08.02.1979
Sameinað þing: 49. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2474 í B-deild Alþingistíðinda. (1938)
36. mál, fisklöndun til fiskvinnslustöðva
Páll Pétursson:
Herra forseti. Hvar eru allir kratarnir okkar? Ég vildi gjarnan fara fram á það við hæstv. forseta, að hann beitti nú áhrifum sínum í framtíðinni til þess að þeir treystu sér til að sækja þingfundi, a.m.k. einhverjir af þeim. Ég verð að viðurkenna að mér finnst á stundum kappnóg af krötum hér á hv. Alþ., en það kann að vera að þeir þyrftu að vera fleiri til þess að geta verið einn eða tveir á fundi í hv. Sþ. Ekki einu sinni sjútvrh. treystir sér til að vera hér, hvað þá félmrh. eða utanrrh. Ég endurtek það, sem ég hef sagt áður í vetur þegar svipað stóð á, að þeir voru fjarstaddir, að ég sakna þeirra ekkert. En ég tek eftir því þegar þeir eru ekki.
Sú till., sem hér er til umr., er að mörgu leyti góðra gjalda verð og sjálfsagt í góðri meiningu flutt. Og það er ekki að ófyrirsynju þó að menn velti fyrir sér málum eins og þessum á hinu háa Alþingi. Undirstaða lífskjara þessarar þjóðar er náttúrlega fyrst og fremst sjávarfangið, það sem sjórinn gefur af sér, og það sem landið gefur af sér. Og það er rétt að undirstrika, að það er mjög mikilvægt að gæta hófsemi bæði í umgengni við landið og í umgengni við hafið. Mesti aumingjaskapurinn er að ráða ekki við sjálfan sig og ganga óhóflega á þær auðlindir og éta út á framtíðina.
Við höfum öðlast ráðstöfunarrétt yfir víðri landhelgi, 200 mílna landhelgi. Undanfarna daga hafa farið fram miklar umr. á Alþ. um landhelgismál í sambandi við fiskveiðiheimildir til Færeyinga. Nú vilja allir Lilju kveðið hafa, nú þykjast allir hafa verið forgöngumenn um landhelgina, ekki síst þeir sem töldu útfærsluna siðleysi og glæframennsku þegar lagt var upp í þá för.
Í þessum umr. hafa fallið ógætileg orð um vísindamenn, fiskifræðinga okkar. Sumir þeirra hafa stundum sett klaufalega fram sjónarmið sín, en áreiðanlega hafa ábendingar þeirra oft verið réttmætar. Ég vil nota þetta tækifæri til að hvetja til náinnar samvinnu vísindamanna og sjómanna. Það verður náttúrlega að hafa skynsemi með í ráðum og taka tillit til aðstæðna á hverjum tímá og hverjum stað, en það verður líka að taka tillit til fiskverndar og hinnar fræðilegu hliðar málsins.
Ég býð velkominn í salinn fyrsta Alþfl.-manninn, og vantar þá ekki nema 13. (Gripið fram í: Þú getur nú verið feginn á meðan.) Ég er búinn að taka það fram.
Ég held að margt mætti betur fara í sjávarútvegi okkar, og nýtingu í fiskvinnslu okkar er stórkostlega ábótavant. Ég vil leyfa mér að nota þetta tækifæri til að minna á till. til þál., sem liggur fyrir þessu þingi á þskj. 113, um aukna nýtingu í fiskvinnslu, og eru flm. Stefán Guðmundsson á Sauðárkróki og Vilhjálmur Hjálmarsson, hv. þm. Þessi till. beinist að því að ríkisstj. verði falið í samráði við aðila veiða og vinnslu sjávarfangs að hlutast til um að gerð verði hið fyrsta könnun á því á hvern hátt megi sem best ná hámarksnýtingu þess sjávarafla sem á land kemur. Samkv. gögnum Þjóðhagsstofnunar frá því í okt. 1977 var nýtingin þannig, að um 40% af mótteknum þorski fóru til frystingar á Norðurl. e. Nýtingin var 40% þar, en ekki nema 33% í Reykjavík og á Reykjanesi. Þetta er eitt af því sem veldur því að fiskvinnslustöðvar ganga illa, að útgerð gengur illa. Þarna verður að ráða bót á. Úr því að við getum náð að meðaltali í heilu kjördæmi 40% nýtingu gefur auga leið að bestu húsin nýta töluvert yfir 40%. Því hlýtur að vera hægt að ná þarna verulegum árangri. En það er langtímamarkmið, það er verkefni sem ekki er unnið í einu vetfangi. Ég vara hins vegar við því að reiða sig á að árangurinn náist samstundis eða miða úrlausnir í núverandi efnahagsvanda við að slá því föstu að þarna gerist kraftaverk einmitt þegar maður þarf á því að halda að milljarðarnir streymi inn. En hitt er rétt, að þarna er um stórkostlega fjármuni að tefla og fjármuni sem er búmannlegt að hirða.
Sjávarútvegur á Norðurlandi vestra hefur risið gersamlega úr rústum á þessum áratug. Síðan ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar var mynduð 1971 hefur sjávarútvegur tekið gersamlegum stakkaskiptum í þessu kjördæmi. Menn hafa prófað sig áfram og komist upp á býsna gott lag. Það er ekki rétt, sem hv. 1. þm. Austurl. Lúðvík Jósepsson, sagði áðan, að ekki væri hægt að láta útgerð ganga í 400–600 manna plássi með einu togskipi. Þetta hefur Skagstrendingum tekist bara vel. Það hefði þó verið hentugra fyrir þá, ef þeir hefðu getað haft meiri miðlunarmöguleika en fyrir hendi eru. Hitt er alveg rétt, að það kann að vera að tvö skip séu að sumu leyti of stór eining og beri of mikinn afla á land fyrir þær hendur, sem fyrir eru, að vinna með skikkanlegu móti. Það hefur verið vakin á því athygli í umr., að á Skagaströnd var allt í kaldakoli á viðreisnartímanum, atvinnuleysi ríkjandi. Það var ekkert undantekningarástand. Það var eðlilegt ástand á Skagaströnd þá, að fjölskyldufeður yrðu að sækja atvinnu sína til annarra staða. En nú hefur hver þá vinnu þar sem hann vill.
Í Norðurl. v. hafa menn prófað sig áfram um samvinnu milli fiskvinnslustöðva. Útgerðarfélag Skagfirðinga leggur upp fisk sem fer til þriggja frystihúsa, tveggja á Sauðárkróki og eins á Hofsósi, og byggðum Skagafjarðar hefur orðið ákaflega mikil lyftistöng að þetta samstarf skyldi komast á. En þarna koma til samgöngur á milli staða. Það er meginatriði að hægt sé að flytja fiskinn.
Ég hef ekki trú á því, að það þýði, að hugsa sér að dreifa aflanum og láta skipin landa á þessum staðnum eftir þennan túrinn og hinum staðnum eftir næsta túr. Við verðum að reikna með því að flytja fiskinn eftir veginum og þess vegna þarf að hafa til hliðsjónar að bæta samgöngur á landi á milli staða. En undirstaðan undir þessu öllu saman er sú, að útgerðin verður að vera í alvöru. Það verður að ganga að þessu verki eins og hverju öðru með vönduðum undirbúningi, skynsamlegri fjármögnun eða fjármagnsútvegun, og menn verða að gera þetta í alvöru, því að annars tekst það ekki.
Það hafa alltaf verið „fallít“ útgerðarmenn á Íslandi, og það er út af fyrir sig ekki óeðlilegt, þetta er áhættusamur atvinnuvegur, en kannske hefur mönnum einstöku sinnum verið fleytt of lengi og þar af leiðandi verið stuðlað að óhóflegu skipulagsleysi.
Auðvitað eru okkur ljós þau vandamál, sem mjög hafa verið á lofti höfð hér á hv. Alþ., — þau vandamál sem þm. Reykn. hafa einkum beitt sér fyrir að segja frá, vandamál útgerðar og fiskvinnslu á Suðurnesjum. Ég vil leyfa mér að mótmæla sem algeru þvaðri orðum sem féllu fyrr í dag um einhverja svívirðilega pólitíska fjárfestingu sem átti að hafa sneitt hjá garði Suðurnesjamanna. Mér sýnist að það sé verið að gera sæmilega við Suðurnesjamenn, og ég vona að þeir rétti úr kútnum. En það er víðar gert út en þar og það þarf í fleiri horn að líta en Suðurnesjahornið. — Af skiljanlegum ástæðum á atvinnurekstur og mannlíf á Suðurnesjum við verulegt vandamál að glíma, þó ekki væri nema sambýlið við herinn. Hann er ekki til bóta fyrir útgerð á Suðurnesjum né sambýli við álverið og samkeppni um vinnuaflið við það. Þau umsvif eru ekki lyftistöng fyrir sjávarútveginn.
Það hefur verið rifjað upp með vertíðina á Suðurnesjum og þá mannflutninga sem urðu í því sambandi. Og drepið hefur verið á að meðan aðrir staðir réttu úr kútnum og komust yfir framtíðarskip voru Suðurnesjamenn að versla með bátana sína innbyrðis og afskrifa þá sitt á hvað. Ég sé út af fyrir sig ekki neitt athugavert við það, þó að vertíðarfólk sé hætt að streyma að norðan eða vestan suður á nes. Það var ekkert aðgengilegt eða skemmtilegt fyrir fjölskyldu á Skagaströnd, Sauðárkróki eða Siglufirði, þegar heimilisfeðurnir urðu flestir að fara að vetrinum til Vestmannaeyja eða suður á nes. Ég held að það séu fjarstæðar hugmyndir, þær sem aðeins bryddir á og hefur jafnvel gert í þessum umr. lítillega, að það er eins og megi hvergi drepa fiskinn nema við Suðvesturland. Hrygningarfiskurinn er náttúrlega verðmætur fyrir viðkomu stofnsins. Smáfisk er að sjálfsögðu óskynsamlegt að drepa, en hrygningarfiskurinn er ekki síður verðmætur ef út í það er farið. Og það er einmitt verkefni okkar að koma skipulagi á að veiða skynsamlega og sækja skynsamlega, ganga ekki í smáfiskinn þegar hann er á ferðinni, en það er tímunum saman allt í lagi að veiða fyrir norðan, þar sem smáfiskurinn heldur sig ekki. Þetta þjóðfélag okkar byggist á sjómönnum fremur en nokkurri annarri stétt.
Ég vil að endingu leggja sérstaka áherslu á að það verður að gera vel við sjómenn. Þeir stunda hættulega og erfiða vinnu og eru fjarri heimilum sínum á sjónum, en ég held að það sé tómt mál að ætla að fara að bjóða þeim með lögum eða skipulagningu eða segja þeim fyrir hvar þeir eigi að landa, eins og mér finnst að orðanna hljóðan í tillgr. bjóði nokkuð upp á, þó að frsm, hafi dregið í land og komist í dag miklu skynsamlegar að orði. Ég held að svo framarlega byggist fiskimannastétt okkar á „stabílum“ og góðum sjómönnum að þeir hafi lífsaðstöðu eitthvað í líkingu við það sem aðrir menn hafa í þjóðfélaginu og geti verið heima hjá sér einhverjar stundir og helst þær stundir sem þeir eru í landi. Þess vegna held ég þrátt fyrir allt, þó að þessi till. sé góðra gjalda verð að ýmsu leyti, að ekki sé endilega nauðsynlegt að samþykkja hana. Það er gott að hafa hana sem vinnuplagg til hliðsjónar og sem viljayfirlýsingu um þróun sem við viljum hafa í framtíðinni, að bæta samstarf og skipulagningu, en ég held að við höldum ekki í okkar góðu sjómannastétt bestu mönnunum, rótgrónum sjómönnum, reglusömum heimilisfeðrum, öðruvísi en gefa þeim þau tækifæri sem mögulegt er til þess að koma heim til sín.