13.02.1979
Sameinað þing: 51. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2523 í B-deild Alþingistíðinda. (1974)

170. mál, áætlanagerð Framkvæmdastofnunar ríkisins um Dalabyggð

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Þessa fsp. hef ég sent Framkvæmdastofnun ríkisins og óskað svars hennar. Svar Framkvæmdastofnunarinnar er svo hljóðandi:

„Framkvæmdastofnun ríkisins hefur unnið að gerð Vesturlandsáætlunar frá því í ársbyrjun 1974. Fyrsta árið var einkum unnið að öflun gagna um hina ýmsu málaflokka sem áhrif höfðu á viðhald og vöxt tryggðar á svæðinu, enda er þekking í þeim efnum grundvöllur áætlunarstarfsins. Árangur af þessu starfi var að hluta til birtur á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi haustið 1976 þar sem nokkrum sjálfstæðum köflum var dreift.

Á grundvelli þeirra gagna, sem þannig lágu fyrir um stöðu byggðamála á Vesturlandi, mátti greina mjög misjafna þróun á hinum einstöku byggðasvæðum. Ljóst var að grípa þurfti til aðgerða til lausnar aðsteðjandi vanda hinna einstöku byggða, og var sú ákvörðun því tekin að takmarka áætlunarstarfið á Vesturlandi við eitt byggðasvæði hverju sinni. Eftir því sem best varð séð þótti eðlilegt að hefja það starf með gerð byggðaþróunaráætlunar fyrir Dalabyggð.

Í nóvembermánuði 1977 voru lögð fram drög að byggðaþróunaráætlun fyrir Dalabyggð. Eins og heiti skýrslunnar ber með sér var þar ekki um endanlega útgáfu að ræða, enda hafði hún ekki hlotið staðfestingu stjórnar Framkvæmdastofnunar ríkisins.

Með útgáfu skýrslunnar var ætlunin að fá fram aths. umsagnaraðila áður en til endanlegrar afgreiðslu kæmi af hálfu Framkvæmdastofnunar ríkisins. Í kjölfar útgáfunnar var efnt til funda með þm. Vesturlands- og Vestfjarðakjördæma, hreppsnefndarmönnum á áætlunarsvæðinu og fulltrúum þeirra opinberu stofnana sem efni áætlunarinnar var talið varða á því stigi. Fundir þessir skiluðu fyllilega þeim árangri sem til var ætlast, og lágu margvíslegar upplýsingar fyrir um efni skýrslunnar á s.l. hausti.

Auk aðkallandi verkefna hafa tveir starfsmenn byggðadeildar unnið úr þessum gögnum í vetur. Þeirri úrvinnslu er nú lokið, en um þessar mundir stendur yfir frumlestur á handriti af endanlegri skýrslu. Er að því stefnt, að efni skýrslunnar verði lagt fyrir stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins í næsta mánuði, en þar mun tekin ákvörðun um, hvort hrinda beri í framkvæmd tillögum þeim sem fram koma í skýrslunni.“

Undir þetta skrifa Bjarni Einarsson og Sigurður Sigurðsson.