05.02.1979
Efri deild: 53. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2294 í B-deild Alþingistíðinda. (1851)
Umræður utan dagskrár
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Ég vil vekja athygli á því að umr. utan dagskrár hafa nú staðið í meira en helming af þeim fundartíma sem ætlaður er deildinni í dag. Ég vil líka minna á að fyrir liggur dagskrá og ætlunin er að taka dagskrána fyrir. Ég vil mælast til þess við þá, sem kunna eiga eftir að taka til máls, að þeir hafi þetta í huga.