13.02.1979
Sameinað þing: 51. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2525 í B-deild Alþingistíðinda. (1979)
173. mál, könnun á atvinnu- og félagsmálum Suðurnesja
Fyrirspyrjandi (Oddur Ólafsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því, að tíminn hefur verið naumur til að starfa að þessari þál., einkum ef það er haft í huga, að fyrsti fundur til þess að rannsaka þessi mál mun hafa verið haldinn í desember.
Það er öllum ljóst, að þó að sjávarútvegur á Suðurnesjum hafi verið í ólestri og ólagi nú síðustu árin hafa ýmsar aðrar greinar þar þrifist, eins og tekjur manna sýna. Hins vegar er ljóst, að við það að sjávarútvegur fór úr skorðum ruglaðist afkoma þjónustugreinanna mjög verulega, og þetta er eitt af því sem ég held að væri mikil þörf á að rannsaka. Með eðlilegum rekstri sjávarútvegs mundi starfsemi þjónustugreinanna sennilega aukast mjög mikið, og með tilliti til þess, sem gefið hefur verið út á vegum áætlanadeildar Framkvæmdastofnunar á undanförnum árum varðandi ýmsar áætlanir, þá á ég von á að hún sjái sér fært að koma með fyllri gögn um ástandið þarna suður frá að nokkrum tíma liðnum. Ég endurtek þakkir mínar fyrir svörin.