06.02.1979
Sameinað þing: 47. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2328 í B-deild Alþingistíðinda. (1872)
328. mál, nafnlausar bankabækur
Jón G. Sólnes:
Herra forseti. Aðeins örstutt aths. Ég vil leiðrétta það, að ég gaf ekkert tilefni til þess í ummælum þeim sem ég hafði fyrir máli mínu, að fé, sem er safnað á þessar nafnlausu bækur, væri að mínu mati allt saman skattsvikið. Það er mesti misskilningur. Af eigin reynslu og þekkingu af starfi mínu í banka veit ég að það eru ákaflega margar ástæður fyrir því, að þessar nafnlausu bækur eða þessar handhafabækur eru til. Það eru ýmsir klúbbar, það eru ýmsir sérvitringar og það er ýmislegt sem þar kemur til greina. Ég fullyrði að þarna er ekki mikið fé sem mundi færast undir það sem hv. fyrirspyrjandi kallar skattsvik.
Hitt er svo annað mál og ég ætla enn að ítreka það, að menn hafa áhyggjur af því, að sparnaður almennings sé minni en hann ætti að vera. Ég vil í því sambandi fullyrða að það er mjög rík eðlishvöt hjá íslensku þjóðinni og hjá almenningi atmennt að eiga svolítið fé í handraðanum. En einnig er mjög ríkjandi sú skoðun meðal almennings, að hann vill hafa fullan trúnað milli þess, sem á féð, og þeirrar stofnunar, sem geymir það. Ég get til sönnunar máli mínu bent á það, að þegar ég var starfsmaður í banka, þá var það ákaflega oft að fólk bara út af þessu óskaði eftir því, að forstöðumaður stofnunar geymdi bækurnar. Það vildi ekki einu sinni koma sjálft í afgreiðslu bankans þó að bækur væru nafnskráðar. Það vildi ekki koma sjálft og láta sjá sig í banka til að láta færa inn vexti eða annað. Þetta er bara sérviska sem hver og einn hefur og verður að hafa leyfi til að hafa.
Ég verð að segja það og skal enda orð mín með því, að ef þjóðfélagið í heild vill ekki meta starfsemi sem því er jafnmikil lífsnauðsyn og það, að heilbrigð sparifjármyndun sé meðal almennings til þess að standa undir nauðsynlegu rekstrarfé handa atvinnuvegum þjóðarinnar, — ef þjóðin ekki vill meta það að neinu á þann veg að gera sparnað eitthvað aðlaðandi, frekar en hafa eitthvert ofsóknarráð, þá erum við á rangri leið.