08.02.1979
Sameinað þing: 49. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2451 í B-deild Alþingistíðinda. (1926)
36. mál, fisklöndun til fiskvinnslustöðva
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Með þessari till. er hreyft athyglisverðu máli. Efnislega hef ég áður, eins og hv. fyrri flm. þessarar till. gat um, lýst skoðun minni og hún er óbreytt. Ég tel á margan hátt eðlilegra og betra í framkvæmd, að það væri hægt að mynda samstarf á frjálsum grundvelli um tiltekin löndunarsvæði í samræmi við samgönguaðstæður og samskipti á milli fiskvinnslustöðva. Á einstaka stað hefur slíkt samstarf átt sér stað, en á öðrum, eins og flm. gat réttilega um, er slíkt samstarf alls ekki fyrir hendi, og þá getur jafnvel verið nauðsynlegt að grípa til setningar löggjafar til þess að tryggja betra fyrirkomulag, samræmingu vinnslu og veiða á þeim stöðum þar sem því er mjög ábótavant.
Ég stóð á sínum tíma fyrir flutningi frv. um samræmingu milli vinnslu og veiða á tiltekinni sjávarafurð til þess að koma í veg fyrir að of margir stæðu í að veiða og of margar verksmiðjur að vinna úr afla sem er háður magnkvóta eða aflakvóta. Þetta frv. varð að lögum, og það er skoðun mín, að þau lög hafi orðið, þegar fram í sótti til góðs og hafi verið skynsamleg lagasetning.
5. liður, sem flm. benda á og leggja áherslu á, er torskilinn og erfiður í.framkvæmd og þar verður að fara eftir því, hvaða forsendur menn gefa sér, því að þar segir að að því sé stefnt að fiskveiðiflotinn, sem veiðir fyrir svæðið, sé í góðu samræmi við afkastagetu vinnslustöðvanna. Þá er komið inn á þau stórmál sem nú liggja fyrir, en hafa ekki verið rædd á Alþingi Íslendinga, heldur fyrst og fremst í fjölmiðlum og í sérhagsmunahópum, en það er hver á að vera sá afli sem við Íslendingar stefnum að því að veiða og þá sérstaklega af þeim fiski sem við eigum afkomu okkar mest undir, þorskinum.
Nýkomin er ein skýrslan enn frá fiskifræðingum í Hafrannsóknastofnuninni. Mér er kunnugt um að sú skýrsla var ekki lögð fyrir stjórn þeirrar stofnunar, og mér er líka kunnugt um að ekki hefur verið sýnd sú sjálfsagða kurteisi að senda stjórnarandstöðunni þessa skýrslu. Mér er ekki kunnugt um að neinn þm. í Sjálfstfl. hafi fengið hana. Fyrir tveimur dögum spurði ég flm.
þessarar till. hvort hann hefði lesið þessa skýrslu. Hann er formaður þess stjórnarflokksins sem hefur flest atkv. á bak við sig, og hann sagði mér að hann hefði ekki séð hana, bara heyrt af henni í blöðunum og í útvarpinu og hjá blessuðum fréttamönnunum. Þeir kunna að leggja vel út af þessu guðspjalli.
Ég verð að segja það, að þau ár sem ég fór með sjávarútvegsmál í fyrri ríkisstj. stóð ekkert á því að þessar skýrslur væru sendar til allra flokka, og ég gerði mér mikið far um að hafa alltaf samráð við forustumenn þáv. stjórnarandstöðu áður en mikilvægar reglugerðir voru gefnar út til þess að kynna þeim hvað stæði til. Ég efndi til tveggja funda með sjútvn. beggja þd. og þeir voru, held ég, á föstudegi í báðum tilfellum og þar gátu ekki mætt allir sjútvn.-menn, en þó flestir og frá öllum flokkum, til þess að ræða við þá áður en reglugerð var samin hvert væri álit þeirra á því, hvað ætti að gera og hverju þeim sýndist hyggilegast að stefna að í tilteknum efnum. Ég álit að nýting fiskveiðilögsögunnar sé ekkert einkamál einhvers ákveðins hóps í landinu, hvort sem það heita útgerðarmenn eða eigendur fiskvinnslustöðva. Það varðar auðvitað stóran hluta sjómanna og alls verkafólks, en þjóðin öll á gengi sitt undir fiskveiðum og fiskvinnslu umfram allt. Ég tel því að ekkert sé meira virði en að leita samstarfs við kjörna fulltrúa þjóðarinnar, alþm., um hvað skuli gera í þessum málum sem öðrum.
Ég ætla ekki að fara að tala efnislega um skýrslu sem ég hef ekki séð, en aðeins greint frá. En ég get ekki stillt mig um að vitna í samtal við forstjóra Hafrannsóknastofnunarinnar í sjónvarpi fyrir nokkrum dögum. Fréttamaður spurði hann þar spjörunum úr og hann svaraði spurningum af sinni alkunnu hógværð og kurteisi. Hann hélt fram tillögum sínum og sinna sérfræðinga, og hann benti líka á hvað margt hefði verið gert til þess að draga úr sókninni í þá fiskstofna sem eru fullnýttir eða ofnýttir. En fréttamaðurinn var ekki eins kurteis. Hann spurði hvort þeir væru ekki orðnir þreyttir á að semja þessar skýrslur og tillögur sem ekkert væri farið eftir. Hann var fljótur að kveða upp dóm í þeim efnum. En forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar svaraði því til, að þetta væru nú þeirra tillögur sem um ætti að fjalla, en ekki neinn stóridómur. Ég held að þeir hafi tekið sér töluvert til fyrirmyndar aðila vinnumarkaðarins í sambandi við samningu þessarar skýrslu, þar sem annar aðilinn stefnir á mikla hækkun á kaupgjald, hinn telur að annaðhvort eigi að standa í stað eða lækka, en báðir aðilar vita fyrir fram að hvorugt verður endir á þessum málum. Ég er hræddur um að þessi virðulega og ágæta stofnun, sem hefur unnið margt mjög vel, hafi að sumu leyti smitast af þessari aðferð. En ég bið guð að hjálpa þessu þjóðfélagi ef á að fara alls staðar eftir því sem fremstu kröfur eru gerðar. Hvar stöndum við þá? Hvar stöndum við þá með atvinnu landsmanna? Og hvar stöndum við þá í því að samþykkja jafnágæta tillögu og þessa: að stefna að því að fiskveiðiflotinn veiði fyrir tiltekin svæði í góðu samræmi við afkastagetu vinnslustöðvanna, ef fiskveiðar í landinu verða skornar svo niður að hráefnið nægir aðeins hluta af afkastagetu vinnslustöðva.
Við vitum líka að það eru vissir annmarkar á því, hve langt er hægt að ganga í þessum efnum, og það er ekki hlutverk sérfræðinga, hvorki efnahagssérfræðinga, hagfræðinga né fiskifræðinga, að segja algerlega til um það, á hvern hátt eigi að byggja upp fullnýtta eða ofveidda fiskveiðistofna. Það er ákvörðun stjórnmálamanna. Það eru þeir sem eiga að taka ákvörðun í þeim efnum. Og það er hægt að líta á þessi mál mismunandi augum. Það er ekki hægt að líta á þau eingöngu frá sjónarmiði hagfræðinga, frá efnahagslegu sjónarmiði, eða eingöngu frá sjónarmiði fiskifræðinga. Stjórnmálamaðurinn verður að líta á þessi mál frá því sjónarmiði, hvað efnahagur og búskapur okkar þolir og hvernig við byggjum upp fiskveiðistofna á sem hagkvæmastan og skynsamlegastan hátt án þess að raska algerlega högum allra þeirra, sem við þennan atvinnuveg vinna, og þjóðarheildarinnar.
Ég taldi eðlilegt, sérstaklega í samræmi við þennan 5. lið, að flytja þessa stuttu hugvekju. En ég endurtek það, að ég er efnislega hlynntur þessari tillögu, þó með þeim fyrirvara sem ég tók fram. Og ég tek undir það með 1. flm. þessa máls, að þar sem þetta mál hefur verið flutt, að ég held, tvívegis áður, þá ætti sú n., sem fær það til meðferðar; að leggja á það áherslu að afgreiða málið, en hafa þetta allt í huga, bæði sem flm: sagði og eins það sem ég var að reyna að láta koma fram í þessum orðum mínum.