14.02.1979
Efri deild: 56. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2569 í B-deild Alþingistíðinda. (2011)
166. mál, grunnskólar
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Áður en ég kem að efnisatriðum þessa frv. vil ég taka fram, að ég gerði meðan á ræðu hv. flm., Ragnhildar Helgadóttur, stóð nokkrar aths. úr sæti mínu. Ræðumaður kvartaði mjög undan slíku, taldi það ekki samrýmast þingsköpum, og fyrri varaforseti þessarar d. varð við ósk ræðumannsins um að mælast til að slíkar stuttar aths. kæmu ekki fram. Í þessu sambandi vil ég vekja athygli á því, að forseti Sþ. hefur nýlega lýst yfir að hann telji að framíköll eða aths. úr sæti, sem beint snerta málflutning ræðumanns og oft og tíðum hjálpa ræðumanni til að skerpa það sem hann vill koma á framfæri, séu alls ekki á neinn hátt ósamræmanleg þeim þingsköpum sem hér hafa tíðkast. Og nú hefur hæstv. forseti þessarar d. úrskurðað að framíköll séu fyllilega eðlileg hjá „góðum ræðumönnum“. Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir hefur hins vegar óskað eftir því að teljast ekki til þess gæðaflokks og biðst undan því, að menn geri úr sætum aths. við hennar ræðu. Mér finnst sjálfsagt að verða við því þegar hv. þm. úrskurðar sjálfan sig þannig í þá flokka sem forsetar vilja viðhafa í afskiptum sínum af slíkum framíköllum. Væntanlega munum við dm. hafa þetta í huga framvegis, að sú regla, sem hæstv. forseti þessarar d. lýsti, að framíköll væru eðlileg eða aths. úr sæti hjá góðum ræðumönnum, ætti ekki við um hv. þm. Ragnhildi Helgadóttur. Sjálfsagt er að veita henni þá vernd sem hún óskar með þeim hætti eftir.
Hins vegar má nú segja að á ýmsum vettvöngum þar sem lýðræðið hefur staðið með miklum blóma — (AE: Þetta er tóm vitleysa hjá þér, Ólafur Ragnar, sem þú varst að segja áðan. Þetta er hrein vitleysa, ósönn túlkun á ummælum forseta.) Það er eðlilegt og sjálfsagt að þeir Alþfl.-menn einhverjir gangi til liðs við hv. þm. í þessum efnum. Ég hef enga aths. við það að gera. Hins vegar vil ég vekja athygli þessara tveggja þm, á því, að þingsagan er full af tilvikum og í þingskjölum eru þúsundir hlaðsíðna þar sem slíkar orðræður, sem byggjast á aths. úr sæti sínu við ræður manna, eru megininntak umr. í þinginu (RH: Það eru bara ekki öll framíköll jafnskynsamleg.) Þá er það ræðumanns að hagnýta sér þá óskynsemi og senda framíköllin til baka, en biðjast ekki vægðar. Þar sem lýðræðið hefur staðið lengst með blóma, eins og t.d. í Bretlandi, er það talið aðalsmerki góðrar ræðu að geta hent slíkt framíköll á lofti. Í því lýðræði, sem hefur þróast hér á Íslandi með framboðsfundum og þingmálafundum áratugum saman, hefur það einmitt verið hin helsta
íþrótt íslenskra ræðumanna að geta gripið slíkar aths. á lofti og sent þær beinskeyttari til baka heldur en þær komu, ég tala nú ekki um ef um óskynsamlegar aths. hefur verið að ræða. En vissulega er rétt að hafa þetta í huga framvegis, og ef menn vilja ekki stíga þann lýðræðislega dans sem felst í slíkum frjálsum skoðanaskiptum hér í þingsölum sem gert hefur verið í um 100 ár, þá skal ég taka það til greina gagnvart hv. þm. (RH: Er þm. að bjóða upp í lýðræðislegan dans?) Það gæti verið þörf á því, vegna þess að mér fannst á ræðu hv. þm. Ragnhildar Helgadóttur, sem nú hefur farið að þeim ráðum mínum og tekið upp framíkallaiðjuna í þingsalnum, — og geri ég enga aths. við það, hæstv. forseti, henni er frjálst að halda henni áfram eins lengi og henni sýnist meðan á ræðu minni stendur, — að það kynni einmitt að vera ástæða til þess, vegna þess að það sem mér fannst einna merkilegast við þá ítarlegu framsöguræðu, sem hér var flutt, er að hún sýndi okkur inn í annan meginarm þess hugmyndaheims sem mótað hefur stefnu Sjálfstfl. frá stofnun hans.
Eins og kunnugt er hafa tveir meginstraumar, tvær meginhugmyndalegar stoðir staðið undir Sjálfstfl. á Íslandi. Annars vegar er sú kenning sem kennd er erlendis við frjálshyggjuna (liberalismann) og er ekki aðeins efnahagsleg kenning, heldur líka menningarleg kenning, siðferðileg kenning. Hins vegar er sú kenning íhaldsstefnunnar (konservativismans) sem í erlendum samfélögum, þar sem þessi þróun hefur komið skýrt fram, er glöggt aðgreind frá frjálshyggjunni (liberalismanum). Það hefur hins vegar verið eitt af sérkennum íslenskra stjórnmála, að hér hafa saman farið í einum flokki þessir tveir meginstraumar, en sambúðarvandi þeirra í þessum flokki hefur stundum verið erfiður. Oft og tíðum er eðlilegt að ýmsir, sem eru í forsvari fyrir þennan flokk, ruglist dálítið á frjálshyggjunni og íhaldsstefnunni og setji fram skoðanir og lífshugsjón íhaldsstefnunnar undir formerkjum frjálshyggjunnar. Þetta hefur einkum og sér í lagi aukist á síðari árum, þegar hugmyndafræðileg kreppa hefur komið upp í Sjálfstfl. og flokksmenn hafa villst af sinni fyrri götu, jafnvel talið að Alþfl. hafi stolið hluta af stefnuskránni. Þá er fálmað í myrkrinu um þetta hugmyndafræðilega svið.
Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir hefur tvisvar sinnum hér á Alþ. í vetur sýnt mjög greinilega að hún er talsmaður íhaldshyggjunnar í Sjálfstfl., en ekki þeirrar klassísku frjálshyggju sem sumir af stofnendum flokksins og sumir af talsmönnum hans enn í dag hafa viljað halda á lofti. Þetta kom skýrt fram í umr. sem hv. þm. vakti um Félaga Jesúm og hún minnti okkur á í ræðu sinni áðan. Þetta kom einkar skýrt fram í öllum þeim kjarna hugsunarinnar, sem birtist í framsöguræðu hv. þm., og í þeim anda sem hún sagði að lægi að baki því frv. sem hún leggur hér fram. Ég tala nú ekki um þá fullyrðingu að „íhald væri heiðursnafn“, orðrétt. Frjálshyggjumaður í Evrópu mundi aldrei segja slíka setningu. Frjálshyggjusinni í Danmörku, í Svíþjóð, á Norðurlöndum, í Vestur-Þýskalandi, í Bretlandi mundi aldrei segja slíka setningu. Honum væri ljós munurinn á íhaldi (konservatisma) og frjálshyggju (liberahsma). (RH: Það vantar svona Sjálfstfl. þar.) Já, það vantar svona Sjálfstæðisflokk þar, það er alveg rétt. Ýmsar ástæður lágu að baki þess, að Sjálfstfl. íslenski hefur verið þetta sérkennilega sambland. Ég fagna því í raun og veru að það skuli koma svona skýrt fram hvar í þessari blöndu hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir er og telur sig sjálf vera, þ.e.a.s. aðaltalsmann íhaldshyggjunnar í Sjálfstfl., bæði í menningarmálum, í siðferðilegum málum, í trúmálum og öðrum þeim málaflokkum sem hún bar fram sér til réttlætingar í framsöguræðu sinni áðan. Ég lasta það ekki á neinn hátt. Ég fagna því þvert á móti, á sama hátt og ég fagnaði umr. hv. þm. utan dagskrár um Félaga Jesúm. Mér finnst nauðsynlegt í öllum frjálshyggjuáróðri Sjálfstfl. og talsmanna hans að þjóðin fái við og við að sjá framan í þá sem eru stoltir af því að vera íhald, eins og hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir lýsti yfir áðan. Það er þakkarvert. Við munum vissulega taka að okkur margir hverjir að koma því rækilega til skila til þjóðarinnar.
Hins vegar er það svo, ef maður skoðar söguna, að þessi íhaldsöfl, sem hv. þm. er stoltur af að tilheyra, eiga sér ærið litríkan feril í samskiptum sínum við vísindin á þessari öld. Það hefur fallið í hlut íhaldsaflanna á Vesturlöndum að gerast baráttumenn gegn framþróun vísindanna og því miður, vil ég segja, oft og tíðum undir formerkjum kristinnar trúar. Íhaldsöfl á Vesturlöndum hafa í fjölmörgum tilvikum hagnýtt sér kristna trú í baráttu sinni gegn vísindunum, gegn framþróun vísindanna.
Mér varð hugsað til þess áðan undir þessari ræðu, að í Suðurríkjum Bandaríkjanna fór fram fyrr á þessari öld hörð barátta gegn niðurstöðum og vísindalegum rannsóknum nútímaeðlisfræði, barátta gegn þróunarkenningu Darwins. Ýmsir stjórnmálamenn í Suðurríkjunum, talsmenn þess íhaldssama kerfis sem þar var, voru með nafn kristinnar trúar sífellt á vörunum í baráttu sinni gegn þróunarkenningu Darwins. Baráttan gegn nútímaeðlisfræði og framþróun og vaxtarskilyrðum hennar sem vísinda, baráttan gegn þróunarkenningu Darwins var háð í nafni kristinnar trúar, siðgæðis og varðveislu á ýmsum þeim stofnunum þjóðfélagsins sem hv. þm. vitnaði til áðan. Nú finnst okkur slík barátta fáránleg. Nú hrista menn höfuðið, hæði hér í þingsalnum og uppi á áheyrendapöllum, yfir slíku. (RH: Yfir hverju?) Yfir þeirri baráttu sem fór fram af hálfu íhaldsaflanna í Suðurríkjum Bandaríkjanna gegn þeim fræðimönnum eðlisfræðinnar og gegn þeim kennara sem í skólastofunni hélt fram þróunarkenningu Darwins. Um baráttuna gegn þeim kennara er merk saga. Um hana hafa verið skrifaðar margar bækur, jafnvel samin leikrit og kvikmyndir. Hana þekkja væntanlega flestir hér. Það átti að setja af kennarann sem í skólastofunni leyfði sér að halda fram þróunarkenningu Darwins. Það var stjórnmálamaður í Bandaríkjunum, fulltrúi íhaldsaflanna, jafnvel frambjóðandi til forsetakjörs, sem ætlaði að hagnýta sér þessa baráttu gegn vísindunum í pólitískum tilgangi.
Mér fannst ræða hv. þm. Ragnhildar Helgadóttur því miður minna óþyrmilega á ærið margt í þeirri baráttu, sem kannske er ekki svo undarlegt þegar maður hefur í huga að grundvallarskoðun þeirra, sem gerast stoltir talsmenn íhaldsins, hlýtur að vera andstæð framgangi vísindanna. Eins og hv. þm. sagði hér áðan, má eingöngu fjalla um það sem nú þegar er í gildandi lögum, eða m.ö.o., ef maður snýr því við: í skólanum má ekki fjalla um breytingar, þar má aðeins ræða það sem er.
Nú er það eðli allrar vísindalegrar framþróunar að spyrja spurninga, að draga í efa það sem er, að leita svara við því sem mönnum þykir e.t.v. dálítið sérstakt og forvitnilegt og spyrja vægðarlaust. En eins og hv. þm. sagði áðan; skólinn á að vera verndaður fyrir spurningum um breytingar. Þetta er í raun og veru krafa um að skólinn eigi að vera íhaldsstofnun. Slíkt er ekki krafa frjálshyggjunnar. Það sýnir vankunnáttu hv. þm. um þau miklu hugmyndafræðilegu átök sem hafa átt sér stað í Evrópu á þessari öld milli frjálshyggjunnar annars vegar og íhaldshyggjunnar hins vegar, að hún skuli rugla þessu saman. Það eru einmitt frjálshyggjumennirnir í Evrópu sem hafa verið aðaltalsmenn fyrir umræðunum og spurningunum um skólann í samfélaginu, helstu gagnrýnendur á skólann sem máttarstólpa íhaldsins í þjóðfélaginu. En e.t.v. er það rangt hjá mér, að hv. þm. séu ekki kunnugar þessar umr. E.t.v. gerir hún það vitandi vits og af fullum ásetningi að flytja þennan boðskap íhaldsins gegn vísindunum inn í sali Alþingis. Það hefur verið annað sem hefur einkennt vinnubrögð íhaldsafla á Vesturlöndum á þessari öld. Þau hafa ávallt — ég skal ljúka máli mínu, þannig að hægt sé að fresta fundi innan örfárra mínútna, hæstv. forseti. (Forseti: Ég vil vekja athygli á að fundartími er liðinn, ef hv. þm. vill gera hlé á ræðu sinni.) Já. Það hefur einmitt verið kjarninn í baráttu íhaldsafla gegn framþróun fræðilegrar þekkingar að notfæra sér pólitískar valdastofnanir þar sem fræðimennirnir væru ekki staddir til þess að svara fyrir sig í þeirri viðleitni sinni. Og það gerist einmitt hér í dag, að tekin er til ítarlegrar umr. könnun sem ég skal ekki leggja neinn dóm á, ég hef ekki kynnt mér hana nægilega til þess. En mér finnst óeðlilegt, ef hv. þm. telur að slíkt fræðiverk sé mjög aðfinnsluvert, að hún skuli þá ekki ganga til þeirrar umr. á hinum fræðilega vettvangi, en ætla sér að hagnýta sér hið pólitíska vald í baráttu sinni gegn framþróun vísindanna. Á þessum punkti, hæstv. forseti, skal ég gera hlé á ræðu minni og taka upp umr. um þetta frv. á síðari fundi. — (Frh.]