12.02.1979
Efri deild: 55. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2492 í B-deild Alþingistíðinda. (1951)
137. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Oddur Ólafsson:
Herra forseti. Hér hafa farið fram miklar umr. um merkismál og hafa að verulegu leyti snúist um möguleika til þess að rétta við fjárhag hins mikla ríkisfyrirtækis um raforkudreifingu, RARIK. Umr. snerust m.a. um það, hve langt ætti að ganga í því að jafna aðstöðuna milli þegna þjóðfélagsins, og ég get ekki neitað því, að þótt það sé að sjálfsögðu eðlilegt og sjálfsagt að jafna hana þar sem þörf er á, þá er þetta nokkru meira vandamál en lítur út fyrir í fyrstu, m.a. vegna þess að jöfnuður getur snúist upp í að verða hinn mesti ójöfnuður og í öðru lagi eru svo margir þættir, sem þarna er um að ræða, að erfitt er að finna hinn rétta, gullna meðalveg í þessu efni. Það má taka sem dæmi, að þótt það virðist liggja nokkuð ljóst fyrir við fyrstu yfirsýn að hækkun á olíum og bensíni komi harðast niður á þeim sem búa í strjálbýlinu eða norður á Langanesi skulum við segja, þá er það svo, að mestu útgjöld vegna slíkra hækkana munu þeir verða að sætta sig við sem búa langt frá vinnustað sínum og þurfa þess vegna daglega að aka 10, 20, 30 km leið til og frá vinnu. Áberandi er að langsamlega erfiðast mun þetta verða þeim sem búa í nágrenni Reykjavíkur. Það er alveg augljóst mál. Aftur á móti kemur þetta hreint ekki eins illa við bóndann sem býr á jörð sinni og vinnur á sínu heimili, þótt hann sé fjarri Reykjavík. Svona mætti lengi telja, þar sem erfitt verður að gera upp við sig hver sé eiginlega verst settur í þessu efni.
Ég minnist þess, að fyrir nokkrum árum var ég staddur úti á landi um páskaleytið og einn morguninn gekk ég niður að höfninni. Þá sá ég þar netakúlur á floti. Við nánari athugun reyndist hins vegar vera hér um rauðmaga að ræða. Þegar ég fór að grennslast eftir hvernig á því stæði, að slíkum matvælum væri fleygt, þá kom í ljós að sjómennirnir á staðnum voru svo hugulsamir, að í staðinn fyrir að fleygja rauðmaganum, eins og grásleppufiskendur gjarnan gera, þá komu þeir með hann í land, settu hann í bala, svo gat fólk komið og hirt þennan rauðmaga eins og því þóknaðist, en væri afgangur var honum fleygt í höfnina. Þetta kemur að sjálfsögðu hvergi fram, en hins vegar getur þetta sparað heimilum ómælda aura.
Margt mætti minnast á í þessu sambandi, að ég ekki tali um það, að vandamál og mestu erfiðleikar nútímans hvíla ekki á byggðinni í dreifbýlinu eða strjálbýlinu. Þau hvíla að sjálfsögðu öll á þéttbýlinu. Félagslegu vandamálin kosta heimilin marga krónuna, og stór sveitarfélög verða að kosta miklu til vegna þeirra örðugleika sem þéttbýlið gjarnan hefur í för með sér. Þetta eru þekktar staðreyndir sem við vitum öll mjög vel um.
Í þessum umr. hefur einnig verið nokkuð deilt um það, hvort sveitarfélög ættu að njóta þess að vera t.d. í nágrenni við góða aðstöðu til orkuöflunar eða hafa skattpínt þegna sína fyrir löngu á meðan verið var að byggja orkuver. Ekki eru allir á einu máli um þetta, en nokkuð augljóst virðist vera að lítil sanngirni sé í því, að þeir njóti ekki þess arna í einhverju.
Það, sem hér er um að ræða, er hins vegar það, að RARIK er í geysilegum greiðsluerfiðleikum, og þeir, sem fá rafmagn frá Rafmagnsveitum ríkisins, búa við hærri heimilistaxta en aðrir í landinu. Þetta er að sjálfsögðu erfitt og er allstórt mál. Mér skilst, miðað við það sem hér er upp gefið, um 37.25 kr. á kwst., að það muni vera yfir 50 þús. kr. á ári sem meðalheimili þarf að greiða meira en á Reykjavíkursvæðinu. Þetta er að sjálfsögðu greiðsla sem mörgum er erfitt að rísa undir, en er þó kannske ekki mjög stór borið saman við ýmislegt annað.
Það, sem meira hefur þó kannske verið talað um, er það, hvað þeir, sem verða að búa við rafmagnshitun, þurfa að greiða mikið fyrir rafmagnið. Samkv. því, sem ég hef fengið gefið upp hjá Orkustofnun, munu þeir sem eru um 3000 í landinu og greiða rafmagn eftir marktaxta, sem innifelur í sér heimilistaxta, hitataxta og súgþurrkun og rafmagn til annarrar vélanotkunar á heimilunum, þurfa að greiða um 208 þús. kr. á árinu 1977 fyrir rafmagnsnotkun sína miðað við 37 þús. kw notkun, sem mun vera mjög eðlilegt meðaltal. Ég ætla ekki að dæma um það, hvort þetta er mikið eða lítið. En eitt er víst, að miðað við þann vaxandi upphitunarkostnað sem þeir, sem búa við olíuhitun, verða að búa við, virðist þetta ekki neitt sérstaklega mikið borið saman við það sem maður hefði búist við. Hins vegar er það, að ég álit að það sé rétt stefna að við notum eigin orkugjafa hvar sem því verður við komið, og við verðum að beygja okkur undir það að greiða eitthvað fyrir það meðan við erum að fá slíkt í sæmilegt horf.
Það kynduga við frv., sem hér liggur fyrir, er að ótrúlegustu aðilar hafa sitthvað við það að athuga, þ. á m. stjórn þeirrar stofnunar sem á að njóta þess. Enn fremur hefur mér borist bréf frá Sambandi ísl. rafveitna. Það er stutt og hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Á fundi sínum 16. jan. samþykkti stjórn SÍR eftirfarandi ályktun:
Stjórn SÍR mótmælir enn á ný framlengingu svonefnds verðjöfnunargjalds af raforku og ekki síst fyrirhugaðri hækkun þess úr 13 í 19%. Stjórnin telur að leysa beri fjárhagsvanda Rafmagnsveitna ríkisins — RARIK — á annan hátt, m.a. með beinum framlögum úr ríkissjóði, svo sem stjórn RARIK hefur þegar lagt til við iðnrn. Stjórn SÍR bendir og á að mörg raforkufyrirtæki önnur en RARIK eiga við fjárhagsvanda að etja.
Kristján Jónsson og Hafsteinn Davíðsson taka fram að þeir treysta sér þó ekki til að mótmæla gjaldi þessu meðan ekki koma til aðrar lausnir á fjárhagsvanda RARIK og Orkubús Vestfjarða.“
Til skýringar má geta þess, að Kristján Jónsson er rafmagnsveitustjóri ríkisins, en Hafsteinn Davíðsson er svæðisstjóri Orkubús Vestfjarða, en Orkubúið á svo sem kunnugt er einnig að njóta þessara laga.
Hvað á nú til bragðs að taka þegar svo er ástatt að nauðsyn er að fá meiri peninga? Ekki eru allir á einu máli hvernig fara skuli að. Ég held að það sé ekki eðlilegt að hækka þetta gjald, m.a. vegna þess að þá lítur út fyrir að þeir komi til með að greiða mest sem mest greiða fyrir og hækkun þeirra verði mest. Slíkt virðist ekki vera beint það sem stefnt er að. Og sannarlega kemur ýmislegt annað til greina. Ég vil leyfa mér að benda á það, að mér fyndist ekki óeðlilegt að þeir skattar t.d., sem ríkið fær af stóriðju í þessu landi, sem er ekki mikil enn þá, en fer vaxandi, rynnu beint til þessara nota. Mér finnst að varla sé annað hægt en benda á að athuga bæri um frekari hagræðingu í rekstri þeirrar stofnunar sem hér er um að ræða. Slíkt mundi verða gert ef um annars konar fyrirtæki væri að ræða, og mér finnst sjálfsagt að slíkt sé athugað. Þá hefur komið í ljós að mörg af þeim lánum, sem tekin hafa verið á undanförnum árum fyrir þetta fyrirtæki, eru tekin á mjög slæmum kjörum, og mér finnst að væri athugandi hvort ekki mætti lækka rekstrarkostnað fyrirtækisins með því að breyta lánunum í hagstæðari lán. Enn fremur er hér um alveg sérstakt og augljóst byggðavandamál að ræða, og þar sem það er í raun og veru félagsleg aðstoð sem þarna er verið að leita eftir, þá væri ekkert óeðlilegt, meðan verið er að finna varanlegan grundvöll fyrir framtíðargreiðslu, að Byggðasjóður kæmi þarna til með nokkurt framlag.
Þegar farið er að leita eftir fjármagni, hvar eigi að finna það í þessum tilgangi, þá get ég ekki komist hjá því að lesa nokkra kafla í bréfi sem mér barst. Það er um raforkumál Austurlands og undirfyrirsögn er: „Er nýtt Kröfluævintýri í uppsiglingu?“ Þar segir m.a., með leyfi forseta:
„Getum sparað milljarða. Í öllum umr. um raforkumál Austurlands og Bessastaðaárvirkjun hefur lítið verið rætt opinberlega um annan tiltækan kost sem leysir orkuþörf Austurlands á enn öruggari hátt en Bessastaðaárvirkjun og fyrir innan við þriðjung þeirrar upphæðar. Þessi kostur er lagning 380 km langrar 132 kv. línu, svonefndrar Suðausturlínu, sem kosta mun 6 milljarða og tengdi saman núverandi endapunkt Austurlínu í Skriðdal og lægi um Djúpavog, Höfn í Hornafirði og þaðan til Sigöldu. Þessi lína mundi því loka 132 kv. hringlínu um landið. Það vill svo til, að þessi tæplega þriðjungur af Bessastaðaárvirkjun, sem Suðausturlínan kostar, er einmitt sá þriðjungur sem orkan frá Bessastaðaárvirkjun kostar umfram orku frá öðrum hagkvæm um virkjunarkostum, svo sem virkjun Jökulsár í Fljótsdal, Blöndu eða Hrauneyjafoss. Með því einu að ákveða að byggja ekki Bessastaðaárvirkjun er því búið að spara þá 6 milljarða sem Suðausturlínan kostar, og jafnframt er með byggingu þeirrar línu, eins og áður sagði, búið að loka 132 kv. raforkuhringnum um landið.“
Þeir, sem svo skrifa, eru tveir starfsmenn Orkustofnunar, og í þessu bréfi er að finna margháttaðar upplýsingar. Mér sýnist að ef að einhverju leyti væri farið eftir þeirra till., þá kynni þetta í framtíðinni að spara rekstrarkostnað RARIK mjög verulega, og ekki nóg með það, heldur líka að leggja til það fjármagn, sem verið er að leita eftir, án þess að nokkuð væri misst.