12.02.1979
Neðri deild: 50. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2520 í B-deild Alþingistíðinda. (1971)
168. mál, útvarpslög
Flm. (Guðmundur H. Garðarsson):
Herra forseti. Það sannast áþreifanlega við þessa umr., að samtryggingarkerfi stjórnmálamanna og embættismanna er pottþétt, ef ég mætti orða það þannig. Ef þm. koma með till. sem fela í sér róttækar breytingar á ríkisstofnun, þá er segin saga að þeir hv. þm., sem koma annaðhvort úr röðum embættismanna eða úr þeim stofnunum sem þingið er að fjalla um, rísa upp og tala gegn öllu sem horfir til bóta og framfara í viðkomandi stofnunum. Ég held að þetta sé misskilin vinsemd í garð þeirrar stofnunar sem viðkomandi þm. hafa unnið hjá, enda hefur komið fram í umr. í dag að báðir hv. þm., sem síðast töluðu, viðurkenndu margsinnis að full þörf væri á breytingum á Ríkisútvarpinu. Að vísu vildu þeir ekki ganga jafnlangt og flm. þessa frv., en báðir vildu þeir breyta miklu og allverulega, sérstaklega annar þeirra.
Mér finnst það nú þess virði, að við ræðum nokkuð hvers virði frelsi er og hvað er að vera frjáls. Það er ekki að vera frjáls maður að þurfa að fara upp í Ríkisútvarp og spyrja embættismann eða jafnvel skrifa bréf til útvarpsráðs til þess að fá leyfi til þess að tala eða flytja þátt í viðkomandi stofnun. Það er hins vegar frelsi að geta leitað til sex dagblaða og fengið birtar greinar. Það er frelsi. Hitt er ófrelsi.
Ég verð að segja það, að ég varð fyrir hálfgerðum vonbrigðum með báða hv. ræðumenn, sem töluðu hér síðast, bæði hv. þm. Árna Gunnarsson og hv. þm. Eið Guðnason. Ég hef gert þær kröfur til þeirra, að þeir skildu manna best um hvað þetta frv. fjallar, vegna þess að þeir sem starfsmenn ríkisfjölmiðils eins og Ríkisútvarpsins höfðu tilhneigingar, á meðan þeir unnu hjá þessum fjölmiðlum, til að opna þessar stofnanir meira en við hinar óbreyttu verur utan veggja gátum gert. Virðum við vissulega við þá hv. þm. hvernig þeir stóðu að málum. En því miður hafa ekki allir hugmyndaflug og þrek til að gera það sem þeir reyndu að gera hvor á sínum vettvangi, annar í sjónvarpinu, hinn í hljóðvarpinu.
Það er margviðurkennt, m.a. af núv, formanni útvarpsráðs, Ólafi R. Einarssyni, að það þurfi að gera róttækar breytingar og hleypa fleiri að þessum fjölmiðlum og það þurfi að skapa aukna og meiri möguleika. Og það er einmitt það sem við viljum gera, flm. þessa frv. Við lítum þannig á að ekki þurfi endilega að sækja fyrirmyndir til annarra landa, þó við vekjum athygli á því, að það er fyrir hendi annars staðar að reka margar útvarpsstöðvar og sjónvarpsstöðvar. Við lifum hér við íslenskar aðstæður. Það er enginn að segja það, að þótt við sköpuðum aukið frelsi á þessu sviði þyrftum við endilega að falla í sömu gröfina og t.d. Bandaríkjamenn. Íslenskt þjóðfélag og íslensk menning eru gerólík því þjóðfélagi og þeirri menningu sem er í Bandaríkjunum. Margt, sem þar er, mundum við flokka undir ómenningu. Þótt þar séu margar útvarpsstöðvar og margar sjónvarpsstöðvar þyrfti það frelsi, sem við erum að tala um hér, ekki að fela það sama í sér og á sér stað í Bandaríkjunum.
Ég vil víkja nokkuð að því atriði sem lýtur að peningamönnum og þeim sem hafa peninga, sem báðir hv. þm. komu inn á og sérstaklega hv. þm. Árni Gunnarsson. Hann sagðist ekki vilja leyfa frjálsan útvarpsrekstur og sagðist vera á móti því m.a. vegna þess að hann óttaðist þá aðila sem hafa peninga. Ég vil halda því fram — og við flm. þessa frv., að frelsinu í landinu stafi meiri hætta af öðru en svokölluðum peningamönnum. Valdamennirnir í ríkiskerfinu eiga örugglega eftir að verða frelsinu hvað hættulegastir. Mennirnir sem ráða yfir einmitt öflugum fjölmiðlum eins og Ríkisútvarpinu, þ.e.a.s. bæði sjónvarpi og hljóðvarpi, eru frelsinu hættulegir.
Svokallaðir peningamenn eru nú ekki svo margir á Íslandi eða svokölluð peningafyrirtæki, að ekki sé hægt að takmarka hvernig þeir kæmu að þessum málum. Gæti ég flutt hér erindi um það, hvernig ég gæti hugsað mér að hafa þá stofnun sem fjallaði um þessi mál. Það mætti t.d. stofna opið almennt hlutafélag. Takmörk væru sett á það, hvað hver og einn mætti eiga mikið hlutafé í því. Það væri hægt að takmarka hlutafé við 1% eða 2%, enginn mætti eiga meira en 1% eða 2%. Það væri jafnvel hægt að setja takmörk við því, hvernig menn gætu sameinast í hópa til þess að beita því valdi sem samsöfnun hlutafjár á eina hendi gæti verið.
Hverjir hafa peninga og hverjir hafa þarfir í sambandi við frjálsa fjölmiðlun? Það eru ekki aðeins einstaklingarnir og það er ekki aðeins unga fólkið. Ég mótmæli því, að við séum að slá okkur til riddara gagnvart ungu fólki með flutningi þessa frv. Við erum að leggja fram frv., sem við vitum að ekki einungis ungt fólk, heldur þjóðin öll fylgir raunverulega. Auðvitað hlýtur ungt fólk að vera sérstaklega næmt fyrir róttækum breytinum. Því ætti t.d. hv. þm. Vilmundur Gylfason að gera sér vel grein fyrir. Hann er maður tjáningarfrelsis. Hann veit það, flokksbróðir þeirra þm. sem töluðu síðast, að ungt fólk vill svigrúm, það vill fá að fjalla um eigin mál og vill fá að komast að þessum fjölmiðli án þess að þurfa að leita undir embættismenn eða stjórnmálamenn, og það er ofurskiljanlegt. Ég skil þeim mun betur eftir því sem ég eldist, að það verður að skapa ungu fólki aukin tækifæri og ekki hvað síst á þessu sviði. Það er af hinu góða að styðja það mál, sem hér er til umr., vegna þess að það þjónar sjónarmiðum unga fólksins.
Víkjum svo nokkuð að því, hverjir hafa þörf og hverjir hafa peninga. Ég tel t.d. að fjölmenn samtök, fjöldasamtök eins og t.d. verkalýðshreyfingin, samvinnuhreyfingin, stærstu útflutningssamtökin, sem eru með tugi og hundruð félagsmanna, gætu haft mikið gagn af aukinni fjölbreytni, auknum möguleikum í sambandi við hljóðvarp og sjónvarp. Þau mundu þá geta komið efni til þessa fólks. Ég geri ráð fyrir að það, sem þessir menn eru að vinna í verkalýðsfélögunum, í samvinnuhreyfingunni, í stóru fyrirtækjunum, sé sprottið af hinu góða, en ekki hinu vonda. Hvers vegna skyldu menn ætla að þeir Íslendingar, sem kæmu að þessum fjölmiðli skyldu endilega þurfa að koma að honum af vondum hvötum? Ég mótmæli því, að hv. þm. skuli fjalla þannig um mál og ætla yfirleitt öðru fólki það.
Varðandi peningana vil ég upplýsa hv. þingheim um það, að að mínu mati mundu einstakir peningamenn ekki ráða úrslitum í uppbyggingu þeirra fjölmiðla sem við erum að fjalla um. Ég álit að þær fjöldahreyfingar, sem ég gat um, mundu koma þar til skjalanna.
Ég vil að lokum víkja að því sem hv. þm. Eiður Guðnason kom inn á í 10, gr. Ég held að hann hafi misskilið 10, gr. Við skulum taka t.d. fræðsluyfirvöld. Það vantar stórlega á að íslenska sjónvarpið og hljóðvarpið fullnægi þeirri þörf sem er fyrir hendi gagnvart nemendum í sambandi við fræðsluefni og kennsluefni, sérstaklega í sjónvarpi. Það kemur vel til greina að samstarf milli ríkisvalds og einkasjónvarps um að einkasjónvarpsstöð t.d. flytti slíkt efni, þar sem það kæmist ekki að í því sjónvarpi sem við höfum í dag.
Ég vil svo að lokum undirstrika það, að ekkert í þessu frv. gerir ráð fyrir því, nema síður sé, að leggja eigi niður Ríkisútvarpið — hljóðvarp og sjónvarp. Það er alrangt. Frv., sem við erum með, gengur út frá því að hér sé gott ríkisútvarp, bæði sjónvarp og hljóðvarp.