08.02.1979
Sameinað þing: 49. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2487 í B-deild Alþingistíðinda. (1944)
36. mál, fisklöndun til fiskvinnslustöðva
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég get ekki stillt mig um að taka aftur til máls í þessu máli, því að málið er það viðamikið og merkilegt.
Mér datt í hug, þegar verið er að ræða um ýmis vandamál sem upp hafa komið og mætti flokka undir stjórnun, að það gefur okkur vissa vísbendingu um það, hvers eðlis stjórnunarvandamálið er. Það er verið að tala um siglingu togara með afla á erlendan markað, sem er vissulega vandamál þegar það er gert í stórum stíl, eins og komið hefur í ljós. Mér finnst satt að segja að dæmið frá Þórshöfn, þar sem búið var að gera opinbera samninga við sjútvrn. um aflamiðlun frá því skipi til þess byggðarlags sem er í vanda statt, að það skuli ekki vera hægt að stjórna því máli þannig að staðið sé við samninga, gefi ekki góða vísbendingu um að ríkisútgerð á togurum sé það sem koma skal.
Ég vil nota þetta tækifæri til að lýsa yfir andstöðu minni við þá hugmynd, að ríkið fari að kaupa og gera út togara. Mér finnst að það mæli svo margt gegn því, að við eigum ekki að fara út á þá braut meðan nægjanlega margir aðilar hér á landi eru hæfir til þess að gera út og stunda þennan atvinnuveg með góðum árangri. Hitt er miklu meira mál, að vinna að skipulagningu, sem gangi í þá átt að tryggja að hráefnið nýtist, og það sé gert á skynsamlegan hátt.
Ég vil minna á annað atriði, sem heyrir líka undir skipulag og nauðsyn á skipulagi, og það er þegar viss landsvæði óska eftir að fá að nýta þá skynsamlegustu hagkvæmni til veiða, sem allir eru sammála um, og í því tilfelli er sótt um aðgerðir hjá sjútvrn. til þess að koma því skipulagi á. Ég vil segja frá því hér, eins og kom raunar fram hjá hv. þm. Friðjóni Þórðarsyni, að komið hefur upp á þessari vetrarvertíð betra ástand að því er varðar línuafla á Breiðafirði en oft áður. Og m.a. er allt upp í 40% af aflanum stórýsa sem ekki hefur verið fyrir hendi á undanförnum árum. Hins vegar er þetta svæði út af Breiðafirði mjög eftirsótt til togveiða og togveiðiskip. koma gjarnan inn á þetta svæði þegar þau frétta um aflavon, og þá geta allir séð að línuútgerð og netaveiði er þar með úr sögunni. Þess vegna biðja nú útvegsmenn á Snæfellsnesi rn. að hlutast til um að þetta svæði verði friðað í vissan tíma fyrir línu- og netaveiði.
Ég ætlaði aðeins að undirstrika það sem ég minntist lauslega á í dag í sambandi við þetta mál, hið gífurlega vandamál sem upp er komið að því er varðar þann mikla samdrátt sem orðinn er í þorskstofninum, og leggja áherslu á fiskfriðunaraðgerðir. Ég held að það sé mjög brýnt að taka upp skynsamleg vinnubrögð og vanda skipulag veiða og vinnslu þess afla sem skynsamlegt er að veiða. Það verður ekki nógsamlega undirstrikað að leggja höfuðáherslu á raunhæft samráð og samstarf við vísindamenn okkar, fiskifræðinga og hagsmunasamtök sjávarútvegs, útgerðarmanna og sjómanna, fiskvinnslu og forráðamanna byggðarlaga.
Mér finnst ástæða til að minnast á í umr. merkilegar upplýsingar sem ég hef haft með að gera undanfarið. Ég hef verið ásamt fleiri aðilum að athuga ýmsar hugmyndir um það, hvað væri skynsamlegt að gera í sambandi við það hættuástand, sem vofir yfir þjóðfélagi okkar ef þorskstofninn eyðist eða er í hættu í framtíðinni hvað það snertir. Ég hef fyrir framan mig töflu um veiði helstu botnfiska á Íslandsmiðum allt frá árinu 1950 til ársins 1978. Þegar ég tala um botnfiska á ég við þorsk, ýsu, ufsa, karfa, skarkola, lúðu, steinbít og grálúðu. Á þessu tímabili, í 20 ár, frá 1952 til 1971, voru meðalveiðar á þessum stofni 716 545 tonn. En það er komið svo, að árið 1976 er meðaltalið komið niður í 567 þús. tonn. Ég vil taka það fram, að inni í þessum tölum eru einnig veiðar útlendinga. 1978 er þessi tala, þó að hún sé ekki alveg nákvæm, komin niður í 465 þús. tonn, og miðað við þær upplýsingar, sem fiskifræðingar okkar gefa nú, stefnir að því að aflamagn þessara botnfisktegunda fari niður fyrir 450 þús. tonn á árinu 1979.
Þess vegna dreg ég þetta hér inn, að mér finnst að við megum alls ekki loka augunum fyrir þessu vandamáli, — við sem erum til þess kjörnir að reyna að vernda íslenska hagsmuni. En það þýðir ekkert að loka augunum fyrir þeirri staðreynd, að sérstaklega þorskstofninn er í hættu og þar með framtíð þjóðarinnar í veði. Þess vegna verður að mínu mati að leggja höfuðáherslu á að byggja þorskstofninn upp að nýju sem allra fyrst. En til þess að svo geti orðið verður að draga úr sókn um tíma. Við þessar aðstæður reynir alvarlega á skilning og skipulag allra aðila, sem hlut eiga að þessu máli.
Á þetta vildi ég legg ja áherslu við lok þessara umr., því þó að það sé ekki beint í sambandi við þessa þáltill. tengjast þau mál vissulega. Ég vil leggja áherslu á að allir leggist á eitt með fiskifræðingum okkar, með hagsmunaaðilunum sem í hlut eiga, að reyna að finna skynsamlega leið til þess að tryggja þetta lífshagsmunamál þjóðarinnar, að við glötum ekki sjálfir fyrir óskynsamlegar aðgerðir því fjöreggi sem framtíð þessarar þjóðar veltur á.