26.10.1978
Sameinað þing: 9. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (197)
12. mál, efling þjónustu- og úrvinnsluiðnaðar í sveitum
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Hér er hreyft athyglisverðu máli þar sem um er að ræða eflingu þjónustu- og úrvinnsluiðnaðar í sveitum. Er það út af fyrir sig virðingarvert og rétt kannske að bæta við, að á fleiri stöðum en þeim tveim, sem hv. flm. nefndi, er úrvinnsluiðnaður í sveitum, eins og t.d. í kjördæmi hans, í Nesjahreppi, og um áratugi hefur slíkur iðnaður verið í Leirhöfn á Sléttu. En það, sem olli því að ég kvaddi mér hljóðs, er, að ég held að það sé svolítið erfitt að gerast sérstakur talsmaður bændastéttarinnar í landinu undir þeirri forskrift, að flm. þyki einstaklingsrekstur hvimleiður. Í Hávamálum segir: „Bú er betra, þótt lítið sé, halur er heima hver, þótt tvær geitur eigi og taugreftan sal.“
Íslenskir bændur hafa frá öndverðu verið miklir einstaklingshyggjumenn og kunna ekki að meta það, að þeim séu settar skorður í þeim efnum.
Í tillgr., sem hér liggur fyrir, er eitt atriði sem ég tel mjög hæpið, mjög vafasamt, en þar segir, með leyfi hæstv. forseta: „Sérstaklega ber að kanna möguleika á stofnun framleiðslusamvinnufélaga í sveitum, og skal því rekstrarformi veittur sérstakur stuðningur.“ Síðar í þessari tillgr. er talað um óafturkræft framlag ríkissjóðs allt að 15% stafnkostnaðar. Ég tel afskaplega hæpið að hið háa Alþ. geti með þeim hætti gert upp á milli rekstrarforma. Ég held að Alþ. geti ekki tekið þá ákvörðun að gefa sumum peninga og öðrum ekki, sem standa í hliðstæðum rekstri. Ég held að hugsunarháttur af þessu tagi sé hins vegar lýsandi fyrir Alþb. og þá stefnu sem það er farið að reka, síðan hv. 3. landsk. þm., Ólafur Ragnar Grímsson, varð þar áhrifamaður. Ég held að hinir eldri Alþb.-menn eigi að halda sig við þær skoðanir sem þeir hafa haft í þessum efnum.
Ég vil, þar sem ég fékk að tala hér fyrir sérstök elskulegheit hæstv. forseta, ekki hafa þessa ræðu lengri þó að ástæða væri til, en aðeins minna á það, að framleiðslusamvinnufélögin hafa skattfríðindi umfram annan rekstur og eru alls ekki eins opin félög og ýmsir í framleiðslusamvinnufélögunum vilja vera láta.