06.02.1979
Sameinað þing: 47. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2323 í B-deild Alþingistíðinda. (1867)
162. mál, málefni tengd varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli
Efni:
Fyrirspurn til utanríkisráðherra um málefni tengd varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli.
Fyrirspurn þessi er í þremur liðum, og fara skrifleg svör við þeim hér á eftir, eins og um var beðið.
Um lið 1.: Innflutningur á landbúnaðarvörum til varnarliðsins hefur eins og annar innflutningur til þess grundvallast m.a. á 3. lið í 8. gr. viðbætis við varnarsamninginn, en í upphafi hans segir svo: „Hervöld Bandaríkjanna mega flytja inn tollfrjálst útbúnað handa liði sínu og hæfilegt magn vista, birgða og annars varnings til nota fyrir liðsmenn eina og skyldulið þeirra svo og fyrir verktaka Bandaríkjanna og menn í þeirra þjónustu, sem eigi eru íslenskir þegnar.“
Allt frá því að varnarsamningurinn kom til framkvæmda með lögum nr. 110/1951 hefur varnarliðið flutt inn allar þær nauðsynjar, sem það hefur talið sig þurfa, þ. á m. landbúnaðarafurðir. Utanríkisráðuneytið hefur aldrei efast um að þessi innflutningur væri heimill lögum samkvæmt. Fyrir þá, sem vilja draga þetta í efa, má benda á, að þessi framkvæmd hefur staðið yfir í nærfellt 28 ár og gæti því þess vegna vel hafa unnið sér hefð.
Um lið 2, hvort skyldulið varnarliðsmanna sé undanþegið atvinnuleyfi og skattskyldu skal eftirfarandi tekið fram:
1. Í viðbæti um réttarstöðu liðs Bandaríkjanna og eignir þeirra (sbr. lög nr. 110/1951) segir í 1. gr., að orðin „lið Bandaríkjanna“ taki yfir liðsmenn í herliði Bandaríkjanna, og starfslið, sem herliðinu fylgir og er í þjónustu þess, enda hafi menn þessir hvorki ríkisfang né fasta búsetu á Íslandi, heldur dveljist þar vegna framkvæmda á samningi þessum.
Þeir aðilar, sem þessi grein tekur til; þurfa ekki atvinnuleyfi hér til starfa fyrir varnarliðið.
2. Í framangreindum viðbæti er oft rætt um „skyldulið liðsmanna á Íslandi“ og það talið hafa sömu réttindi og skyldur og liðsmennirnir eftir því sem við á.
Að því er tekur til atvinnuréttinda fyrir varnarliðið, þá má vitna í 1. tl. 7. gr., en þar segir svo: „Nú dvelst á Íslandi maður í liði Bandaríkjanna, maður í skylduliði slíks manns eða starfsmaður, sem ekki er íslenskur þegn, en ráðinn hefur verið til starfa vegna framkvæmda samkvæmt samningi þessum og er þar einungis vegna þess starfa, og skal þá slík dvöl um stundarsakir hvorki talin heimilisfang né búseta og skal ekki út af fyrir sig skapa honum skattskyldu á Íslandi, hvorki að því er varðar tekjur né eignir, sem hann aflar þar eða á þar vegna téðrar dvalar sinnar þar. Eigi skal heldur taka dánargjöld af búi slíks aðila.“
Hér er gert ráð fyrir að skyldulið geti haft tekjur á Íslandi vegna starfa fyrir varnarliðið, og í þann rúmlega aldarfjórðung, sem samningur þessi hefur verið í gildi, hefur aldrei verið krafist atvinnuleyfis af þessu fólki.
Um lið 3. Búseta varnarliðsmanna utan varnarsvæðisins hefur átt sér stað með leyfi íslenskra stjórnvalda. Varnarliðið hefur nú verið á Íslandi í 27 ár og hafa einstakar fjölskyldur varnarliðsmanna verið búsettar í mörgum bæjar- og sveitarfélögum á tímabilinu. Í samkomulagi milli Íslands og Bandaríkjanna varðandi varnarsamninginn frá 1951, sem gert var í október 1974, er svo hljóðandi ákvæði:
„Bandaríkin munu leitast við að byggja íbúðarhúsnæði innan hins umsamda svæðis, er nægi til að hýsa þær fjölskyldur varnarliðsmanna, sem rétt eiga á slíku húsnæði.“
Um 20 fjölskyldur munu nú búa utan varnarsvæðisins. Leiga fyrir húsnæði hefur alla tíð verið samkomulagsatriði milli leigusala og leigutaka. Fer það ekki milli mála, að miklar tekjur hafa orðið til í nágrannasveitarfélögum Keflavíkurflugvallar m.a. fyrir þessa búsetu.
Ekki er ljóst af fyrirspurninni á hvern hátt sveitarfélögin telja sig eiga endurkröfurétt vegna þjónustu við varnarliðsmenn, en augljóst má vera, að sé um skaðabótaábyrgð að ræða, beri íslensk stjórnvöld þá ábyrgð. Hins vegar er ekki stætt á því fyrir hið opinbera að játa umsvifalaust bótaskyldu eða semja um skaðabætur. Atbeini dómstóla verður til að koma. Ef sveitarfélög á Suðurnesjum hafa uppi kröfur um skaðabætur sýnist því eina raunhæfa leiðin að stefna utanríkisráðherra og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs til greiðslu þessara bóta. Stjórnskipuleg rök eru ekki fyrir hendi til þess að skattleggja allan almenning til slíkrar greiðslu til sveitarfélaganna án dómsúrskurðar.