15.02.1979
Sameinað þing: 53. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2614 í B-deild Alþingistíðinda. (2040)

Umræður utan dagskrár

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Það er auðvitað fullvel ljóst öllum sem um það vilja vita, að á mánudaginn var lagði hæstv. forsrh. fram fullbúið frv. til l. um langtímaráðstafanir í efnahagsmálum, þar sem tekið er á öllum meginþáttum íslenskra efnahagsmála og þar sem gerð er bundin áætlun í efnahagsmálum til tveggja ára. Í sjálfu sér er það auðvitað svo, að þar sem þetta frv. hefur ekki verið lagt enn fram á Alþ. og þar sem hv. stjórnarandstöðu var fyrst sýnt þetta frv. í morgun, þá er auðvitað enn sem komið er ekki hægt að ræða það efnislega í smáatriðum. En allir hljóta að vona, og mér er næst að ætla að þjóðin öll hljóti að vona að til þess komi sem allra fyrst, að þingið ekki aðeins ræði þessa lagasetningu, heldur afgreiði hana einnig.

Það er auðvitað öllum ljóst, að þó að það hafi verið hæstv. forsrh. sem þetta frv. lagði fram í ríkisstj., þá er hér ekki um hugmyndir að ræða sem fæðast á einni nóttu, heldur er þetta frv. um margt nánast eins konar summa af umr. sem átt hafa sér stað á milli núv. stjórnarflokka frá því í góðan tíma áður en þessi stjórn var mynduð, frá því að þeir hófu að ræða saman í fyrstu og annarri viku eftir kosningar á s.l. vori.

Um viðbrögð Alþfl, er hægt að hafa á þessu stigi málsins ákaflega fá orð. Þegar á næsta degi eftir framlagningu frv. bókuðu ráðh. flokksins umsögn í ríkisstj. þar sem það var efnislega sagt, að þó að auðvitað væri sitthvað smátt sem þingflokkur Alþfl. kysi að hafa öðruvísi, þá væru það smámunir einir hjá hinu, nauðsyn þess að koma hér á áætlun í efnahagsmálum sem stæði til langs tíma og hefði það að grundvallarmarkmiði að ná verðbólgu varanlega og verulega niður. Þessi afstaða er raunar augljós í ljósi þess sem á undan er gengið, og þetta er einróma afstaða þingflokks Alþfl.

Flokksstjórn Alþfl. hefur gert hliðstæða samþykkt og einróma, að hún styður þetta frv. til l., enda má segja að hugmyndirnar séu ekki allar ókunnar á þeim slóðum. Enn fremur er það samþykkt flokksstjórnar Alþfl., að þetta frv. verði lagt fram á Alþ. hið allra fyrsta, m.a. vegna þess að við megum engan tíma missa af ástæðum sem ég hygg að þingheimi séu ljósar.

Þó svo þetta frv. — þetta er frv., en ekki frv.-drög — komi fram á tilteknum degi, þá ber að ítreka það enn og það segir sig sjálft, að þetta er árangur af langri samvinnu, samráði á milli stjórnarflokkanna, og það er að ég hygg mat forsrh. að svona langt sé hægt að komast.

Hitt er svo annað mál, að ég get mætavel skilið þær aðfinnslur stjórnarandstöðunnar, að það er auðvitað ekki þolandi að það líði langur tími og að fullbúið frv. sé sent hagsmunahópum til umsagnar og umfjöllunar, en Alþ. hins vegar ekki sýnt þetta frv. Ég segi fyrir mig og dreg enga dul á það, að ég lít svo á að ég sé hingað kosinn til þess að setja landinu lög eða synja frv. um lagasetningu sem fram kunna að vera borin af öðrum. Þetta er auðvitað megintilgangur með því að hafa þing og þingræði. Samráð út um samfélagið allt er auðvitað nauðsynlegt og allra góðra gjalda vert, og það er það sem þm. eru að gera frá degi til dags, hvort sem það eru stór frv. um efnahagsmál eða smærri frv. af öðru tagi. En til þess er leikurinn gerður, til þess eru frv. búin til, að þau séu lögð fram á Alþ. til samþykktar eða synjunar. Og ég er þeirrar skoðunar, svo sem er kjarni í bókun ráðh. Alþfl. í ríkisstj. og flokksstjórnar Alþfl., að það er ekki eftir neinu að bíða með þetta mál. Það má vel taka undir það með hæstv. forsrh., að það þarf á það að reyna hverjir eru tilbúnir í verðbólguslaginn. Auðvitað er það svo og það er mætavel ljóst hjá þjóð sem hefur lifað um efni fram um mörg ár, sem er orðin föst í farvegi 50% verðbólgu og safnar skuldum erlendis, að þegar þarf að grípa til hjöðnunaraðgerða, þá kann það að kosta nokkrar fórnir um sinn, og kann að vera að stjórnmálaflokkar séu misjafnlega vel í stakk búnir til að segja þennan sannleik. En það breytir ekki hinu, að þetta er sannleikur sem ég hygg að nærfellt allri þjóðinni sé mætavel ljós.

Tveir ráðh. Alþb. hafa hér fjallað nokkuð um almennum orðum og vísað til efnisatriða þessa frv. Þeir segja að verið sé nánast að lögbinda atvinnuleysi og löghinda launalækkun. Það gefur auðvitað auga leið, að það er ófært að á Alþ. sé verið að ræða efnisatriði frv. sem alls ekki hefur verið lagt fyrir Alþ., ég tala nú ekki um þegar ekki er réttar farið með en hér er gert. Sannleikur málsins er auðvitað sá, að það er rungandi atvinnuleysi á bak við næsta horn í þessu samfélagi ef ekkert er að gert. Þeir, sem þekkja til hjá byggingariðnaði í Reykjavík, vita þetta mætavel, að ef ekkert er að gert hér í efnahagsmálum, þá siglum við hraðbyri inn í atvinnuleysi. Hvernig á þjóðfélag að þola 50% verðbólgu árum saman, eins og nú hefur verið? Af þessum ástæðum ekki síst er ekki eftir neinu að bíða að leggja þetta frv. fram til þess að þm. fái um það að fjalla efnislega, til þess að þjóðin fái að vita — ekki bara hverjar eru upphrópanir einstakra stjórnmálamanna, heldur hvað stendur í þessu frv., og á það þarf að reyna, hvort þingmeirihl. er fyrir því eða ekki, því að ef ekkert verður aðhafst núna og ef næstu mánaðamót líða og öllu verður sleppt hér lausu enn, þá verður þessi ríkisstj. nánast óþekkjanleg frá þeirri síðustu. Og ef svo gerist, þá fær hún þau eftirmæli — og það verður væntanlega skammt í þau –b - sem því miður tvær fyrri svokallaðar vinstri stjórnir hafa fengið, 1956–1958 og 1971–1974. Þær gerðu auðvitað margt vel og einstakar athafnir voru til fyrirmyndar, en þær réðu ekki við efnahagsmálin. Og ef það á að gerast hér, að stjórnleysið á að halda áfram, þá er þessi dómur á næsta leiti. Það hefur ekkert samfélag staðist til mikillar lengdar efnahagsástand eins og það sem hér hefur verið. Það hefur ekkert samfélag staðist til mikillar lengdar 50% verðbólgu ár eftir ár. Og ef ekki er gripið í taumana, þá m.a. þykjast kunnáttumenn í atvinnumálum sjá fram á að atvinnuleysisvofan sé á bak við næsta horn, og það verður þung ábyrgð þeirra sem neita að taka höndum saman við okkur sem lýsum því yfir að við erum tilbúnir. Við vitum að hér er um erfiðar aðgerðir að ræða. Hjöðnunaraðgerðir eru alltaf erfiðar, það segir sig sjálft. En þetta verður að gerast engu að síður.

Það hefur komið í ljós og frá því verið greint í blöðum, að á þeim ráðherrafundi, sem haldinn var á mánudag, hlupu menn þegar upp til handa og fóta og voru komnir í andstöðu við það frv. sem hér um ræðir. Ég er þeirrar skoðunar, að hér hljóti að hafa verið um mikla fljótfærni að ræða og raunar hryggilega fljótfærni. Þetta er langt og mikið plagg og menn sjá ekki á 5 mínútum hvort þeir eru svo ægilega andsnúnir því sem þeir hafa síðan lýst. Síðan hafa fleiri fylgt í kjölfarið og lýst yfir eindreginni andstöðu við þetta. Ég er samt þeirrar skoðunar, að hér hafi átt sér stað mikil fljótfærni, — fljótfærni sem vel megi enn leiðrétta. Við verðum að grípa til aðgerða. Það er vissulega rétt, að það er nauðsyn þessari ríkisstj. eins og öllum öðrum að hafa sem viðtækust samráð út um samfélagið allt. Til þess höfum við haft marga mánuði. Þessi samráð hafa farið fram, en engu að síður hlýtur að koma að því, að það verður að taka pólitískar ákvarðanir, og til þess eru menn kjörnir til þessarar stofnunar að taka pólitískar ákvarðanir. Alþfl., bæði ráðh. hans í ríkisstj. og flokksstjórn, hafa lýst því yfir, að það er ekki eftir neinu að bíða, og það er réttur þm. að fá að fjalla um þetta frv.