06.02.1979
Sameinað þing: 47. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2330 í B-deild Alþingistíðinda. (1875)

333. mál, störf nefndar til að kanna framleiðslu- og þjónustustarfssemi hins opinbera

Fyrirspyrjandi (Friðrik Sophusson):

Herra forseti. Hinn 30. mars 1977 skipaði Matthías Á. Mathiesen þáv. hæstv. fjmrh. n. til að meta hvort ýmissi framleiðslu- og þjónustustarfsemi, sem hið opinbera hefur með höndum, sé betur fyrir komið hjá einstaklingum eða samtökum þeirra og jafnframt hvort aðild ríkisins að atvinnustarfsemi í landinu í samkeppni við einkaaðila sé æskileg. Í n. voru skipuð Árni Vilhjálmsson prófessor, sem var formaður hennar, Gísli Blöndal hagsýslustjóri, Guðríður Elíasdóttir formaður verkakvennafélagsins Framtíðarinnar í Hafnarfirði, Ingi Tryggvason fyrrv. alþm., sem átti sæti í fjvn., Ólafur Sverrisson kaupfélagsstjóri Kaupfélags Borgfirðinga, Steinþór Gestsson fyrrv. alþm., sem einnig átti sæti í fjvn., og Víglundur Þorsteinsson forstjóri í Reykjavík. Hinn 1. sept. 1978 tók Brynjólfur Sigurðsson, settur hagsýslustjóri, sæti Gísla Blöndal í nefndinni.

Eins og sjá má af þessari upptalningu átti sæti í þessari n. fólk úr mismunandi stéttum og með mismunandi stjórnmálaskoðanir. N. hefur þegar skilað niðurstöðum kannana á 5 aðilum: Landssmiðjunni, Siglósíld, Ferðaskrifstofu ríkisins, Bifreiðaeftirlitinu og Slippstöðinni á Akureyri. N. varð sammála um niðurstöður í öllum greinum nema varðandi Slippstöðina á Akureyri.

Hinn 19. des. 1977 skilaði n. áliti um Landssmiðjuna og Siglósíld. Í bréfi til ráðh. segir orðrétt, með leyfi hæstv, forseta:

„Meginniðurstaða n. um Landssmiðju er sú, að sem ríkisfyrirtæki skuli hún lögð niður og þeir fjármunir fyrirtækisins, sem ríkið kýs ekki að nota til annarrar starfsemi, verði seldir.

Um Siglósíld er meginniðurstaða n. sú, að gerðar verði ráðstafanir til þess að selja fyrirtækið, t.d. með þeim hætti að hrein eign fyrirtækisins yrði seld aðilum, sem stofnuðu félag til að kaupa og reka fyrirtækið, eða með þeim hætti, að ríkið stofnaði fyrst hlutafélag um reksturinn og seldi að því búnu meiri hlutann aðilum sem vildu standa saman að rekstrinum.“

31. maí 1978 skilaði n. samhljóða áliti og niðurstöðum um Ferðaskrifstofu ríkisins. Í bréfi til ráðh. kemur fram sú meginniðurstaða, að vinna beri að því að starfsemi Ferðaskrifstofu ríkisins verði komið úr umsjá ríkisins. Í álitinu kemur fram að fyrirgreiðstu við ríkisstarfsmenn megi koma fyrir hjá annarri ríkisstofnun. Enn fremur segir orðrétt í áliti n., með leyfi forseta:

„Sá þáttur í starfsemi Ferðaskrifstofu ríkisins, sem er vísir að miðlun gistihúsnæðis, gæti orðið verkefni sérstakrar bókunarmiðstöðvar. Slík miðstöð yrði væntanlega byggð upp með þátttöku þeirra hagsmunaaðila sem áhuga hefðu á samstarfi. Hið sama fyrirtæki gæti jafnframt annast þá kynningu á heildarframboði skipulagðra ferða sem Ferðaskrifstofa ríkisins hefur staðið að. Þeim hluta af starfsemi Ferðaskrifstofu ríkisins, sem er fólginn í eigin hópferðum og rekstri Edduhótela, ætti að vera hægt að koma í hendur einkaaðila. Virðist n. helst koma til greina sá háttur, að ríkið stofnaði hlutafélag um þennan rekstur og byði hlutabréf til kaups þeim aðilum sem sýnt hafa ferðamálum áhuga og/eða hlotið þjálfun á því sviði, svo sem starfsfólki fyrirtækisins, þeim ferðaskrifstofum, sem hafa annast þjónustu við erlenda ferðamenn, og forráðamönnum gistihúsa. Yrði það verkefni samgrn. að annast undirbúning þessara aðgerða. Vegna þeirra öryggissjónarmiða, sem getið hefur verið, mundi ríkið þá fyrst losa sig til fulls við eignarhluta sinn þegar sýnt þætti, að reksturinn gengi eins og til er ætlast.“

Hinn 24. okt. s.l. sendi síðan n. frá sér tvö álit: annars vegar um Bifreiðaeftirlitið og hins vegar um Slippstöðina á Akureyri. Um Bifreiðaeftirlitið skilaði n. samhljóða niðurstöðu og í bréfi til ráðh. segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Nefndin færir þrjár ástæður fyrir þessu áliti.

Í fyrsta lagi er byggt á niðurstöðum samanburðar á vissum kostnaðarliðum þeirra tveggja hátta um fyrirkomulag sem um er að velja, enda er miðað við að skoðun ökutækja verði í framtíðinni mun rækilegri en tíðkast hefur. Þeir aðilar, sem látið hafa í té umsögn um þetta atriði, Hannarr sf. og Bílgreinasambandið, eru að vísu ekki á eitt sáttir um þennan kostnað. Í frumáætlun sinni telur Hannarr sf. þennan kostnað vera óbreyttu kerfi í vil um a.m.k. 40 millj. kr. á ári. Bílgreinasambandið nefnir ekki tölur í sinni umsögn um áætlun Hannars sf., en í áliti þess felst rökstudd niðurstaða um að þessi kostnaður yrði hærri við óbreytt fyrirkomulag.

Í öðru lagi mundi skoðun hjá verkstæðum valda eigendum ökutækja minni fyrirhöfn heldur en áframhaldandi skoðun hjá Bifreiðaeftirlitinu. Í þessu felst sparnaðarmöguleiki sem mundi að áliti n. verða meiri en sá kostnaðarauki sem annar umsagnaraðilinn, Hannar sf., hefur komist að niðurstöðu um og áður hefur verið getið.

Í þriðja lagi höfðar n. til eindreginna óska þeirra neytendasamtaka, sem málið er skyldast, þ.e.a.s. Félags ísl. bifreiðaeigenda, um breytingu á fyrirkomulagi skoðunar.“

Eins og ég sagði í upphafi var n. klofin í afstöðu sinni til sölu hlutabréfa ríkissjóðs í Slippstöðinni hf. á Akureyri. Meiri hl. n. komst að þeirri niðurstöðu, að rétt sé að gerðar verði ráðstafanir til þess að ríkið selji sinn hlut, en minni hl., þeir Ingi Tryggvason og Ólafur Sverrisson, taldi ekki rétt, að ríkissjóður seldi hlutabréf sín í fyrirtækinu. Í ítarlegri skýrslu, sem send var ráðh. hinn 24. okt. 1978, er álit n. rökstutt rækilega.

Herra forseti. Í naumt skömmtuðum fyrirspurnatíma gefst ekki tækifæri til að fjalla um þetta mál með þeim hætti sem æskilegt hefði verið. Að mínu áliti hefur n. unnið ágætt starf og er enn að störfum, eftir því sem ég best veit. Hins vegar hefur minna borið á kynningu á niðurstöðu n. og enn síður hefur örlað á stefnumótun stjórnvalda í þessum efnum. Það er af þeim ástæðum sem ég hef lagt fram eftirfarandi tvær fsp. til hæstv. fjmrh. á þskj. 58:

„1. Hvernig hyggst rn. kynna þær niðurstöður, sem n. sú, sem skipuð var hinn 30. mars 1977, hefur nú þegar lagt fram um Landssmiðjuna, Siglósíld, Ferðaskrifstofu ríkisins, Bifreiðaeftirlitið og Slippstöðina á Akureyri? 2. Mun ríkisstj. beita sér fyrir því, að till. n. nái fram að ganga?“