01.02.1979
Sameinað þing: 46. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2258 í B-deild Alþingistíðinda. (1835)
165. mál, fiskveiðiheimildir Íslendinga og Færeyinga
Viðskrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Það er í fyrsta lagi þannig varðandi þessa samninga, að aldrei var borin upp efnislega í ríkisstj. sú niðurstaða sem fékkst í viðræðum hæstv. utanrrh. og hæstv. sjútvrh. við Færeyingana. Hún var aldrei borin upp í hæstv. ríkisstj. og hefur enn ekki verið borin upp þar. Það hefur ekki heldur verið borið upp í hæstv. ríkisstj., hvort leggja mætti fram á Alþ. þá till. til þál. sem hér liggur fyrir. Henni var dreift á borð þm. á dögunum án þess að um það hefði sérstaklega verið fjallað í ríkisstj. Það er í annan stað ljóst, og vil ég láta það koma fram, að þá fyrst fengum við þessa samninga í hendur að við gengum eftir því á ríkisstjórnarfundi, spurðum að því allra vinsamlegast, hvort ekki væri hugsanlegt að við fengjum að sjá eintak af þessu plaggi. Það er loks ljóst í þessu máli, að Alþb. sem slíku var aldrei gefinn kostur á aðild að viðræðunefndinni við Færeyinga. Og það er rangt, sem hæstv. utanrrh. sagði í þeim efnum áðan, að það væri eftir venju. Alltaf þegar rætt hefur verið við útlendinga um fiskveiðar í íslenskri landhelgi, t.d. á tímum síðustu vinstri stjórnar 1971–1974, hafa í viðræðunefndum verið fulltrúar allra stjórnarflokkanna. Þannig á það að vera, og annað er vitaskuld algerlega óþolandi.
Ég er þeirrar skoðunar, að eftir atvikum hafi tekist sæmilega til í þessum samningum við Færeyinga, og ég mun styðja þá hér á Alþ. Það breytir ekki því, að ég tek undir þá gagnrýni sem flutt hefur verið á þá málsmeðferð sem hæstv. utanrrh. og hæstv. sjútvrh. hafa viðhaft í þessu máli.
Ég vil einnig bæta því við, að ég tel að það sé rétt og eðlilegt að Íslendingar ákveði nú á næstunni að segja upp öllum þorskveiðisamningum og fiskveiðisamningum við útlendinga innan íslensku landhelginnar. Þetta er skoðun sem hæstv. sjútvrh. hefur hreyft á opinberum vettvangi, og undir hana höfum við tekið og ég hreyft henni sérstaklega í ríkisstj.
Þessar aths., herra forseti, taldi ég óhjákvæmilegt að láta koma fram vegna þeirra ummæla sem hæstv. utanrrh. lét frá sér fara áðan.