20.02.1979
Sameinað þing: 55. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2657 í B-deild Alþingistíðinda. (2067)

Umræður utan dagskrár

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Það mætti margt um þetta mál segja fleira en hér hefur verið sagt, en ég held að það verði ekki leyst á Alþ. með umr. Það eru alveg réttmætar áhendingar, að ástæða sé til þess að fara ofan í saumana á máli af þessu tagi, ekki til þess að flengja einn eða annan, heldur til þess að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig, og þegar hefur ýmislegt komið fram í umr. sem sjálfsagt er að haft verði þar til hliðsjónar.

Ég vil að það komi skýrt fram, að ég hef ekki í máli mínu verið að dæma um það, hvert rekja megi gallana á þeirri vöru sem framleidd var fyrir hinn sovéska markað, og ég vara hv. þm. við því að vera að kveða upp dóma um það að lítt athuguðu máli. Þetta getur að sjálfsögðu varðað það fyrirtæki sem framleiddi vöruna, og það er eðlilegt að við séum ekki að láta eitthvað frá okkur fara sem hefur hæpnar forsendur. Ég vil aðeins benda á að það sem ég gat um varðandi meðferð hráefnisins, að rekja mætti gallana til þess, þarf ekki að beina athyglinni út af fyrir sig frá framleiðanda þessarar vöru til þess sem verkaði hráefnið, ef marka má upplýsingar sem fram hafa komið í blöðum. En ég legg ekki heldur dóm á þær í þessu máli og tel þetta ekki vettvang til þess að kveða upp dóma þar að lútandi.

Eitt meginatriðið, sem horfir við þessari virðulegu stofnun, finnst mér vera meðferðin á eftirlitinu með framleiðslunni og hvernig það má gerast að settar eru reglugerðir sem síðan eru ekki virtar. Mér hefur virst við athugun þessa máls að það hafi ekki verið samvinna milli þeirra rn. sem hér eiga í hlut, annars vegar iðnrn. og hins vegar sjútvrn., þegar umrædd reglugerð varðandi eftirlit með lagmeti var sett á árinu 1976. Það liggja fyrir upplýsingar um það í bréfum til viðskrn. og iðnrh, nú nýlega, að ekki hafi verið leitað álits eða samstarfs við sjútvrn. eða viðeigandi stofnanir á þess vegum þegar þessi reglugerð var sett, og ég er smeykur um að þessi vinnubrögð hafi leitt til þess, að þessir aðilar hafi ekki tekið á þessum málum eins og vera ætti og þá jafnframt til þess að leysa svo sjálfsögð atriði að unnt sé að fjármagna það eftirlit sem hér á í hlut. Og það er lærdómsríkt, finnst mér, fyrir hv. fjvn. Alþ. og þá, sem þar starfa, þetta dæmi sem hér hefur verið dregið fram, og vænta má að þess verði gætt að ekki verði látið við það eitt sitja að geta sparað nokkrar krónur vegna þess að það sýnist frambærilegt fljótt á litið. Ég er þó ekki með neinar ásakanir í garð manna, en vil aðeins benda á að það er býsna ríkt hjá stofnunum á vegum ríkisins að reyna að halda um sitt og taka ekki að sér verkefni sem hefur ekki verið gengið frá eða samið um við þær að þær annist, nema tryggt sé að þær hafi aðstöðu til þess. Stífni af þessu tagi hefur komið upp í þessu máli. Ég tel að við eigum einnig að læra af því.

Ég ætla ekki að fara að rekja bréfa- og blaðaskrif hér og lengja þessar umr., en aðeins gefa þá yfirlýsingu fyrir hönd míns rn., að við munum reyna að taka á þessu máli í samvinnu við önnur rn. og reyna að fá leyst úr því. Það kom ekki á dagskrá í rn. mínu fyrr en í tengslum við þetta mál, og mér var ókunnugt um það fyrr en í kringum áramótin eða í byrjun þessa árs, að við verulega erfiðleika væri að etja í sambandi við mat á þessari framleiðslu. Ég hef átt gott samstarf við stjórn Sölustofnunar lagmetis um ýmis málefni sem varða stofnunina, og það er vilji hjá báðum aðilum að taka á málefnum hennar þannig að leyst verði úr sem flestum erfiðleikum sem þar eru á ferðinni. Ég vænti því að með góðum samtökum aðila megi bæta úr þannig að til frambúðar verði.