26.10.1978
Sameinað þing: 9. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í B-deild Alþingistíðinda. (191)
5. mál, iðngarðar
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Á iðnkynningarári var oft rætt um þetta mál, byggingu iðngarða eða iðnaðarhúsnæðis sem ríkið og sveitarfélögin, einstök iðnaðarfyrirtæki og sjóðir iðnaðarins stæðu sameiginlega að. Það er ljóst, að hér er um mjög mikilsvert mál að ræða, og samtök iðnaðarins og Samband ísl. sveitarfálaga hafa rætt málið og gert um það ályktanir.
Meðan á iðnkynningarári stóð gerði ég þetta mál oftar en einu sinni að umræðuefni. Málið var til rækilegrar athugunar í iðnrn. til að kanna sem rækilegast ýmsar hliðar þess. Þeim athugunum og tillögugerð var ekki lokið við stjórnarskiptin, en eins og hæstv. iðnrh. hefur tekið fram, er þessum athugunum haldið áfram, einkum af hinni nýskipuðu iðnþróunarnefnd. Ég tel að hér sé um mjög markvert mál að ræða og æskilegt að Alþ. lýsi vilja sínum og stuðningi við málið, og ég mæli því eindregið með samþykkt þeirrar tillögu sem hér liggur fyrir.