06.02.1979
Sameinað þing: 47. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2325 í B-deild Alþingistíðinda. (1868)
328. mál, nafnlausar bankabækur
Fyrirspyrjandi (Stefán Jónsson):
Herra forseti. Ég ætla ekki að orðlengja grg. fyrir þessari fsp. Hún var borin fram í haust. Tilgangurinn er að reyna að fá varpað örlitlum ljósgeisla inn í það sem nefnt hefur verið myrkviði íslenskra fjármála, ef unnt væri. Það hefur dregist að fá svar við þessari fyrirspurn. Ráðh. sagði okkur á sínum tíma að ástæðan væri sú, að erfiðlega gengi að ná upplýsingunum saman. Í dagblöðunum greindu bankastjórar hins vegar frá því, að nafnlausar bankabækur væru ákaflega fáar, allt að því, fannst manni á ummælum þeirra, átakanlega fáar og sárgrætilega lítið fé væri geymt á slíkum bókum.
Ég er ráðh. þakklátur fyrir að hafa haldið áfram að nudda í bankastjórunum um að fá upplýsingar, sem nægðu í svar við þessari fsp. minni, og vænti þess, að við fáum þá úr því skorið nú, hversu margar þessar nafnlausu bankabækur séu, hversu mikið fé sé í slíkum bankabókum geymt, og e.t.v. kynnum við þá að geta dregið skynsamlegar ályktanir af niðurstöðu þessarar athugunar.