06.02.1979
Sameinað þing: 47. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2325 í B-deild Alþingistíðinda. (1869)
328. mál, nafnlausar bankabækur
Viðskrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Þegar fyrirspurn hv. 4. þm. Norðurl. e. var lögð fram kom ég henni tafarlaust á framfæri við Bankaeftirlitið, og þá kom í ljós að ekki hafði á vegum Bankaeftirlitsins farið fram könnun á þessum nafnlausu bankabókum nema í mjög takmörkuðum mæli. Þær höfðu verið taldar í tveimur aðalbönkum ríkisbankanna, en að öðru leyti hafði ekki farið fram sérstök könnun á þessum bókum. Með bréfi, dags. 5. des. s.l., fól viðskrn. því bankaeftirliti Seðlabankans að kanna þetta mál sérstaklega.
Í svari Bankaeftirlitsins kemur eftirfarandi fram: „Bankaeftirlitið sendi öllum innlánsstofnunum, bönkum, sparisjóðum og innlánsdeildum samvinnufélaga bréf, dags. 18. des. s.l., þar sem farið var fram á að gefnar væru upplýsingar um fjölda og heildarinnistæður á sparisjóðsbókum sem ekki væru skráðar á persónuleg nöfn eða önnur nöfn sem telja mætti rétt nöfn lögaðila. Upplýsinganna var óskað miðað við innstæður bókanna 30. nóv. s.l.
Svör bárust frá öllum innlánsstofnunum. Fjöldi sparisjóðsbóka með þessum hætti reyndist vera 7917 talsins með heildarinnistæðum samtals 2799 millj. kr. Heildarinnistæður á sparisjóðsbókum hjá bönkum og sparisjóðum námu samtals 63.5 milljörðum kr. 30. nóv. s.l. Upplýsingar um heildarinnistæður í innlánsdeildum samvinnufélaga 30. nóv. eru ekki fyrir hendi, en innistæður þar pr. 30. sept. s.l. námu samtals 3.1 milljarði kr. Sé miðað við heildarinnstæður á sparisjóðsbókum hjá bönkum og sparisjóðum pr. 30. nóv. og innlánsdeildum samvinnufélaga 30. sept. er hlutfall ónafnskráðra innistæðna 30. nóv. 4.2% af öllum innistæðum. Sé miðað við heildarinnistæður, velti- og spariinnlán, þar með taldir vaxtaaukainnlánsreikningar og innlendir. gjaldeyrisreikningar, sem námu hjá sömu aðilum miðað við sama tíma samtals 130 milljörðum 715 millj. kr., er hlutfall ónafnskráðra innstæðna 2.1%.“
Í svari Bankaeftirlitsins til viðskrn. segir enn fremur: „Bankaeftirlitið vill taka fram, að upplýsingar eru byggðar á könnun sem framkvæmd var af hálfu starfsmanna viðkomandi innlánsstofnunar. Starfsmenn Bankaeftirlitsins hafa ekki framkvæmt heildarathugun á fjölda og innstæðum ónafnskráðra sparisjóðsbóka hjá innlánsstofnunum. Hins vegar hafa verið framkvæmdar slíkar athuganir hjá einstaka banka og sparisjóði á undanförnum árum. Samanburður þeirra athugana við könnunina nú staðfestir framangreinda niðurstöðu.“
Í framhaldi af þessari fyrirspurn hv. 4. þm. Norðurl. e. kannaði ég það, hversu háttað væri heimildum um þessar bækur. Ég held að ég lesi kafla úr lögfræðilegri grg., sem ég hef látið taka saman um þetta mál, og reyni að hafa þetta eins stutt og mögulegt er.
Í þessari grg. kemur fram, að í lögum um viðskiptabankana sjö er ekki að finna ákvæði er lúta sérstaklega að nafnskráningu sparisjóðsinnstæðna. Í reglugerðum bankanna eru mismunandi orðuð ákvæði um móttöku sparifjár á sparisjóðsbækur. Í engri þeirra er kveðið á um skyldu til nafnskráningar, en í reglugerð fyrir Landsbankann og Iðnaðarbankann eru samhljóða ákvæði, sem hljóða svo: „Sparisjóðsinnstæður skulu að jafnaði bera nafn eiganda þeirra, en heimilt er einnig að auðkenna þær eða að þær séu nafnlausar án einkenna.“ Það eitt, að heimildin til að leggja fé inn á ónafnskráða eða ekki auðkennda reikninga er svo afdráttarlaus í fyrrgreindum reglugerðarákvæðum, er nægilegt til að viðurkenna sams konar fyrirkomulag hjá öðrum bönkum að mati Bankaeftirlitsins. Þessi reglugerð, sem hér um ræðir og er eina tilvikið þar sem í reglum eða lögum er heimild til ónafnskráðra bóka, var sett árið 1962 um Landsbanka Íslands og árið 1975 um Iðnaðarbanka Íslands.
Í öðrum reglum og lögum er engar sérstakar heimildir að finna í þessum efnum, og ég hef kannað lauslega hvort hugsanlegt væri að banna þessa ónafnskráðu reikninga með einfaldri reglugerð án lagabreytingar. Í fljótu bragði sýnist mér að svo sé. Hins vegar hafa þessar ónafnskráðu bækur og þessir ónafnskráðu reikningar tíðkast um mjög langt árabil eða svo lengi sem elstu menn muna í þessu kerfi, og þess vegna er talið mjög mikilvægt að mati þeirra, sem hafa forsjá bankamála, að sett verði í lög afdráttarlaust ákvæði sem bannar ónafnskráða reikninga.
Ætlun núv. ríkisstj. var sú, að á þessu þingi yrði lagt fram frv. um bankamál. Hvort sem tekst að afgreiða það frv. hér eða ekki er ljóst að í þessum efnum, að því er varðar ónafnskráðar innistæður, er um að ræða meinsemd sem verður að taka á. Fari svo að Alþ. það, sem nú situr, afgreiði ekki nein ákvæði í þessa veru sem ég gat hér um, þá er sá möguleiki eftir að sett verði reglugerð sem taki þarna af öll tvímæli og banni þessar bækur.
Í skjóli nafnleysisins þrífst margs konar gróður, margs konar illgresi í þessu þjóðfélagi. Fyrir utan nafnlausar bankabækur, sem eru kannske saklausari hlutinn af þessu öllu saman, er um að ræða margvíslega aðra þætti sem þarna þarf að taka á, almenna bankaleynd og fleira.
Ég vil einnig láta þess getið, herra forseti, áður en ég vík úr þessum ræðustól, að ég hef farið þess á leit við Seðlabankann, að hann tilnefni menn í n. ásamt viðskrn. til þess að semja frv. að lögum um skuldabréf hér á landi. Slík lög hafa ekki verið til og ég tel að í slíkum lögum, ef sett yrðu, ætti einnig að koma í veg fyrir það, að menn gætu iðkað viðskipti með svokölluðum nafnlausum handhafaskuldabréfum.
Ég vænti þess, að fyrirspurninni sé svarað.