13.02.1979
Sameinað þing: 51. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2536 í B-deild Alþingistíðinda. (1991)
122. mál, snjómokstursreglur
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég vil í þessu sambandi aðeins láta það koma fram, að mér finnst rétt að það verði reglulega endurskoðað með hvaða hætti snjó er rutt af helstu byggðavegum á láglendi, m.a. með tilliti til þess, hvernig þeir vegir eru uppbyggðir, og þeirra breytinga, sem á þeim vegaköflum verða.
Það er ekki langt síðan gerðir voru á vegum menntmrn. útreikningar á því, hvað leið mætti vera löng milli byggðarlaga til þess að borgaði sig af ríkisvaldinu að kosta akstur skólabarna daglega milli byggðarlaganna fremur en að reisa skóla í byggðarlögunum báðum. Þetta var reiknað út, og ég man eftir því, að menn komu vestur á firði til þess að skýra Vestfirðingum frá því, að skv. þessum „normum“ ætti ekki að kenna á Súgandafirði eldri börnum en 11 ára gömlum, öllum eldri börnum ætti að aka daglega milli Ísafjarðar og Súgandafjarðar vegna þess að vegaleiðin væri svo stutt. Hins vegar höfðu menn alveg gleymt að gera ráð fyrir vegarhæðinni, en því miður er vegurinn það hátt yfir sjó, að þarna er ekki fært um 6 mánuði á ári, og það var heldur verra að fella það undir „normin“.
Menn hafa verið að spyrja um afdrif veghefilsstjóra. Ekki get ég neinu svarað um það. En ætli það fari nú ekki talsvert eftir því hversu lengi honum dvelst, hvort kafald það, sem Alþýðubandalag heitir, er blindbylur, gerningaveður eða bara venjuleg hundslappadrífa. En saga er sögð um gáfaða menn, sem eitt sinn fóru til sjós og skildu fleytu sína eftir í vörinni þegar þeir komu að landi, gengu þar frá bæði fleytu og afla. Þegar þeir komu nokkru síðar hafði flætt, aflinn var horfinn, báturinn skemmdur og vélin ónýt. Þá spurðu menn, þegar þeir hittu næsta mann á förnum vegi úr þessum landshluta, hvernig það væri eiginlega vestur á fjörðum, hvort sjórinn væri misjafnlega djúpur. Og ég er ansi hræddur um að sumir menn verði að átta sig á staðreyndum lífsins, m.a. þeim staðreyndum, að sjórinn getur verið misjafnlega djúpur.