14.02.1979
Neðri deild: 51. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2574 í B-deild Alþingistíðinda. (2018)

168. mál, útvarpslög

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Frv. til l. um breyt. á útvarpslögum var til umr. s.l. mánudag og þá kvaddi ég mér hljóðs eftir að fjórir hv. alþm. höfðu fjallað nokkuð um þetta frv. Tveir þeirra mæltu með samþykkt þess, en aðrir tveir, talsmenn Alþfl., voru algerlega andvígir þessu frv. Röksemdir þeirra voru þær, að með samþykkt á þessu frv. væri ekki aðeins verið að gefa útvarpsrekstur frjálsan, heldur væri hér um að ræða frelsi til handa peningamönnum.

Inn í þessar umr. blönduðust síðan vangaveltur manna um stöðu ríkisútvarpsins, og er það í sjálfu sér vel. Það er líka skiljanlegt að málefni ríkisútvarpsins blandist nokkuð inn í umr. um frv. um frjálsan útvarpsrekstur, einkum og sér í lagi vegna þess að málefni Ríkisútvarpsins hafa verið nokkuð í sviðsljósinu að undanförnu út af ýmsum öðrum málum. Má þar nefna að framkvæmd var á dögunum hlustendakönnun þar sem fram komu athyglisverðar niðurstöðu um álit hlustenda á hljóðvarpinu, og gefnar hafa verið út yfirlýsingar af ráðamönnum útvarpsráðs og Ríkisútvarpsins um að grípa þurfi til margvíslegra breytinga á dagskrá með hliðsjón af niðurstöðum þessarar könnunar. Þá hefur það verið upplýst að ungir menn úr Reykjavík hafa boðist til þess að annast næturútvarp í sumar í tilraunaskyni, og vakin hefur verið afhygli á hugmyndum um breytingar á rekstri útvarpsins, m.a. með því að taka upp útsendingar í stereo, með því að taka upp nýja rás og hugsanlega að setja upp stúdíó víða um land, eins og frv. til laga, sem lagt hefur verið fram á þingi, gerir ráð fyrir.

Ég held að öll þessi mál sýni, að Ríkisútvarpið — hljóðvarpið — á rætur hjá þjóðinni, stendur henni nærri, enda er það svo, að hljóðvarpið er fastur — ekki aðeins gestur, heldur fjölskyldumeðlimur á hverju íslensku heimili og á þennan fjölmiðil er hlýtt meira en nokkurn annan fjölmiðil í þessu landi, jafnvel eftir gífurlega aukna blaðaútgáfu og þrátt fyrir tilkomu sjónvarps síðasta áratuginn.

Ég held að flestir séu sammála um að Ríkisútvarpið þurfi að færa mjög út kvíarnar og fylgjast með þróuninni með lengingu dagskrár, með aukinni fjölbreytni í dagskrárgerð o.s.frv. En þær kröfur, sem í þessu eru fólgnar, er erfitt að uppfylla nema mikið átak sé gert í málefnum Ríkisútvarpsins bæði hvað varðar alla aðstöðu og aðbúnað svo og fjárhagsstöðu stofnunarinnar.

Ég leyfi mér að fullyrða að Ríkisútvarpið hafi verið í mikilli úlfakreppu og hafi verið hornreka í þessu þjóðfélagi um langan tíma. Stofnunin situr enn þá í skammarlega þröngu leiguhúsnæði, allur tækjabúnaður er meira og minna úreltur, afnotagjöldum hefur markvisst verið haldið niðri og við afgreiðslu fjárl. í vetur var Ríkisútvarpið svipt hefðbundnum tekjum af aðflutningsgjöldum viðtækja sem nema um 1/2 milljarði króna. Þessi dapurlega upptalning, sem er meira og minna staðreynd, er ekki endilega yfirlýsing um að ekkert sé hægt að gera á næstunni, en hún stendur engu að síður Ríkisútvarpinu fyrir þrifum.

Ég held að forsenda allra veigamikilla breytinga hjá Ríkisútvarpinu sé sú, að aðbúnaður og aðstaða sé stórbætt með því að leggja áherslu á að sú bygging, sem nú er hafin fyrir Ríkisútvarpið, verði fullgerð á tiltölulega skömmum tíma, svo og að fjárhagslegt sjálfstæði Ríkisútvarpsins sé tryggt hið fyrsta með meira sjálfræði í ákvörðunum um afnotagjöld og með því að tryggja Ríkisútvarpinu beint þær tekjur sem fást af innflutningi á hljóðvarps- og sjónvarpstækjum.

Ég hef vel skilið vissa tortryggni ýmissa þeirra, sem nálægt Ríkisútvarpinu hafa staðið, gagnvart því að heimila frjálsan útvarpsrekstur og tregðu manna á því að samþ. að afnema skuli einkarétt ríkisins á útvarpsrekstri. Ég skil það svo, að hér sé um að ræða eðlilegan metnað af hálfu þessara aðila fyrir hönd Ríkisútvarpsins, sem halda því þá fram að fyrsta ákvörðun og fyrstu aðgerðir hljóti að beinast að því að laga mjög stöðu Ríkisútvarpsins áður en Íslendingar færðu út kvíarnar í útvarpsrekstri. Þetta segi ég án þess þó að vera sammála því, að ekki sé hægt að gera hvort tveggja jafnhliða: að afnema einkarétt ríkisins á útvarpsrekstri og bæta stöðu Ríkisútvarpsins frá því sem nú er. Ég held að með bættum aðbúnaði og með fjárhagslegu sjálfstæði þurfi ekki miklar umr. að fara fram um það, hvort lengja skuli dagskrána eða hvort breyta skuli henni að vilja hlustenda, og ég óttast ekkert um stöðu Ríkisútvarpsins í samkeppni við aðrar stöðvar í ljósi þeirra yfirburða sem sú stofnun hefur af langri reynslu og vegna þess að flestir Íslendingar hafa taugar til Ríkisútvarpsins.

Það vakti hins vegar athygli í umr. á mánudaginn að fulltrúar Alþfl. beittu fyrst og fremst þeim rökum gegn frjálsu útvarpi, að hætta væri á því að peningamenn kæmust til valda og misnotuðu áhrif sín á þeim vettvangi. Þessar röksemdir eiga að sjálfsögðu ekkert skylt við almenn vandamál Ríkisútvarpsins eða þær röksemdir sem ég var að rekja. Mér finnst í rauninni hryggilegt, að ungir og tiltölulega víðsýnir fulltrúar Alþfl. skuli bregða sér í hlutverk „kerfiskarlanna“ hér á Alþ. með því að taka upp hanskann fyrir þessa ríkisstofnun með þessum hætti og láta í ljós vantrú sína á því, að fólki sé veitt aukið frelsi til að tjá sig og til að hafa frumkvæði að fjölmiðlun af þessu tagi.

Það er vissulega rétt, að peningar eru að mörgu leyti afl þess sem gera skal. Án fjár geta menn vart hafið útgáfustarfsemi eða stofnað atvinnufyrirtæki eða reist nýjar útvarpsstöðvar. En þar þarf auðvitað meira til að koma en fjármagnið eitt sér. Þar þarf á að halda nokkrum kjarki og áræði, hugviti og frumkvæði. Þessir eiginleikar eru að mínu mati — og ég held það sé hafið yfir allan vafa — vaxtarbroddur allra framfara í þessu þjóðfélagi. Íslendingar hafa ekki byggt upp þjóðfélag velferðar og velmegunar og tækni og tækninýjunga nema vegna þess að þeir hafa haft hugvit og frumkvæði til þess að leggja til atlögu við slík verkefni. Þeir hafa ekki gert það í krafti peninganna einna sér, heldur vegna þess að þeir hafa fundið hvöt hjá sér til þess að leggja á brattann til athafna og til þess að taka nokkra áhættu í þessu landi.

Og ég vísa því algerlega á bug, að mikil og alvarleg hætta stafi af valdi og áhrifum peningamanna í þessu þjóðfélagi. Ég held að sú hætta komi annars staðar frá.

Ég hef ekki orðið var við að áhrif Alþfl. hafi minnkað í sama hlutfalli og útgáfa eða sala Alþýðublaðsins hefur minnkað, og segja má að styrkur Alþfl. hér á þingi hafi vaxið í öfugu hlutfalli við áhrif Alþýðublaðsins. Þó er Alþýðublaðið í eðli sínu sams konar fjölmiðill og hér er verið að tala um, þ.e. tæki til þess að breiða út skoðanir og sjónarmið. En ég hef ekki séð að Alþfl. hafi goldið þess, hversu litlum fjölmiðlum hann hefur yfir að ráða og ég hef ekki séð að peningamenn hafi komið flokki þessum fyrir kattarnef í krafti áhrifa sinna.

Sannleikurinn er sá, að þjóðfélaginu stafar miklu meiri hætta af þeim hugsunarhætti að menn séu sífellt að treysta fyrst og, fremst á stóra bróður, treysta fyrst og fremst á að ríkið geti séð öllum mönnum farborða og það sé farsælast að beina allri tjáningu og öllum fjölmiðlum undir stjórn ríkisins. Ég held að handleiðsla hins opinbera sé miklu alvarlegra vandamál. Ég held að það sé hlutverk ungra manna og nýrrar kynslóðar að reyna að standa vörð um að einstaklingarnir í þjóðfélaginu hafi möguleika, hafi rétt og þeir hafi tök á því einmitt að tjá sig og leggja út í alls kyns athafnir, hvort sem peningar skipta þar máli eða ekki.

Þetta er sem sagt ekki spurning um peningavald, heldur mannréttindi. Og þetta er spurning um lífsviðhorf. Ég hef í sjálfu sér, herra forseti, ekki miklar áhyggjur af því, hvort einkaréttur ríkisins á útvarpsrekstri verði afnuminn fyrr eða síðar, það heldur ekki vöku fyrir mér. En ég held að það sé, úr því sem komið er, aðeins tímaspursmál hvenær að því kemur. Ég vek athygli á því, að nú þegar er farið að segja frá því, að verið sé að selja myndsegulbönd með dagskrám, með efni fyrir sjónvarp. Innan skamms verður slíkt efni ákaflega ódýrt. Heilar dagskrár verða seldar fólki til afnota. Ég get ekki séð í fljótu bragði hvernig Alþfl. ætlar að bregðast við því að einhverjir ímyndaðir peningamenn hafi þar hönd í bagga og ráði einhverju um efni þessara myndsegulbanda.

Ég vek líka athygli á því, að áður en varir fáum við bæði að hlusta og sjá erlendar útvarps- og sjónvarpsstöðvar hér á Íslandi. Við það verður ekki ráðið. Ég man ekki betur en hv. þm. Eiður Guðnason hafi eindregið verið meðmæltur því að við tækjum upp samninga við hin Norðurlöndin um að standa að Nordsat, sem felur það í sér að hingað til lands munu berast dagskrár frá hinum Norðurlöndunum. Auðvitað verða þær dagskrár frágengnar og útbúnar algjörlega án þess að við séum spurðir þar ráða, hvorki ríkið né einstaklingar hér á landi.

Þessi tækniþróun verður ekki umflúin, og með hliðsjón af henni sýnist mér það vera bábiljur einar og barnaskapur að vera að mæla gegn því, að útvarpsrekstur á Íslandi verði gefinn frjálsari en nú er. Ég held að okkur stafi engin hætta af því þó einstaklingar fái að spreyta sig á þessu verkefni. Það er enginn skaði skeður þó að einhverjir aðrir fái að annast þessa fjölmiðlun en misvitrir útsendarar stjórnmálaflokkanna og embættismenn á vegum ríkisins.

Þetta sjónarmið vildi ég láta koma fram við þessa umr. Ég hef getið þess í grg. með því frv., sem ég hef flutt um staðbundnar útvarpsstöðvar, að ég teldi líklegt að pólitískir fordómar kæmu í veg fyrir að þetta frv., sem hér er nú á dagskrá, verði samþ. í vetur a.m.k. Ég hef því talið eðlilegra að stíga skref til aukinnar fjölbreytni í útvarpsrekstri með því að setja upp staðbundnar stöðvar. Ég geri mér vonir um að það frv. fái fylgi Alþingis og fáist samþ. á þessum vetri. En ég er í engum vafa um að fleiri skref og örlagaríkari verði stigin á næstu árum og áður en vari verði gerðar breytingar á útvarpslögum þannig að einkaréttur ríkisins verði afnuminn.