfesta eða synja staðfestingar samkomulaginu um loðnu- og kolmunnaveiðarnar, en þarf ekki að staðfesta bókunina, þar sem hún minnkar það magn sem þeim hefur áður verið heimilað að veiða hér samkv. samkomulagi sem þá var staðfest af Alþ., og ekki er heldur þörf á því að staðfesta yfirlýsinguna. Ég vil þó benda á að bæði bókun og yfirlýsing eru prentuð í heild í grg. till. Vegna þess að ég tel að hið aukna aðhald að veiðum Færeyinga og eftirlit með þeim sé mjög mikilvægur þáttur í þessu samkomulagi ætla ég að lesa hér nokkurn hluta bókunarinnar:
„Færeysk skip, er veiðar stunda samkv. framangreindu“ — þ.e. samningnum frá 1976 og raunar síðara samkomulagi líka — „skulu hlíta sömu reglum og íslensk skip við sams konar veiðar, þ. á m. um möskvastærð botnvörpu og flotvörpu, lágmarksstærðir fisktegunda, veiðibann og aðrar veiðitakmarkanir, friðunarsvæði og aðra lokun svæða. Færeyskum skipum, er veiðar stunda í íslenskri fiskveiðilandhelgi, ber að auðvelda eins og unnt er eftirlit landhelgisgæslunnar með afla og veiðarfærum um borð í skipunum. Telji landhelgisgæslan að fullnægjandi athugun geti ekki farið fram á sjó er hlutaðeigandi færeysku skipi skylt að hlíta fyrirmælum hennar um að halda til nálægrar hafnar þar sem athugun getur farið fram.
Staðsetning færeyskra skipa skal daglega tilkynnt landhelgisgæslunni meðan skipin eru í fiskveiðilandhelgi Íslands, svo og áætlað aflamagn sundurliðað eftir tegundum. Færeyskum skipum er hverju um sig skylt að halda afladagbók í formi sem íslensk stjórnvöld ákveða og skal hún sýnd landhelgisgæslunni þegar óskað er.
Færeyskum skipum ber að tilkynna landhelgisgæslunni um heimferð með þriggja sólarhringa fyrirvara. Við brottför úr fiskveiðilandhelginni skal landhelgisgæslunni tilkynnt um áætlað heildarmagn sundurliðað eftir tegundum.
Staðfestar aflatölur hverrar veiðiferðar skulu sendar Fiskifélagi Íslands símleiðis án tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir löndun. Þegar færeysk skip stunda veiðar í íslenskri fiskveiðilandhelgi telst allur sá afli, sem landað er að lokinni veiðiferð, hafa verið veiddur á Íslandsmiðum. Telji íslensk stjórnvöld þörf á að sérstakur eftirlitsmaður af þeirra hálfu fylgist á staðnum með löndun og aflatölum er landsstjórn Færeyja skylt að sjá svo um að hann geti rækt slíkt starf.
Skipan þessi um veiðar færeyskra skipa á Íslandsmiðum kemur í stað eldra fyrirkomulags um sama efni og getur hvor aðili sagt því upp með 6 mánaða fyrirvara.“
Ég tel, að þessar nýju reglur séu til mikilla bóta og ættu að geta eytt tortryggni sem vart hefur orðið hvað þessar veiðar snertir. Sérstaklega er það mikilvægt, að þegar skip fer til veiða á Íslandsmiðum verður allur afli, sem það landar, talinn veiddur við Ísland. Grunur hefur legið á því, að skipstjórar hafi getað gefið upp við heimkomu að svo og svo mikið af aflanum hafi verið veitt utan íslenskrar landhelgi á heimleið, en það mun þeim ekki verða heimilt hér eftir, heldur allur afli þeirra reiknaður sem veiddur á Íslandsmiðum.
Ástæða er til þess að varpa fram þeirri spurningu: Hvers vegna eigum við yfirleitt að vera að gera samninga við Færeyinga og heimila þeim veiðar í fiskveiðilandhelgi okkar? Fjöldamargir landsmenn munu færa fram röksemdir um að þetta séu náfrændur okkar og vinir sem hafa haft við okkur mikil samskipti, smáþjóð sem er minni en við og lifir á fiskveiðum á sama svæði og að Færeyingar hafi oft komið okkur til hjálpar, t.d. með mannafla, þegar við þurftum á að halda. Allt eru þetta góðar og gildir röksemdir sem ég tek fyllilega undir. En ég tel að til viðbótar séu hagsmunaástæður okkar Íslendinga sem vega mjög þungt í mínum huga og stuðla að því, að við eigum að gera samninga sem þessa og við eigum að halda við samningum við ríki sem eru hér næst okkur, sérstaklega norðan við okkur.
Nú vil ég þessu til stuðnings nefna nokkrar tölur um það, hvar íslenski loðnuflotinn hefur fengið afla sinn. Hygg ég að flestum sé kunnugt, að verulegt aflamagn hefur verið tekið utan við fiskveiðilandhelgi Íslands. Mest hefur það verið handan við þá miðlínu sem við höfum dregið milli Íslands og Grænlands. Hér er þó ekki um ólöglegar veiðar að ræða, vegna þess að landhelgin við Grænland hefur verið færð út að 200 mílum á vesturströndinni og syðst á austurströndinni upp að 67. gráðu, en 67. gráða liggur rétt norðan við nyrstu tanga Íslands. Það, sem er þar fyrir norðan við austurströnd Grænlands, er því opið haf fyrir utan gömlu mörkin. Notað er við stjórn á loðnuveiðum eins konar reitakerfi. Miðunum er skipt niður í reiti sem hafa sín númer, og liggja því fyrir mjög nákvæmar upplýsingar um hvar aflinn hefur fengist. Vitað er um veiðar í hólfum sem eru algerlega Grænlandsmegin, en svo eru æðimörg hólf sem línan á milli Íslands og Grænlands skerst í gegnum, og hafa kunnugir menn áætlað hvernig skipta megi aflanum úr þeim hólfum. Niðurstaðan af þessu er sú, að áætlað er að á s.l. sumar- og haustvertíð hafi loðnufloti okkar fengið á þessu svæði yfir 120 þús. smál. Þetta er á svæðinu frá 67. gráðu til 70. gráðu. En þegar kemur norður fyrir 70. gráðu eru áhrif fiskveiðisvæðis okkar úr sögunni og kemur til lína sem einhvern tíma verður dregin á milli Grænlands og Jan Mayen. Norðan við 70. gráðu veiddu Íslendingar á þessu sama tímabili, sumar- og haustvertíð í fyrra, 55 900 smál.
Floti okkar hefur því fengið um 180 þús. smál. fyrir utan 200 mílna fiskveiðimörk okkar, eins og við drógum þau í yfirlýsingunni um útfærsluna 1975. Þetta er enn í dag á opnu hafsvæði og þessar veiðar eru öllum frjálsar. En menn hljóta að sjá í hendi sinni, að það getur gerst hvenær sem er, að fiskveiðilandhelgi Grænlendinga verði færð út, a.m.k. að þeim línum sem við höfum dregið. Getur verið að við verðum að ræða það við þá. Og við verðum að búast við því, að Norðmenn kunni að færa út mörkin við Jan Mayen áður en mjög langur tími líður, þó að norska stjórnin hafi ekki hugsað sér a.m.k. að gera það á þessu ári. En nú er lagt mjög fast að norskum yfirvöldum að hraða þeirri ákvörðun, og einmitt í dag eru fulltrúar sjómanna og útgerðarmanna frá Vestur- og Norður-Noregi að ræða við þrjá ráðh. úr ríkisstj. í Osló um það mál. Þess vegna tel ég mjög raunhæft fyrir okkur að gera okkur grein fyrir því, að loðnustofninn gengur út fyrir fiskveiðimörk okkar og inn á þetta svæði sem þá og þegar getur orðið að grænlenskri og norskri landhelgi. Hvað eigum við þá að gera? Getum við átt von á því, að loðnuflotinn muni þá fara fram á að leitað verði eftir því að ná einhverju samkomulagi um að fá að fylgja þessum göngum fram og aftur? Vísindamenn okkar munu nú eftir nokkrar vikur hefja samræður um auknar rannsóknir á göngum loðnunnar þarna. Við skulum því gera ráð fyrir að við fáum frekari vitneskju en við höfum í dag um hegðan hennar. En ljóst er að margt er óvíst á þessu svæði, svo margt sem getur breyst á næstu missirum og svo miklir hagsmunir okkar sjálfra í veði, að ég tel tvímælalaust skynsamlegt að halda opnu hóflegu samkomulagi við nágranna okkar sem hlut eiga að máli, en skella ekki á þá hurðum í sambandi við þessi mál.
Nú kunna menn að spyrja: Grænland og Færeyjar, hvað koma þau hvort öðru við? Við getum ekki gengið fram hjá þeirri staðreynd, hvort sem okkur líkar betur eða verr, að Grænlendingar og Færeyingar eru stjórnskipulega tengdir og þar geta verið gagnkvæm áhrif í þessum efnum. Hitt tel ég þó meginatriðið, að við höldum þannig á þessum málum í heild að skella ekki hurðum, heldur reyna eftir því sem við sjáum okkur framast fært að halda opnum leiðum til viðræðna við þessa aðila vegna þess hvað líkur virðast sterkar á því, að við þurfum að sækja til þeirra á komandi árum, þó að staðan sé ekki þannig í dag, heldur sú að Færeyingar sækja til okkar.
Önnur veigamikil hagsmunaástæða er fyrir því, að ég tel að við eigum að gera samninga við Færeyinga eins og við sjáum okkur framast fært á hverju ári varðar kolmunnann. Nú er vaxandi áhugi á kolmunnaveiðum hér á landi. Margir óttast að loðnan muni taka sveiflur eins og síldin áður gerði og magn hennar kunni að snarminnka þannig að hún geti ekki veitt okkur þá björg í bú sem hún hefur gert nú um sinn. Þeir líta einna helst til kolmunnans sem þess fisks sem þá gæti tekið við sem bræðslufiskur fyrir okkur og flota okkar.
Mér er sagt, að kolmunnastofninn sé gífurlega stór, ég hef heyrt nefndar 5–6 milljónir tonna sem áætlun, en tiltölulega lítið sé veitt af honum enn þá, einhvers staðar innan við eina, e.t.v. hálfa millj. tonna. Mér er enn fremur sagt af kunnugum mönnum, að þessi kolmunnastofn gangi í tiltölulega þéttum torfum norður eftir Atlantshafinu, fari í gegnum landhelgi Færeyinga og haldi þaðan áfram inn í fiskveiðilandhelgi okkar Íslendinga og eftir það skilst mér að hann dreifist. Veiðar á kolmunna hafa yfirleitt verið mjög miklar á skömmum tíma vegna þess hve stórar og þéttar torfur ganga eftir tiltölulega takmarkaðri braut, ef svo má segja, um þetta svæði. Þegar við snúum okkur meira að kolmunnanum en við höfum enn þá gert tel ég að það muni tvímælalaust verða hagur fyrir þann flota, er þær veiðar stundar, að geta byrjað fyrr og sunnar, geta farið suður í landhelgi Færeyinga, fylgst síðan með stofninum, þannig að þessum veiðum og vinnslu verði dreift, en verði ekki örstutt tímabil eftir að torfurnar koma inn í fiskveiðilandhelgi okkar. Til þess að það geti orðið þurfum við að sjálfsögðu að hagnýta okkur þá heimild til kolmunnaveiða sem við höfðum s.l. ár og nýttum ekki til fulls og höfum nú aftur til að veiða 35 þús. tonn. Færeyingar fá hins vegar samkv. þessu samkomulagi, sem gert var, að veiða dálítið magn af kolmunna hérna megin við miðlínu milli Íslands og Færeyja. Ég geri því ráð fyrir að í framtíðinni kunni að fara svo, að það verði mikið hagsmunamál fyrir okkur að geta gert samkomulag um kolmunna á móti kolmunna, þannig að báðir aðilar geti fengið út úr því lengra veiðitímabil og geti fylgt torfunum eftir allt sunnan úr landhelgi Færeyja og hingað norður upp undir Austurland.
Ég vil að lokum nefna það, að með því samkomulagi, sem gert var, var skorið niður það aflamagn sem Færeyingum hafði áður verið veitt. Loðnumagnið var minnkað um helming, niður í 17 500 lestir, sem er örlítið meira en 10% af því sem við veiðum utan okkar eigin 200 mílna marka, þar sem nú er opið haf. Enn fremur voru þorskveiðarnar, sem eru bundnar í samningi frá 1976, minnkaðar öðru sinni um 1000 tonn. Sá samningur var ekki opinn og það var því eingöngu með því að gera það að algeru skilyrði fyrir nokkrum samningi yfirleitt að við gátum fengið Færeyinga til að fallast á þá breytingu. Ég tel því að í samræmi við okkar eigin erfiðleika höfum við dregið verulega úr því fiskimagni sem við heimiluðum þeim, og ég hygg að öllum sé ljóst þrátt fyrir fögur orð og þakkarorð í lok viðræðna, að því fór víðs fjarri að þeir yndu vel við sinn hag.
Ég hef gert grein fyrir þessu samkomulagi og einnig meginástæðunum fyrir því, að ég tel að við höfum átt að gera svona samkomulag og eigum að hafa gætur á svæðinu fyrir norðan okkur, þar sem mörg tíðindi eiga eftir að gerast varðandi fiskveiðimörk og fiskstofna.
Herra forseti. Ég legg til, að till. verði að lokinni þessari umr. vísað til síðari umr. og utanrmn.